Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Síða 14
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 200814 Neytendur
Lof&Last
n Lofið fær Rizzo
pizza. Pantaðar
voru pítsur í
hádeginu og mikið
var að gera á
staðnum. Samt voru
pítsurnar tilbúnar á örskotsstund og
þjónustan var
mjög liðleg
og góð.
Frábært að
láta viðskiptavini ekki bíða of lengi
sem eru í hádegishléi frá vinnu og
hafa ekki mikinn tíma til þess að bíða.
n Lastið fær BSÍ fyrir
pítsurnar og
pulsurnar. Þar eru
pítsurnar mjög
ólystugar, harðar og
vondar. Viðskiptavinur fékk
sér pylsu sem var mjög
vond og
fékk í kjölfarið
mikinn magaverk.
BSÍ mætti gera betur
við ferðalanga sem streyma daglega
um staðinn, hraktir og svangir.
Neytendastofa undirbýr skoðun verðmerkinga hjá stórmörkuðum:
Verðmerkingar kannaðar
Neytendastofa hefur undanfar-
ið verið með skoðun á ástandi verð-
merkinga. Frá 19. júní hafa ísbúð-
ir, húsgagnaverslanir og bakarí verið
skoðuð. Þangað sem verðmerkingun-
um er ábótavant eru sendar skriflegar
athugasemdir og gefinn frestur til að
koma þeim í lag. Eftir tíu daga er athug-
að hvort bætt hafi verið úr verðmerk-
ingum og ef ekki grípur Neytendastofa
til aðgerða.
„Núna erum við að kanna verð-
merkingar í fiskborðum, en það verður
sérstakt verkefni í ágúst að kanna verð-
merkingar í stórmörkuðum sem við
erum að undirbúa sérstaklega vel því
þar er mesta brotalömin,“ segir Tómas
Þóroddsson, starfsmaður Neytenda-
stofu. „Þegar við framkvæmum kann-
anir tökum við vörur í körfu og skrifum
niður hvað þær kosta miðað við hillu-
merkingar, setjum þær svo í gegnum
kassakerfið og berum saman hvort það
standist merkingar á hillum. Að auki er
athugað hvort verðmerkingar séu yfir
höfuð til staðar,“ segir Tómas.
Háaleiti 171,70 189,60
Bensín dísel
Bíldshöfða 170,20 188,10
Bensín dísel
Skógarhlíð 170,20 188,00
Bensín dísel
Miklubraut 168,10 186,00
Bensín dísel
Barðastöðum 170,20 188,10
Bensín dísel
Salavegi 170,20 188,10
Bensín dísel
Stjórahjalla 170,20 188,10
Bensín díselel
d
sn
ey
t
i
Innan við tíundi hver viðskiptavinur tryggir bara bílinn en ekkert annað hjá trygg-
ingarfélagi. Flestir eru með fleiri tryggingar á sama stað. Hagstæðast er að tryggja
allt saman. Til dæmis gæti bílatrygging sem kostar 113.000 lækkað niður í 74.977 ef
heimilistrygging væri tekin með.
ódýrast að tryggja
allt á einum staðKlipping fyrir barnið
Gerð var verðkönnun á klippingu
fyrir börn á hinum ýmsu hár-
greiðslustofum. Af þeim stöðum
sem voru kannaðir var klippingin
dýrust hjá Jóa og félögum og
Rauðhettu og úlfinum, en ódýrust
á hársnyrtistofunni Englahári.
Einfaldasta leiðin til að ná trygginga-
gjöldum niður á bílnum er að tryggja
fleira en bílinn á sama stað. Heimil-
is-, bifreiða-, líf- og slysatryggingar
eru þá hafðar hjá sama trygginga-
fyrirtæki til þess að minnka kostn-
aðinn.
Afslættir á tryggingum
Tekið er dæmi um Skoda Oct-
avia árgerð 2000 sem er tryggður hjá
Sjóvá. Þar er bíllinn tryggður í Fjöl-
skylduvernd eitt sem felur í sér lág-
marksheimilistryggingu og 12 pró-
sent afslátt af tryggingunni og þar að
auki 10 prósent afslátt ef maður er
tjónlaus eftir árið. Þannig er oft hag-
stæðara að taka þessa aukatryggingu
til þess að fá afsláttinn. Það kost-
ar 4.941 krónu á ári að vera í Fjöl-
skylduvernd eitt. Trygging á sam-
svarandi bíl sem væri ekki í þessari
Fjölskylduvernd 1 fæli í sér ábyrgðar-
tryggingu á 73.274 krónur og kaskó-
trygging á 17.381 krónu sem mundi
gera 90.655 krónur á ári.
Ýmsar tryggingar
Hjá Tryggingamiðstöðinni væri
ábyrgðartrygging á Skoda Octavia
árgerð 2000 á 67.000 krónur. Trygg-
ing án kaskó væri 82.000 á ári, sjálfs-
ábyrgð vegna tjóns er 60 þúsund
krónur en Tryggingamiðstöðin
mundi borga restina. Bifreiðatrygg-
ing gæti farið upp í rúmar 92.000
krónur. Hjá VÍS væri trygging á bíl
110.000 krónur ef engar aðrar trygg-
ingar væru fyrir hendi. Hjá Verði væri
heilsársiðgjald á bíl 113.000 og af því
væri kaskótrygging 25.000. Trygg-
ingin mundi lækka niður í 74.977 ef
heimilstrygging væri tekin með.
Allt í gegnum netið
Á vefsíðunni elisabet.is, sem er
undirfyrirtæki Tryggingamiðstöðv-
arinnar, er hægt að finna góð kjör á
bílatryggingum. Þessi þjónusta fer
öll í gegnum netið og er þess vegna
hagstæðari. Ódýrasta trygging-
in sem er í boði þar kostar 61.512
krónur. Tryggingin kallast Algjört
lágmark og er „skyldutrygging fyr-
ir mjög ódýra bíla og bílstjóra sem
lenda ekki í tjóni. 7-9-13“. Þetta hent-
ar kannski ekki öllum.
Passaðu þig á kaskó
„Menn fara bara á milli og fá
besta boð eins og er með allar skaða-
tryggingar,“ segir Ingólfur H. Ingólfs-
son hjá spara.is. „Það væri eitt sem
menn þyrftu að passa sig á varðandi
bifreiðatryggingar og það er kaskó-
tryggingin. Ég mundi setja spurn-
ingamerki við það að vera á gömlum
bíl með kaskótryggingu. Það er full
ástæða til að hafa kaskótryggingu á
nýjum bílum en alls ekki á eldri bíl-
um. Maður er yfirleitt með svo háa
sjálfsábyrgð til að lækka trygging-
una sína, og ef bíllinn er bara nokkur
hundruð þúsund króna virði er til-
gangslaust að vera með kaskótrygg-
ingar, það væri bara miklu dýrara
en bíllinn þegar upp er staðið,“ segir
Ingólfur.
BARNAKLIPPING
Jói og félagar, Skólavörðustíg 8 3.500
Stubbalubbar, Barðastöðum 3 2.890
englahár, Langarima 21 2.700
rauðhetta og úlfurinn 3.500
Toni & guy, Laugavegi 96 3.100
Hár expo, Laugavegi 42 2.800
ÓkeyPis kAffi á Olís
„Það er alltaf mjög gott að taka bensín
á Olís á Selfossi því þar fær maður alltaf
ókeypis kaffi og góða þjónustu,“ segir Ey-
þór Arnalds. „Á meðan fólk er að bíða eftir
því að bensíntankurinn fyllist af dýru bens-
íni er gott að gæða sér á ókeypis kaffi og
þarna á Olís er alltaf frábær þjónusta.“
neytendur@dv.is UmSJón: ÁSTRÚn FRIÐBJÖRnSDóTTIR
Neyte dur
neytandinn
ástrún friðbjörnsdÓttir
blaðamaður skrifar: astrun@dv.is
Sjóvá 100.269 krónur
Tryggingamiðstöðin 110.000 til 150.000 krónur
VÍS 115.000 krónur
Vörður 113.000 krónur
IðGjALd meðALBíLs
- miðað við tjónlausan heimilisbíl
bílatryggingar Ef þú vilt lækka
tryggingarnar á bílnum skaltu færa allt
sem þú tryggir til sama tryggingafélags
og þú færð betra tryggingatilboð.