Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 29.JÚLÍ 2008 17Sport
LandsLiðið í strandhandboLta Íslandsmótið í strand-
handbolta fór fram Í Nauthólsvík um helgina. Hinn ungi og
efnilegi Aron Pálmason úr FH byrjar vel fyrir sitt fyrsta tímabil
í efstu deild en hann var kosinn besti leikmaður mótsins. Hjá
konunum var Hafdís Hinriksdóttir einnig úr FH kosin best. Þá
var hornamaðurinn knái Stefán Baldvin Stefánsson kjörinn
markvörður mótsins. Eftir mótið var landsliðið í strandhand-
bolta valið og skipa það: Fannar Friðgeirsson úr Stjörnunni,
Baldvin Þorsteinsson úr Val, Hilmar Guðlaugsson úr FH, Aron
Pálmason úr FH og Rúnar Kárason landsliðsmaður úr Fram.
Ferguson gagnrýnir bLatter Alex Ferguson, stjóri Manchester United,
telur að ummæli Sepps Blatter, forseta UEFA knattspyrnusambands Evrópu, um
þrælahald leikmanna hafi verið óheppileg. Hann gagnrýnir Blatter fyrir að hafa
svo stór orð um leikmenn sem fái milljónir punda í árslaun. „Þetta voru óheppi-
leg ummæli fyrir mann í þessari stöðu. Þrælahald var afnumið fyrir mörgum
árum og nú fá menn 5-6 milljónir punda í árslaun. Ég á því erfitt með að sjá lík-
indin við þrælahald. Svona ummæli eru ekki svara verð,“ segir Ferguson.
LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS!
MOLAR
Kr og FjöLnir mætast í KvöLd
Þréttándu umferð Landsbanka-
deildar karla lýkur í kvöld með
einum leik. KR og Fjölnir mætast í
lokaleik umferðarinnar í Frostaskjóli
klukkan 20.00. Liðin mættust síðast
í 2. umferð og
þá hafði Fjölnir
sigur á dram-
atískan hátt í
Grafarvogin-
um. KR komst
yfir í leiknum
en Fjölnis-
menn jöfnuðu
og skoruðu svo
sigurmarkið úr
vítaspyrnu í uppbótartíma. Vestur-
bæingar vilja eflaust hefna fyrir þær
ófarir en tapi þeir í kvöld sitja þeir
eftir í toppbaráttunni. Fjölnismenn
geta með sigri komið sér aftur upp
að toppliðunum. KR hefur 18 stig
fyrir leikinn í kvöld en Fjölnir 21.
hK Fær tvo
Landsbankadeildarlið HK í knatt-
spyrnu hefur samið við tvo erlenda
varnarmenn. Slóveninn Erdzan
Beciri og Kósóvómaðurinn Benis
Krasniqi hafa æft með liðinu undan-
farið og gert nóg til þess að heilla
HK-inga. Þeir voru ekki komnir með
leikheimild gegn Fram í gærkvöldi
en verða vænt-
anlega gjald-
gengir með
Kópavogslið-
inu þegar það
mætir Keflavík
í næstu um-
ferð. „Þetta eru
hörkugóðir
leikmenn, þeir
hafa sýnt það á
æfingunum með okkur og þeir eiga
eftir að styrkja okkur í baráttunni
það sem eftir er sumars,“ segir Rún-
ar Páll Sigmundsson, þjálfari HK, um
leikmennina á heimasíðu HK.
ísLensKir við vöLdin í svíþjóð
Íslenska landsliðið í knattspyrnu
skipað leikmönnum U17 ára og
yngri keppir nú á Norðurlandamót-
inu í knattspyrnu en fleiri Íslend-
ingar eru þar í sviðsljósinu. Lands-
bankadeildardómarinn Þóroddur
Hjaltalín úr Þór dæmir á mótinu og
með honum er B-aðstoðardómarinn
Gylfi Már Sigurðsson sem flagg-
ar fyrir Njarðvík. Þóroddur dæmir
nú sitt fyrsta tímabil í efstu deild
og hefur þótt standa sig vel. Hann
fékk ærið verkefni um daginn þegar
hann dæmdi nágrannaslag Breiða-
bliks og HK í Landsbankadeildinni
og komst einkar vel frá því verkefni.
þórður aðstoðar tvíburana
Þórður Þórðarson, fyrrverandi mark-
vörður ÍA um árabil sem hefur verið
yfirmaður yngri flokka hjá ÍA, var
í gær ráðinn
sem aðstoðar-
þjálfari meist-
araflokks karla
hjá félaginu.
Hann mun
því aðstoða
tvíburabræð-
urna Arnar og
Bjarka Gunn-
laugssyni sem
stýrðu sínum fyrsta leik í tapi gegn
FH í fyrrakvöld. Þórður á að baki
250 leiki fyrir ÍA en þurfti að hætta
snögglega í knattspyrnu fyrir tveim-
ur árum vegna heilsufarsástæðna.
Hann hefur einnig sinnt markvarða-
þjálfun á Skaganum.
Bjarni Guðjónsson vildi fara frá
Skagamönnum þrátt fyrir að stjórn-
armenn í liðinu hafi viljað halda
honum hjá félaginu. Ákvörðunin um
að láta hann fara var ekki fjárhags-
legs eðlis og Gísli Gíslason formaður
rekstrarfélags knattspyrnudeildar ÍA
segir að félagið hafi haft fjárhagslegt
bolmagn til að halda honum. Bjarni
hafi hins vegar viljað fara frá félag-
inu.
Mikill styr hefur staðið um Bjarna
Guðjónsson að undanförnu eftir að
Valsmenn lýstu því yfir að félagið
hefði hug á því að fá kappann í sín-
ar raðir. Samkvæmt heimildum DV
hafði Bjarni þegar rætt við KR og Val
þegar Börkur Edwardsson yfirmaður
afrekssviðs Vals lýsti því yfir að félag-
ið hefði hug á því að fá Bjarna til liðs
við félagið í sjónvarpsfréttum RÚV í
síðustu viku.
Gísli Gíslason formaður rekstrar-
félags ÍA sagði við DV í gær að félagið
hefði viljað halda Bjarna en fyrirlið-
inn viljað reyna fyrir sér annars stað-
ar. „Hann er farinn í KR og við höfum
allan tímann sagt að við viljum hafa
Bjarna hjá okkur. En það er augljóst
að það gekk ekki eftir. Þetta upphófst
með því að Valur lýsti því yfir að Val-
ur hefði áhuga á leikmanninum. En
hann valdi svo að fara í KR,“ segir
Gísli.
bjarni vildi leita á nýjar slóðir
Orðrómur hefur verið uppi um
að Skagamenn hafi viljað losna við
Bjarna vegna hárra launagreiðslna.
Félagið hafi aukinheldur vantað fé til
þess að greiða upp starfslokasamn-
ing Guðjóns Þórðarsonar. Gísli þver-
tekur hins vegar fyrir allt slíkt.
„Ákvörðun okkar var ekki fjár-
hagslegs eðlis. Við vorum með
samning við Bjarna til 2009 og vor-
um alveg tilbúnir að standa við þann
samning. Bjarni vildi hins vegar leita
á nýjar slóðir,“ segir Gísli.
Hann segir engin sárindi út í
Bjarna. „Við dæmum hann samt ekki
fyrir það. Við vitum að fótboltinn
tekur á sig ýmsar sveigjur og beygj-
ur. Það er kannski óvenjulegt að leik-
maður skipti um lið á miðju tímabili.
En það er fullt af leikmönnum sem
hafa yfirgefið okkur og farið í önnur
félög. Við þökkum honum fyrir sam-
starfið og óskum honum velfarnað-
ar,“ segir Gísli. Hann býst ekki við því
að félagið bæti við sig leikmönnum í
kjölfar brotthvarfs Bjarna. „Við erum
ekki að skoða neitt sem stendur. Leik-
mannaglugginn lokast á fimmtudag-
inn þannig að við útilokum ekkert þó
ég búist ekki við nýjum leikmönn-
um,“ segir Gísli.
580 þúsund á mánuði
Samningur Bjarna Guðjónssonar
er með þeim hærri sem gerist hér á
landi. Samkvæmt heimildum DV fær
Bjarni um 580 þúsund krónur í mán-
aðarlaun en hann gerði samning við
KR út tímabilið 2012. Bjarni sagði á
vefmiðlinum visir.is að hann hefði
getað fengið betri laun hjá Val en val-
ið að fara í KR.
Valsmenn gáfu hins vegar út yfir-
lýsingu í gær þar sem þeir segja sig
hafa hætt afskiptum af Bjarna vegna
óhóflegra launakrafna hans sem að
þeirra sögnu ku vera hærri en áður
hafi þekkst hér á landi.
Slíkt er athyglisvert í ljósi þess að
launahæstu leikmenn Vals eru með
um 800 þúsund krónur í mánaðar-
laun eins og fram kom í frétt DV 11.
júlí síðastliðinn.
bjarni guðjónsson vildi fara frá Skaga-
mönnum. gísli gíslason formaður knatt-
spyrnudeildar Skagamanna segir félagið
engan kala bera til Bjarna. Bjarni fær um
580 þúsund krónur á mánuði fyrir að leika
með þeim svart-hvítu.
tómas þór þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
bjarni vildi fara
harður í horn að taka Bjarni
Guðjónsson sést hér í leik
gegn nýjum félögum í KR.
Fylkismenn sýndu mikla seiglu
þegar þeir jöfnuðu leikinn gegn Kefl-
víkingum í 3-3 á 86. mínútu eftir að
Keflvíkingar höfðu náð tveggja marka
forystu í upphafi síðari hálfleiks.
Leikurinn var ekki nema 24 sek-
úndna gamall þegar Guðmundur
Steinarsson skoraði fyrsta markið
fyrir Keflvíkinga. Keflvíkingar voru
mikið sterkari fyrsta hálftímann og
það var því nokkuð gegn gangi leiks-
ins þegar Ian Jeffs jafnaði leikinn
fyrir Fylki. Markið var engu að síður
laglegt og gott samspil hans við All-
an Dyring endaði með góðu skoti frá
Jeffs í nærhornið.
Adam var ekki lengi í paradís og
Guðmundur Steinarsson bætti við
marki á 42. mínútu með skalla eft-
ir laglega sendingu frá Hólmari Erni
Rúnarssyni.
Ekki blés byrlega fyrir Fylkismenn
á 48. mínútu þegar Hörður Sveinsson
bætti við þriðja marki Keflvíkinga og
fátt benti til annars en Keflvíkingar
myndu endurheimta toppsætið.
Fylkismenn mættu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik. Keflvíking-
ar fengu að vísu fín færi til að gera
út um leikinn áður en Fylkismenn
bitu í skjaldarrendurnar. Á 73. mín-
útu kom atvik sem var vendipunktur
í leiknum. Brotið var á Allan Dyring
utan teigs og í kjölfarið fékk Brynjar
Guðmundsson rautt spjald. Úr auka-
spyrnunni skoraði Kjartan Ágúst
Breiðdal gott mark.
Eftir mikla baráttu og góða spila-
mennsku náðu Fylkismenn að jafna
leikinn þegar Kjartan Ágúst Breiðdal
skoraði öðru sinni með fínu skoti.
Lokatölur urðu 3-3 í frábærum leik.
Keflvíkingar máttu prísa sig sæla
með að ná stigi en það dugar ekki
ekki til að ná toppsætinu að nýju.
tomas@dv.is
Fylkismenn unnu upp tveggja marka forystu Keflavíkur. Fram vann öruggan sigur á HK.
Seigla FylkiS Skilaði Stigi
Kjartan Ágúst breiðdal
Skoraði tvívegis fyrir Fylki
gegn Keflavík.