Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Side 20
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 200820 Ættfræði
50 ára í dagTil
hamingju
með
afmælið
30 ára afmæli
n Ása Fanney Rögnvaldsdóttir Bústaðavegi 73,
Reykjavík
n Kristjana Kristjánsdóttir Stekkjartúni 21, Akureyri
n Gunnar Magnússon Vesturbergi 26, Reykjavík
n Sóley Sigurbjörnsdóttir Drekavöllum 22, Hafnarfjörður
n Inga Steinlaug Hauksdóttir Þverholti 6, Akureyri
n Guðmundur Rúnar Svansson Skúlagötu 56, Reykjavík
n Steindór Tryggvason Spóarima 31, Selfoss
n Heimir Jóhannsson Garðarsvegi 16, Seyðisfjörður
40 ára afmæli
n Brynhildur Davíðsdóttir Hraunteigi 24, Reykjavík
n Ragnheiður E Ragnarsdóttir Blásölum 21, Kópavogur
n Elín Brynja Hilmarsdóttir Réttarheiði 24, Hveragerði
n Eyrún Jónasdóttir Kálfholti 2, Hella
n Bryndís Björk Karlsdóttir Vesturfold 11, Reykjavík
n Guðni Jónsson Grundartjörn 8, Selfoss
n Ágúst Ingvaldur Lárusson Egilsbraut 23, Þorlákshöfn
n Laufey Ólafsdóttir Ásbúð 94, Garðabær
50 ára afmæli
n Gintautas Guobys Háaleitisbraut 119, Reykjavík
n Wolfgang Söns Melabraut 23, Hafnarfjörður
n Aleksander Leszek Krasucki Víðilundi 14g, Akureyri
n Anna Björk Eðvarðsdóttir Fellsási 4, Mosfellsbær
n Helgi Kristófersson Leirubakka 28, Reykjavík
n Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir Sindragötu 4,
Ísafjörður
60 ára afmæli
n Arndís Finnbogadóttir Eyrargötu 6, Ísafjörður
n Sigurður Eyþórsson Háaleitisbraut 49, Reykjavík
n Sigrún Björnsdóttir Ásgötu 12, Raufarhöfn
n Guðmundur Sigurjónsson Fiskakvísl 1, Reykjavík
n Guðni Sigurbjörnsson Faxabraut 9, Reykjanesbær
70 ára afmæli
n Áslaug Hafsteinsdóttir Klettagötu 2, Hafnarfjörður
n Halldóra Marinósdóttir Hamravík 24, Borgarnes
n Hrefna Gunnarsdóttir Stífluseli 5, Reykjavík
75 ára afmæli
n Björn Haraldur Jónsson Heiðarhorni 1, Reykjanesbær
n Jón V. Jóhannesson Espihóli 1, Akureyri
80 ára afmæli
n Kristín Einarsdóttir Eiðismýri 30, Seltjarnarnes
n Ragnheiður Blöndal Birkihlíð, Blönduós
85 ára afmæli
n Kristrún Magnúsdóttir Kópavogsbraut 1c, Kópavogur
n Guðrún Nielsen Lerkihlíð 2, Reykjavík
n Stella Guðmundsdóttir Hófgerði 8, Kópavogur
IngI gunnar Jóhannsson
TÓNLISTARMAÐUR oG LEIÐSöGUMAÐUR Í REyKJAVÍK
sigurjón héðinsson
BAKARAMEISTARI Í REyKJANESBæ
Sigurjón fæddist í Keflavík og ólst þar upp.
Hann var í Barnaskólanum í Keflavík og Gagn-
fræðaskólanum í Keflavík, stundaði nám við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og síðan við Iðn-
skólann í Reykjavik, lauk þaðan sveinsprófi í
bakaraiðn og öðlaðist síðan meistararéttindi
í greininni 1985.
Sigurjón hefur stundað bakstur að meira
eða minna leyti frá 1976. Hann hóf að vinna
við bakstur í Ragnarsbakaríi í Keflavík, lærði
þar hjá Ragnari Eðvaldssyni, starfaði þar síð-
an til 1984, var síðan bakari hjá Sveini bak-
ara við Grensásveginn í Reykjavík og síðan
í Mjóddinni. Sigurjón stofnaði eigið bakarí,
Sigurjónsbakarí, í Keflavík, árið 1988 og hefur
starfrækt það síðan við Hólmgarð í Keflavík.
Sigurjón er, ásamt fleiri bökurum, hluthafi
í Innbak, er í Landssambandi bakarameistara,
er í Klúbbi bakara og er nú forseti Klúbbsins.
Þá er hann félagi í Stangveiðifélagi Suðurnesja
og mikill áhugamaður um stangveiðar.
Fjölskylda
Kona Sigurjóns er Jóhanna Kolbrún Alex-
andersdóttir, f. 24.12. 1959, matreiðslukenn-
ari við Akurskóla.
Börn Sigurjóns frá fyrra hjónabandi eru
Héðinn Sigurjónsson, f. 22.11. 1984, málari,
búsettur í Reykjanesbæ en unnusta hans er
Bryndís Bjarnadóttir; Haraldur Sigurjóns-
son, f. 28.7. 1987, starfsmaður hjá Securitas,
búsettur í Hafnarfirði; Ásdís Sigurjónsdóttir,
f. 10.7. 1991, nemi, búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Sigurjóns: Héðinn Jónsson, f.
20.10. 1932, d. 25.5. 2004, pípulagningar-
maður í Reykjavík, og Elín Guðmarsdóttir, f.
28.7. 1934, húsmóðir í Reykjanesbæ.
Sigurjón fer sér hægt á afmælisdaginn,
enda bauð hann öllum Suðurnesjamönn-
um í kökur og tertu er bakaríið varð tvítugt
1. maí sl. Þá verður mikið umleikis hjá hon-
um og við bakaríið á Ljósanótt í byrjun sept-
ember.
Ása Fanney hefur hlakkað lengi til þess að verða þrítug:
Stundin lokSinS runnin upp
„Ég er bara ofboðslega glöð með það að
vera orðin þrítug. Ég er búin að bíða lengi eft-
ir þessum degi,“ segir Ása Fanney Rögnvalds-
dóttir sem fagnar svo sannarlega þrítugsaf-
mæli sínu í dag. „Æsingurinn var meira að
segja svo mikill að ég er búin að halda af-
mælisveisluna. Ég hélt mjög vel lukkað partí
hér heima með fjölskyldu og vinum 18. júlí
síðastliðinn.“
Ása ætlar hins vegar að halda áfram að
fagna í dag og bjóða vinafólki sínu heim í
kökur og kaffi. „Ég baka að sjálfsögðu af-
mælisköku og pönnukökur sem ég lærði að
baka fyrir afmælið mitt í fyrra.“
Spurð um eftirminnilegasta afmælisdag-
inn er Ása fljót að svara: „Það var þegar ég
varð níu ára og fékk peninga í afmælisgjöf
sem ég keypti mér stórt, bleikt hjól fyrir sem
ég var ofboðslega ánægð með.“
Ása segir engar sérstakar hefðir hafa
myndast á afmælisdeginum hennar hingað
til. „Það er engin föst hefð en afmælisdag-
urinn minn hefur bara yfirleitt alltaf verið
mjög góður dagur,“ segir afmælisbarnið Ása
að lokum.
Ingi Gunnar fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp í Kleppsholtinu. Hann var í Langholts-
skóla, Ármúlaskóla, stundaði nám við MR
og lauk þaðan stúdentsprófi 1979, stundaði
skiptinám 1979-80 þar sem hann dvaldi m.a. í
klaustri hjá Benediktamunkum í Aalen í einn
mánuð. Hann stundaði síðan nám í leiðsögn
við Leiðsögumannaskóla Ferðamálaráðs og
lauk prófi í leiðsögn 1982 og stundaði nám í
landfræði við HÍ og lauk þaðan BS-prófi 1984.
Ingi stundaði síðar nám í iðnrekstarfræði við
Tækniháskóla Íslands og lauki prófi í þeirri
grein 1994.
Ingi Gunnar var sendisveinn á skellinöðru
hjá Viðlagasjóði á tímum Vestmannaeyjag-
ossins, vann í malbikun í Reykjavík á mennta-
skólaárunum, starfaði í Landsbankanum á
sumrin á háskólaárum og við auglýsingastof-
una Gylmi.
Eftir að Ingi Gunnar lauk prófum hefur
starfsferill hans að mestu snúist um tónlist
og túrisma. Hann var fyrst leiðsögumaður
hjá Ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsen á árun-
um 1982 og 1983, var síðan sölu- og markaðs-
stjóri fyrirtækisins 1984-89. Hann hefur síðan
starfað að mestu leyti sjálfstætt sem leiðsögu-
maður og landkynnir.
Ingi Gunnar stofnaði fyrirtækið Hugarflug
árið 1997 sem gefur út ljósmyndabækur fyr-
ir ferðamenn, ásamt leiðarkortum sem hann
hefur hannað sérstaklega fyrir ferðamenn.
Má þar einkum nefna kortið Reykjavík Bus
Map and City Map, sem komið hefur út fimm
sinnum.
Ingi Gunnar lærði á gítar á æskuárunum
hjá Eyþóri Þorlákssyni og Svavari Lárussyni
í Barnamúskíkskólanum. Hann hóf að leika
opinberlega á menntaskólaárunum, fyrst
með Texastríóinu, ásamt Eyjólfi Kristjánssyni
og Örvari Aðalsteinssyni og síðar með fleirum
undir heitinu Hálft í hvoru. Þá starfaði hann
mikið með Vísnavinum á árunum 1981-87,
og var formaður félagsins um skeið.
Með Hálft í hvoru hafa komið út plöturnar
Heyrðu, 1981; Almannarómur, 1982; Áfram,
1983; Götumynd, 1985 og Horft um öxl, (úr-
val af lögum) 1998. Þá hefur Ingi Gunnar gef-
ið út sólóplötuna Undir fögur augu, 1992. Þá
hefur hann spilað með hljómsveitinni Island-
icu sem hefur gefið út fjórar plötur: Rammís-
lensk, 1990; Römm er sú taug, 1995, Melódía,
1996 og Best of Islandica, 2000.
Fjölskylda
Kona Inga Gunnars er Kristín Guðmunda
Hákonardóttir, f. 13.6. 1962, sölumaður.
Dóttir Inga Gunnars og Kristínar Guð-
mundu er Eyrún Ingadóttir, f. 11.8. 2004.
Systir Inga Gunnars er Margrét Jóhanns-
dóttir, f. 5.6. 1954, grunnskólakennari í Borg-
arbyggð.
Foreldrar Inga Gunnars eru Jóhann Tóm-
as Ingjaldsson, f. 25.12. 1929, viðskiptafræð-
ingur og fyrrv. aðalbókari Seðlabanka Ís-
lands, og Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, f. 22.6.
1929, íþróttakennari og hefur kennt frúarleik-
fimi, nú hjá Laugum.
Ætt
Jóhann Tómas er sonur Ingjalds, verka-
manns og greinahöfundar í Reykjavík Tóm-
assonar, b. á Efri-Gegnishóllum í Flóa
Magnússonar. Móðir Ingjalds var Halldóra
Sigurðardóttir.
Móðir Jóhanns Tómasar var Guðrún Lilja
Guðmundsdóttir, kennara í Bræðraborg á
Stokkseyri og síðar í Reykjavík Sæmundsson-
ar. Móðir Guðrúnar Lilju var Eyrún Eiríks-
dóttir.
Ástbjörg er dóttir Gunnars, múrara í
Reykjavík Sigurðssonar, járnsmiðs í Reykjavík
Gunnarssonar. Móðir Gunnars múrara var
Ásbjörg Guðmundsdóttir.
Móðir Ástbjargar var Margrét, dóttir Ketils
Jónssonar og Stefaníu Stefánsdóttur.
50 ára í dag
50 ára í dag
Þrítug í dag
Ása Fanney var svo spennt að
verða þrítug að hún er búin að
halda afmælisveislu.
upplýsingar
um afmælisbörn
SENDA MÁ UppLýSINGAR UM
AFMæLISBöRN Á kgk@dv.is