Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2008 27Sviðsljós mánuð. Engar frekari yfirlýsingar verða gefnar um málið.“ Framhaldið af Transformers ber undirtitilinn Revenge of the Fallen og á að koma út 26. júní á næsta ári. Það er spurning hvort frumsýningin tefjist eitthvað því vinnsla hennar mun sennilega dragast töluvert þar sem Shia er aðalleikari myndarinnar. SlaSaðiSt við ölvunarakStur Skemmdur Bíllinn valt við höggið. Fyrr um daginn Shia slasaðist nokkuð illa á hendi. Leikkonan Rose McGowan mun leika aðalhlutverkið í hasar- myndinni Red Sonja. Þetta kom fram á Comic-Con-ráðstefnunni um helgina. Sögusagnir voru uppi um að McGowan myndi ekki leika í myndinni eftir sambandsslit og deilur við leikstjórann Robert Rod- riguez en hann framleiðir mynd- ina. Svo virðist sem þær sögusagn- ir hafi verið ýktar en McGowan og Rodriguez hafa sést mikið saman að undanförnu og voru meðal ann- ars á Comic-Con. Ástæður fyrir deilum þeirra áttu að vera þær að Rodriguez ætlaði að endurgera myndina Barbarella og McGowan átti að leika aðalhlut- verkið. Kvikmyndaverinu fannst hins vegar McGowan ekki rétt í hlutverkið og brást hún víst illa við því. Í kjölfarið var hætt við end- urgerðina en Red Sonja, sem var einnig á dagskrá hjá parinu, verður að veruleika. Red Sonja er byggð á samnefndri teiknimyndapersónu sem birt- ist fyrst í Conan The Barbarian en öðlaðist síðan sitt eigið líf. Gerð var mynd byggð á sögunni árið 1985 en þá lék sjálfur Arnold Schwarzen- egger aðalhlutverkið ásamt Brigitte Nielsen sem lék Sonju. asgeir@dv.is leikur rauðu S nju Rose McGowan mun leika aðalhlutverk Red Sonja þrátt fyrir sögusagnir um annað. Rose McGowan Virðist ekki vera hætt með Rodriguez. Red Sonja Er væntanleg 2009. DáleiDD til að grennaSt Courtney Love hefur nú uppljóstrað því hvernig hún fór að því að grennast svona skuggalega á skömmum tíma. Söngkonan bætti á sig þó nokkuð mörgum kílóum eftir að hún hætti allri eiturlyfjaneyslu og hafa margir furðað sig á því hversu horuð hún er í dag. Courtney segir kíló- in hafa fokið eftir að hún lét dáleiða sig. „Ég hef þekkt Paul í mörg ár. Hann er snilling- ur og hjálpar mér að halda mér grannri. Ef ég byrja að fitna fer ég bara í einn dáleiðslutíma til Pauls og hann bjargar mér.“ Öðrum finnst þó nóg komið af megruninni hjá Courtney sem er farin að líta út eins og beinagrind. kynæSanDi afmæliSgjöf Hin átján ára Hayden Panettiere kom kærasta sínum, Milo Ventimigla, heldur betur á óvart á dögunum. Leik- konan, sem fer með hlutverk klapp- stýru í Heroes-þáttunum, klæddi sig upp í klappstýrubúning og strippaði fyrir Milo í tilefni af þrjátíu og eins árs afmæli hans. Félagi Milos sagði í viðtali við slúðurblaðið The Sun: „Hayden gaf Milo ógleyman- lega afmælisgjöf fyrir framan aðra meðleikendur þeirra í þáttunum. Hún söng fyrir hann afmælissönginn í klappstýru- búningnum og þegar hún reif sig úr fötunum blasti við kynþokkafullur rauður nærfatnaður. Milo eldroðnaði yfir uppátækinu en var mjög sáttur.“ Stjörnum prýdd veisla Hver hefði trúað því að Dust- in Hoffmann og breska leikkonan Kate Beckinsale væru góðir vinir? Stórleikarinn mætti í 35 ára afmæl- isveislu leikkonunnar sem haldin var á Thompson-hótelinu í Bever- ly Hills. Kate Beckinsale var að sjálf- sögðu í skýjunum um kvöldið, en hennar nánustu vinkonur, Victoria Beckham og Eva Longoria, létu sig ekki vanta. Eiginmenn þeirra beggja mættu að sjálfsögðu með. Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria og Victoria Beckham klæddust báðar sumarlegum kjól- um, Eva var í skærgulum korselett- kjól en Victoria klæddist stuttum blómamynstruðum kjól við skær- bleika hæla. Bíður eftir vinkonu sinni Leikkonan Eva Longoria og eiginmaður hennar Tony Parker bíða eftir Victoriu Beckham og David. Það rétt sést í Victoriu stíga út úr bílnum. Sumarleg Victoria Beckham í blómlegum kjól og skærbleikum hælum. Dustin Hoffman Mætti í 35 ára afmæli Kate Beckinsale á Thompson- hótelinu á laugardaginn ásamt eiginkonu sinni Lisu Gottsegen. Afmælisbarnið Kate Beckinsale var svartklædd í afmælisveislu sinni. Á myndinni eru einnig eiginmaður hennar Len Wiseman og vinafólk þeirra hjóna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.