Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Side 28
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 200828 Fókus Aðdáendur hrollvekjukvik- mynda biðu spenntir eftir The Strangers, en kvikmyndin fékk mikið umtal eftir að stikla myndar- innar kom fyrst á netið. Áhorfend- ur kynnast parinu Kristen McKay, leikin af Liv Tyler, og James Hoyt, leikinn af Scott Speedman sem fór með eitt af aðalhlutverkum í sjón- varpsþáttaröðinni Felicity. Myndin byrjar ágætlega, þá sér- staklega út frá því sjónarhorni að áhorfandinn veit að þetta er ein- hvers konar hroll- og spennutryllir. Fyrstu tíu mínútur myndarinn- ar fylgjumst við með þessu ósköp venjulega pari sem er að ganga gegnum erfiða hluti. Þau eru ný- komin úr brúðkaupi og hafa kom- ið sér fyrir í sumarhúsi James Hoyt. Eftir rólegan kaflan hefst fjörið og það endar ekki fyrr en síðustu fimm mínútur myndarinnar. Sem spennu- og hryllings- mynd tekst henni vel til. Leik- stjórinn passar upp á það að nota öll réttu tólin til að gera áhorf- andann taugastrekktan. En grím- ur spila stór hlutverk í myndinni, bæði taugrímur og postulínsgrím- ur. Leikstjórinn passar líka upp á það að koma rispuðu plötunni og rólum og ógeðfelldum andardrætti fyrir til að vekja óhug áhofandans. Kvikmyndin er sögð vera byggð á sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað í Bandaríkjunum. 11. febrúar, 2005. Ekkert finnst um Kristen McKay og James Hoyt á netinu, en orðrómurinn segir að fjölskyldur Kristen og James hafi ekki verið samþykkar því að saga þeirra yrði sögð í þessar kvikmynd og að þau hafi ráðið til sín mann- eskju sem eyddi öllum upplýsing- um um James og Kristen af netinu. Saga þeirra kemur þar af leiðandi ekki neins staðar fram nema í gagnasafni bandarísku alríkislög- reglunnar. Það sem er ágætt við myndina er að lítið er um samtöl milli að- alpersónannna. Það er ekki verið að eyða púðri í vangaveltur þeirra um af hverju þau lenda í þessum hrikalegu atburðum. Leikstjórinn leyfir þögninni frekar að njóta sín sem einhvers konar hræðslutaktík. Hann passar einnig upp á það að nota ekki hljóðbrellur er hryllileg- ustu atvikin eiga sér stað. Áhofandinn veltir fyrir sér alla myndina hvort karakterarnir með grímurnar séu raunverulegar. Án þess að gefa mikið upp fær áhorf- andinn betri sýn á grímuklædda fólkið er líður undir lok myndar- innar. Það tekur þá einhvers kon- ar stakkaskiptum. Það má segja að kvikmyndin taki líka stakkaskipt- um á síðustu mínútunum. Áhorf- andinn er skilinn eftir með mikið af spurningum en fátt er um svör. Myndin byrjar afar vel, en ein- hvers staðar fyrir miðju missir leik- stjórinn tök á myndinni sjálfri og gerist lítið annað í tæpan einn og hálfan tíma en að aðalpersónurnar flýja undan grímuklæddum and- skotum. The Strangers á samt sem áður góða spretti sem hryllingsmynd. Þeir sem hafa gaman af því að borga fyrir að láta sér líða illa ættu ekki að láta þessa mynd framhjá sér fara. Hanna Eiríksdóttir Tvær upprennandi á Organ Hljómsveitirnar The CusTom og spiriT of moonflower spila á Organ í kvöld. The Custom komst í undanúrslit í Músíktilraunum 2007 en Spirit of Moonflower er hljómsveit sem hefur látið lítið fyrir sér fara í hinum stóra tónlistarheimi hingað til. Tónlist piltanna er lýst sem framsækinni og tilraunakenndri steinaveltu sem fer þó á köflum í hlýja mjúka móðurarma. Frítt er á tónleikana sem hefjast klukkan 21. Borgað fyrir að láta sér líða illa Sjálfsævisaga Claptons Bókin Eric Clapton sjálfsævisaga er nýkomin út hjá bókaútgáfunni Fjölva. Í tilkynningu segir að bókin hafi hlotið frábæra dóma erlendis. Hér sé á ferðinni mögnuð reynslu- saga manns sem lifði lífsháska af; manns sem komst til æðstu metorða og öðl- aðist ótrúlegan frama, þrátt fyrir mikla erfiðleika og innri glímu við fíkniefna- djöfulinn ógur- lega. Þýðandi bókarinnar er Orri Harðarson. Eins og margir vita heldur Clapton tónleika hér á landi 8. ágúst næst- komandi. Huldufólk á prenti Nýverið kom út bókin The Hidden People of Iceland eftir Terry Gunn- ell og Brian Pilkington. Þar segir frá íslenska huldufólkinu, ólíkum sög- um um tilurð þess og eðli, hátíðum þess og háttum og samskiptum við mennska menn, til forna og nú til dags. Huldufólkið er sveipað sömu dulúð nú og þegar land byggðist á Íslandi og ótal sögur, gamlar og nýj- ar, eru til af því. Höfundarnir vinna út frá þessum sögum og lýsa huldu- fólkinu í aðgengilegu máli og glæsi- legum myndum, jafnt fyrir lesendur sem þekkja til þess og þá sem aldrei hafa heyrt um það áður, eins og seg- ir í tilkynningu. Tinni end- urútgefinn Fjölvi hefur endurútgefið bæk- urnar Tinni í Ameríku og Tinni í Kongó. Í fyrrnefndu bókinni fara þeir Tinni og Tobbi, félagi hans, til Ameríku og hitta þar meðal annars fyrir Al Capone og gangstera hans sem reyna að koma þeim fyrir kattarnef. Tinni í Kongó er líklega sú umdeildasta í þessum vinsælasta bókaflokki heims þar sem margir halda því fram að í bókinni séu fordómar í garð svertingja. Hægt er að fá bækurnar á betra verði en úti í búð í vefverslun Fjölva á fjolvi.is. Marley er sannarlega óþekk- asti hundur í heimi. Allavega þekki ég engan hund sem hefur hagað sér jafnilla. En þolinmæði Grogan-hjónanna var óendanleg. Ég hefði sannarlega gefist upp. Marley og ég er sönn saga af hundi sem nefndur er í höfuð- ið á reggíkóngnum Bob Marley. John Grogan og unnusta hans voru komin á barneignaaldurinn en gátu ekki svo mikið sem hald- ið lífi í pottablómi, þegar unnust- an stakk upp á því að þau fengju sér hund til að æfa sig fyrir barna- uppeldið. Ekki mjög ábyrg afstaða, verð ég að segja, enda er hundaupp- eldi ekkert grín og þarf að taka af fullri alvöru. Þau skötuhjúin komast þó brátt að einmitt því. Hundurinn er bæði óalandi og óferjandi. Reynd- ur hundaþjálfari vísaði honum af námskeiði hjá sér og ekki mikil von til að hegðunin batnaði. Ég fann hreinlega til með Mar- ley og fannst greinilegt að hann var óhamingjusamur hundur. Par- ið þrjóskaðist þó við, sama hvað hann eyðilagði af húsgögnum, já og veggjum. John fannst bara eðlilegt að það stórsæi á hýbýlum fólks sem heldur hund. Ég hef átt hund í tæp fimm ár og það versta sem hann hefur gert er að borða nærbux- urnar mínar og pitsuafganga. Allir veggir standa enn heilir og engra stórviðgerða hefur verið þörf. Bókin hefur þó selst í gáma- förmum um víða veröld. Hunda- eigendur hafa sérstaklega tekið bókinni fagnandi, en ég held að ég hefði hreinlega látið svæfa aum- ingja Marley. Raunasaga hans verður hins vegar jólagrínmyndin vestanhafs í ár. John Grogan hafði lengi starf- að sem blaðamaður þegar hann ákvað að skrifa sögu Marleys. Í fyrra gaf hann síðan út aðra hundabók: Óþekkir hundar skemmta sér betur. Ég held samt að vel þjálfaðir hundar sem þekkja mörk sín skemmti sér allra best þar sem þeir lenda ekki í enda- lausum árekstrum við lífið. Sagan er þó ágætis afþreying og tilvalin í sumarbústaðinn. Erla Hlynsdóttir Raunasaga veRðuR gamanmynd The Strangers Grímuklæddir andskotar gera parinu Kristen og James lífið leitt í kvikmyndinni The Strangers sem byggð er á sannsögulegum atburðum. bíódómur THe STRAnGeRS HHHHH LeIKSTJóRn: Bryan Bertino AÐALHLUTveRK: Liv Tyler, Scott Speedman, Gemma Wards, Kip Weeks, Laura Margolis á Þ r i ð J U E g i bóKAdómur MARLey OG éG HHHHH HöFUnDUR: John Grogan ÚTGeFAnDI: Hólar ÞýÐInG: elín Guðmundsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.