Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Blaðsíða 14
Mánudagur 11. ágúst 200814 Neytendur Lof&Last n Lofið fær gleraugnabúðin Plusminus Optic. Viðskiptavinur fór þangað til að láta mæla sjón og fá sér linsur. Þar fékk hann framúrskarandi góða þjónustu og kennslu í að setja linsurnar í og taka þær úr. Viðskiptavinurinn fór út öruggur með linsurnar og ánægður með þjónustuna. n Lastið fær fyrirtækið Vodafone. Viðskiptavinur lenti í því að geta ekki hringt úr síma sínum. Honum var sagt að tilkynnt hefði verið að símanum hefði verið stolið, sem var alrangt. Viðskipta- vinurinn þurfti að þræta við starfmanninn í nokkurn tíma og gat ekki fengið þetta lagað nema koma og sýna skilríki. Gullinbrú 166,70 183,60 Bensín dísel Bíldshöfða 165,10 182,00 Bensín dísel Bústaðavegi 166,20 183,10 Bensín dísel Miklubraut 164,10 181,00 Bensín dísel Grafarholti 165,10 181,90 Bensín dísel Fellsmúla 165,10 182,00 Bensín dísel Lækjargötu 166,70 183,60 Bensín díselel d sn ey t i Hægt er að spara sér allt að 100 þúsund krónum með því einu að tína ber og búa til vín úr þeim. Að brugga heima verður sífellt vinsælla og segir eigandi Ámunnar, Magnús Axelsson, að heimagert vín sé alveg jafngott og úr búð. Nú þegar fjárhagur þrengist er tilvalið að spara pening með því einu að fara á berjamó. Sparaðu með bláberjunumÓdýrast í Veggsportigerð var verðkönnun á því hvað einn mánuður í líkamsrækt kostar á ýmsum líkamsræktarstöðvum. af þeim stöðum sem kannaðir voru var ódýrast að fara í Veggsport, en mánuðurinn þar kostar 8.500 krónur. dýrast er í Hreyfingu, 10.900 krónur. Hægt er að spara sér allt að 100 þús- und krónum á ári með því einu að nýta sér ávexti náttúrunnar í matar- og vín- gerð. Nú þegar fólk hefur lítið fé milli handanna er ekkert sem stendur í vegi fyrir því að búa til mat úr því sem hægt er að fá ókeypis. Bláber, krækiber, rifs- ber og rabarbari eru tilvalin í gjörning- inn. „Það er gríðarlegur fjöldi fólks sem bruggar vín sjálft og ekki að ástæðu- lausu að það kemur til mín þegar á að halda veislur,“ segir Magnús Axelsson, eigandi Ámunnar, en þar er hægt að fá allt til alls til að brugga berjavín. Margborgar sig Sá sem drekkur tvær flöskur af rauðvíni á viku þarf að kaupa sér 104 flöskur á ári. Candidato Tempranillo, 750 millilítra flaska, úr Vínbúðinni kostar 1.095 krónur. Á ári kosta þær LÍKaMSRÆKTaRSTÖÐVaR Hreyfing heilsulind 10.900 World Class Laugum 19.500 Baðhúsið 9.900 Þrekhúsið 9.900 Sporthúsið 9.900 Snyrtistofa Ágústu 8.500 HáMa fÆR HRóS „Mig langar að hrósa sérstaklega þjónustunni og góðum mat á góðu verði í Hámu á Háskóla- torgi Háskóla Íslands,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði. „Ég borða þar að minnsta kosti einu sinni í viku því ég starfa við háskólann. Þar er umhverfið mjög skemmtilegt og það er gaman að fylgjast með háskólalífinu. starfsfólkið í Hámu er líka alveg einstaklega al- mennilegt,“ segir Baldur. neytendur@dv.is uMsjón: ásdÍs Björg jóHannesdóttir, asdis@dv.is Neyte ur neytandinn áSDÍS BJÖRG JóHaNNESDóTTIR blaðamaður skrifar: asdis@dv.is Bláber Hægt er að spara allt að 100 þúsund krónum á ári með því að brugga vín úr úr berjum. BLáBERJaSuLTa 500 gr ber 1 1/2 dl vatn soðið í fimm mínútur. tekið af hellunni og berin kramin. 350 gr sykur stráð yfir smátt og smátt og soðið áfram í 10 mínútur. sett í litlar krukkur, þær fylltar alveg og lokað strax. nauðsynlegt að vera nákvæmur með suðutímann. BLáBERJaSoRBET nýmjólk 400 ml Vatn 350 ml sykur 250 gr Bláberjasaft* 300 ml Maizena-sósujafnari 20 gr sítrónusafi 4 msk. öllum efnunum í uppskriftinni nema sítrónusafa er blandað saman og hitað upp að 70°C í vatnsbaði. Haldið við það hitastig í 30 mínútur. Hrært vel í á meðan. Kælt yfir nótt. sítrónusafa er hrært út í áður en blandan er sett í ísvélina. Mikilvægt er að hræra vel í á meðan safanum er hellt varlega út í, annars getur mjólkin farið að kekkjast. sorbetinn er frystur og geymdur í frysti. 113.880 krónur. Grunnkostnaðurinn og búnaðurinn sem þarf til að brugga kostar 12.570 samkvæmt útreikning- um. Munurinn er mikill eða 101.310 krónur. „Þetta margborgar sig og tölu- vert ódýrara og gæðin eru líka orðin flott í dag. Það eru fyrirfram ákveðnir fordómar í fólki að finnast bragðið af heimabrugguðu víni eitthvað öðru- vísi en í búðum. Fólk getur líka notað hugmyndaflugið að vild með því að gera sjálft úr berjum, “ segir Magnús. Sultur, ís og te Það eru margar aðrar afurðir sem hægt er að vinna úr berjum auk víns. Vinsælust er sultan en margir gera sultur á haustin úr berjum sem þeir hafa tínt. Þegar fólk ákveður að gera vín úr berjum sem það tínir þarf það að gera grunnvinnuna sjálft. „Það þarf að kreista safann úr berjunum svo það er aðeins meiri vinna. Síðan tek- ur við ákveðin aðferð og það er í raun sama aðferð og maður notar við þau efni sem ég er að selja,“ segir Magnús. Að búa til sultur, ís og te kostar ekki eins mikla vinnu en sparar ekki mik- inn pening um leið. Hagnýt og holl Þó að gott sé að tína berin strax upp í sig í berjamó er þess virði að taka þau með sér heim og nýta í matargerðina. Bláber eru heldur ekki bara gagnleg í matinn heldur eru þau stútfull af nær- ingarefnum sem eru miklu hollari en ágætis skyndibitar. Þau innihalda vít- amín, steinefni og trefjar auk þess sem þau eru hitaeiningasnauð. Mikið er af C- og E-vítamíni, sem eru andoxun- arefni og hindra myndun skaðlegra sindurefna í líkamanum. Sindur- efni eru efni sem geta leitt til krabba- meins og æðakölkunar. Það er því full ástæða til að stinga berjunum í dós og nýta þau á þennan hagstæða máta. 25 lítra lögun af berjavíni danvino gersett. 10 lítrar af hrásaft + hratið frá henni 5 kg sykur gernæring (poki 2+3) eykur gerjunarkraftinn. Pectolase (poki 4) hjálpar til við fellingu vínsins. Vínsýra (poki V (ekki í gersetti)) þarf bara í krækiberjavín ekki önnur berjavín. 4 vel þroskaðir bananar. Vínger (poki a (1)). aðferð Best er að þvo berin í sjóðandi vatni til að drepa villigerilinn sem fylgir þeim úr náttúrunni. Berin eru svo sprengd og saft og hrat sett í gerjunarílátið. sykurinn leystur upp í sjóðandi vatni og vínsýrunni (poki V) bætt út í (bara í krækiberjavíninu). Þetta er soðið í nokkra stund og svo er maukpressuðum bönunum bætt saman við og soðið í smástund í viðbót. Hella þessu síðan í gerjunarílátið. Bæta við köldu vatni þangað til 23-25 lítra markinu er náð eða sykurflotvog sýnir 1080-1085 (80-85) en athugið að hitinn í blöndunni verður að vera á bilinu 20- 27°C. Hrærið nú Pectolase (poki 4(e)) saman við og hrærið eftir 15 mín. gernæringunni (poki 2) og Bentonit (poki 3) saman við og eftir 5 mín. gerinu (poki 1(a) líka. nú ætti gerjun að hefjast á 1-2 dögum (ef ekki, hafið þá samband). Best er að hafa 20-25°C hita í herberginu sem gerjunarílátið er í. Hrærið daglega í löguninni (helst kvölds og morgna) og þegar kröftug gerjun hefur staðið yfir í 3-4 daga umhellið þá löguninni þannig að hratið skiljist frá. ef hratið er látið vera of lengi í löguninni kemur beiskt bragð af kjörnunum og spillir það víninu. Látið vínið gerja alveg út (1000-995 (0-5)). (atH ekki má nota saft sem inniheldur rotvarnarefni.) *Uppskrift frá Ámunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.