Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Blaðsíða 19
Mánudagur 11. ágúst 2008 19Sport
Íslandsmeistari Í 3. deild Knattspyrnufélagið Framherjar
smástund, eða KFs, frá Vestmannaeyjum sem leikur í 3. deildinni
var með Íslandsmeistara í handbolta í markinu síðastliðið föstu-
dagskvöld. Eyjapeyinn Kári Kristján Kristjánsson sem er núverandi
Íslandsmeistari í handbolta með Haukum lék síðustu 70 mínúturn-
ar með KFs í leik gegn Berserkjum á Víkingsvellinum. Kári sem er á
annan metra á hæð og ríflega 100 kíló átti ekki í miklum vandræð-
um með háloftaboltana og greip allt sem inn í teiginn kom eins
og sönnum línumanni sæmir. Honum tókst þó ekki að koma í veg
fyrir jöfnunarmark Berserkja sem kom í uppbótartíma.
Umferðir 8-14 gerðar Upp Í hádeginu í dag verður tilkynnt val fjöl-
miðla um úrvalslið umferða 8-14 í Landsbankadeildinni. Einnig verður
valinn besti leikmaður umferðanna, besti þjálfari ásamt besta dómara eins
og vaninn er og þá fá bestu stuðningsmennirnir verðlaun frá Landsbank-
anum. guðmundur steinarsson úr Keflavík var valinn besti leikmaður
umferða 1-7 og þjálfari Keflavíkur, Kristján guðmundsson, sá besti. Einnig
fengu stuðningsmenn Keflavíkur verðlaun fyrir sinn þátt í mótinu.
Örn eKKi Í Úrslit
sundkappanum Erni arnarssyni tókst
ekki ætlunarverk sitt að bæta sjö ára
gamalt eigið Íslandsmet í 100 metra
baksundi á Ólympíuleikunum í
Peking. Hann synti á 56,15 sekúndum
og varð þriðji í sínum riðli í undanrás-
unum. Íslandsmet hans er 54,75
sekúndur sem hann setti þegar hann
vann til silfurverðlauna á heimsmeist-
aramótinu í Japan árið 2001. Hundrað
metra baksund er besta grein arnar
en hann varð í 35. sæti af 45
keppendum. Örn keppir í 100 metra
skriðsundi á morgun.
slaKt HJÁ erlU
Erla dögg Haraldsdóttir var langt frá
því að komast í undanúrslit í 100
metra bringusundi á Ólympíuleikun-
um í Peking. Hún synti á 1:11,79
mínútum en það er yfir sekúndu
slakara en Íslandsmetið sem hún setti
fyrr í ár. Erla varð í 40. sæti af
49 keppendum en synda
þurfti á rétt rúmlega
einni mínútu og átta
sekúndum til að komast
áfram. Erla var um
þremur sekúndum frá
því. Hún keppir í 200
metra
fjórsundi í
hádeginu í
dag.
BlaKe Úr leiK
sarah Blake Bateman hefur lokið
þátttöku sinni á Ólympíuleikunum
en henni tókst ekki að komast í
undanúrslit í 100 metra baksundi.
sarah Blake er Íslandsmethafi í
greininni en hún synti í Peking á
1:03,82 mínútum sem er tæpri hálfri
sekúndu frá Íslandsmeti hennar í
greininni. Hún kom síðust í mark í
sínum riðli og varð í 41. sæti af 49
keppendum. sarah Blake er frá
Flórída í Bandaríkjunum en keppir
fyrir hönd Íslands.
sigUr HJÁ sigga
sigurður Jónsson og lærisveinar í
djurgarden unnu langþráðan sigur í
gærkvöldi þegar þeir báru sigurorð
af Malmö, 2-1. Þetta var fyrsti sigur
sigurðar síðan í apríl og er liðið nú
með 21 stig í 10. sæti deildarinnar,
sjö stigum frá falli. Það var daniel
sjölund sem bjargaði starfi sigurðar
að mati sænskra fjölmiðla þegar
hann skoraði sigurmarkið á 82.
mínútu gegn Malmö.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta
fer vel af stað á Ólympíuleikunum í
Peking. Strákarnir lögðu Rússa 33-
31 í fyrsta leik sínum aðfaranótt
sunnudags og mæta Þýskalandi í
hádeginu á morgun. Guðmund-
ur Guðmundsson landsliðsþjálfari
var búinn að segja fyrir leikinn að
hann hefði minni áhyggjur af sókn-
arleiknum og það kom á daginn
að hann hafði rétt fyrir sér. Einnig
gerðist það sem gerist ekki oft. And-
stæðingurinn var með töluvert sla-
kari markvörslu en íslenska liðið.
Rússneska liðið sem sam-
anstendur af félagsliðinu Medvedi
auk tveggja annarra leikmanna
náði sér aldrei á strik í gær. Mikið
af því verður þó að setja á reikning
íslensku piltanna sem áttu oft ekki
erfitt með að finna glufur á vörn
Rússanna og léku vörnina ágætlega.
Þar fór Alexander Petterson mikinn
og gerði Rússunum lífið leitt. Mar-
kvarslan var engin til að byrja með
og var Hreiðar Levy tekinn af út af
eftir 10 mínútur og hafði þá ekki
varið skot. Markvarslan skánaði að-
eins með Björgvini Páli.
góð byrjun
Íslenskir stuðningsmenn lands-
liðsins hafa vanist því að sjá lið-
ið lenda nokkur mörk undir í byrj-
un leiks en sú var ekki raunin gegn
Rússlandi. Strákarnir komu ein-
staklega vel stemmdir til leiks og
með Snorra Stein Guðjónsson í far-
arbroddi náði Ísland strax 4-1 for-
ystu. En eins og venjan er hleyptu
þeir spennu í þetta og leyfðu Rúss-
um að jafna, 8-8. Þá tók Ísland aftur
kipp þegar Björgvin Páll varði tvo
bolta. Um það munaði í hraðaupp-
hlaupunum og leiddi Ísland í hálf-
leik 19-16.
Kaflaskipt
Eftir hraða, fjöruga og mistæka
fyrstu mínútu í síðari hálfleik skor-
aði Ísland fyrstu tvö mörkin og náði
fimm marka foyrstu. Þar átti lið-
ið að ganga á lagið og klára leik-
inn gegn ráðvilltum Rússum sem
vissu hvorki hvað snéri upp né nið-
ur. Þá kom hinn frægi slæmi leik-
kafli. Logi Geirsson var settur inn
á til að skjóta rússneska björninn í
kaf en tvö slök skot hans sem voru
varin hleyptu Rússum í tvö auð-
veld hraðaupphlaupsmörk. Það
gaf þeim kraft til að koma til baka
og minnka muninn í 22-21 og var
farið að fara um alla sem á horfðu
um miðdimma nótt. Sem betur fer
sýndi liðið mikinn karakter að ná
frumkvæðinu aftur. Ísland náði sjö
marka forskoti sem það reyndar
missti niður í tvö mörk en landaði
sigri, 33-31.
ÍSLENSKUR SIGUR Á
RÁÐVILLTUM RÚSSUM
Íslenska landsliðið í handbolta byrjar Ólympíuleikana með sigri en liðið lagði Rússa
33-31 í fyrsta leik sínum í B-riðli. Ísland náði forskotinu strax í byrjun og hélt því til
loka. Sterkur sóknarleikur mestallan leikinn og prýðisframmistaða Björgvins páls
gústavssonar í síðari hálfleik lönduðu sigrinum. Ísland mætir heimsmeisturum
Þýskalands í næsta leik.
tÓmas ÞÓr ÞÓrðarsOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
sáttir sturla ásgeirsson lék
ágætlega í sínum fyrsta leik
á ólympíuleikum. Hann var
ánægður eins og restin af
strákunum.
Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari í hand-
bolta, var ánægður með sigur Ís-
lands á Rússum í fyrsta leik liðsins
á Ólympíuleikunum. Guðmundur
var ásamt strákunum nýkominn úr
boði hjá menntamálaráðherra þeg-
ar DV náði í skottið á honum. Ísland
komst yfir 4-1 í leiknum og lét það
forskot aldrei af hendi.
„Strákarnir voru mjög vel
stemmdir og lausir við allan óþarfa
skrekk við upphaf móts. Við náðum
fínni byrjun í leiknum og með sigr-
inum náum við enn betri byrjun á
leikunum. Það var mjög mikilvægt
að sigra þetta lið því Rússland er
sterkur mótherji,“ sagði Guðmund-
ur en íslenska liðið hélt forystunni
allan leikinn þó Rússarnir næðu í
tvígang mjög góðum köflum.
„Við héldum forskotinu allan
tímann sem er mjög sterkt. Hand-
boltaleikir eiga það til að sveiflast og
vera kaflaskiptir en það sem er best
er að vörnin batnaði eftir því sem
á leið leikinn og var í síðari hálfleik
mjög góð. Sóknarleikurinn var fyrir
utan svona tvo fimm mínútna kafla
mjög góður líka. Það komu samt
þarna kaflar þar sem við mis-
stum niður forskotið sem við
vorum búnir að byggja upp
og það er eitthvað sem við
þurfum að laga. Við skoruð-
um samt 33 mörk sem
er gott,“ sagði
Guðmund-
ur sem sagði
kæruleysi
ekki hafa
kostað
að íslenska liðið missti niður sjö
marka forskot í tvö mörk undir lok
leiksins. „Það er samt eitthvað sem
við þurfum að laga því þetta hefði
getað orðið mjög dýrt,“ sagði Guð-
mundur.
Guðjón Valur Sigurðsson lék
ekki með í leiknum vegna meiðsla
á ökkla sem hann hlaut á æf-
ingu. „Það ætti að koma í ljós
á morgun hvort hann verður
leikfær gegn Þjóðverjum. Við
verðum með æfingu seinni-
part dags að okkar tíma þar
sem við munum meta það,“
sagði Guðmundur við DV
að lokum. tomas@dv.is
Góð byrjun á leiknum oG mótinu
guðmundur guðmundsson var ánægður með sigurinn:
guðmundur guð-
mundsson Búinn að
landa fyrsta sigrinum á
þessum leikum.
ekki tapa sér í gleðinni
Ísland er betra lið en Rússland
og á að sigra það undir eðlileg-
um kringumstæðum. Það er frá-
bært fyrir liðið að byrja á sigri og
sýna þann karakter sem það gerði
í leiknum. Þessi sigur gefur þó eng-
in fyrirheit um það sem koma skal
því næst mætum við tveimur lið-
um sem okkur hefur gengið ein-
staklega illa með, Þýskalandi og
Danmörku. Þá má ekki gleyma því
að Egyptaland er með okkur í riðli
en það lagði Ísland sannfærandi á
æfingamóti fyrir skömmu. Egyptar
eru illrviðráðanlegir og gerðu jafn-
tefli gegn Dönum í fyrsta leik sín-
um á mótinu.
FRÁBÆR FYRRI
HÁLFLEIKUR
LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS!