Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2008, Blaðsíða 25
Mánudagur 11. ágúst 2008 25Flugan
Clapton, Slow hand
og íSlenSkt erfðamengi
Þá er þrammar litrík
gleðiganga eftir henni miðri
þar sem hýrir sletta úr klauf-
um og eru hylltir af andag-
tugri alþýðunni sem raðar
sér upp á gangstéttunum,
með sveigjanlegan svip si-
vilíseraða heimsborgarans.
Býfluga mætti að sjálfsögðu
í sínu fínasta pússi, tyllti
sér á öxl herramanns sem
var í gervi Amy Winehouse
og dillaði sér við dunandi
taktinn niður allan Lauga-
veginn og dáðist af spengi-
legum gaurum í bleikum
spandexgöllum og reffi-
legum leðurklæddum gell-
um sem yljuðu mótorfáka á
milli læra sér. Fannst frábært
að sjá Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur marsera í hýru
göngunni í hárauðum stutt-
um jakka. Efast um að marg-
ir utanríkisráðherrar annarra
ríkja fari í hennar fyrirmynd-
arfótspor.
Var hneyksluð þegar ég
sá merkt stæði við Ingólfs-
torg sem eru frátekin fyr-
ir vélhjól eftir klukkan 18
og merkt Reykjavíkurborg. Í
hvaða kreðsu er þetta lið sem
heldur vöku fyrir býflugu á
draggkeppni
og draugar
í íSlenSku óperunni
Árleg Draggkeppni Íslands fór fram í vikunni í Ís-
lensku óperunni sem gaf viðburðinum viðeigandi
umgjörð og dálítið „royal“ andrúmsloft. Keppn-
in hét að þessu sinni Draugagangur í Óperunni.
Fimm strákar og þrjár stelpur kepptu og sérlega vel
valin dómnefnd var að
störfum sem í áttu sæti
meðal annarra þær
Hera Björk Þórhalls-
dóttir söngkona og
Ilmur Kristjánsdóttir
leikkona. Kynnirinn var
sjálfur Haffi Haff sem er
orðinn mjög áberandi
í reykvísku skemmt-
analífi. Alls voru 14
sýningaratriði og var
þetta stærsta keppnin til
þessa. Sigurvegarar síð-
ustu keppni kvöddu tit-
ilinn með frábæru atriði
og rífandi stemning var í
höll óperunnar.
frumSýning og
kóSíheit í kaaber
kaffibrennSlunni
Býfluga flaug við í gamla Kaaberhúsinu við Sætún
á föstudagseftirmiðdaginn þar sem myndalistakon-
an Katrín Friðriks sýndi verk sín og við það tæki-
færi var frumflutt nýja lagið We can fly sem skartar
NAVIA-röddunum og hinum heimsfræga Youssou
N´Dour (rödd Afríku frá Senegal). Í gegnum listir
tengja framkvæmdakonur Norðurlönd og Afríku
saman og gáfu tóninn frá Reykjavík. Viðstaddur var
Ólafur F. Magnússon, virðulegur í flottum gráum
jakkafötum en Egill Ólafsson stórsöngvari
var eilítið sumarlegri í gallabuxum og hvítum
hörjakka. Mætt voru einnig rithöfundurinn
Andri Snær Magnason og Rúna Magnúsdóttir
kraftaverkakona sem rekur tengslanetið tengj-
umst.is ásamt söngvurunum Helga Björns og
Sverri Guðjónssyni. Jónína Benediktsdóttir
líkamsræktarfrömuður var flottasta konan
á samkomunni – tággrönn og stelpuleg í
gallabuxum með geislandi bros.
Fyrr í vikunni stimplaði ég mig inn á
frumsýningu íslensku kvikmynd-
arinnar Skrapp út sem er í leik-
stjórn Sólveigar Anspach og með
snillinginn Diddu í aðalhlutverki.
Ræman er bráðfyndin mynd um Önnu
Hallgríms sem er skáld, uppvaskari og
maríjúnasali sem á enga ósk heitari en
að ferðast um heiminn með sonum sín-
um. Myndin er samframleiðsluverkefni
Zak kvikmynda og Ex Nihilo.
Flugan Fór víða um helgina:
Eric Clapton hélt fjölmenna
tónleika í Egilshöll og var það
nógu merkilegur viðburður til
þess að býfluga yfirgæfi heittel-
skaðan miðbæinn sinn og flygi
rakleiðis upp í sveitina. Meist-
arinn olli ekki vonbrigðum þótt
sumir tónleikagesta kvörtuðu
um að ekki væri nógu mikið
stuð og að flutningurinn væri
sálarlaus. En þeir sem þekkja
Clapton vita að hann er eng-
inn sprellikarl. Hann tekur þetta
bara á kúlinu – með „slow hand“.
Magni Rokkstar var á svæðinu
og var alveg að skilja sinn
mann Clapton. Eðal-
kokkurinn Siggi Hall
og fjölskylda voru
líka kát með kons-
ertinn.
Fyrr um dag-
inn þegar bý-
fluga var að
kaupa sér ný
leðurstígvél
og gallabux-
ur fyrir tón-
leikana spott-
aði hún ýmis
kunnugleg and-
lit í bænum eins
og Hugleik Dags-
son skrípó-skríb-
ent, sem er löngu
búinn að leggja grænu úlpunni
með loðkragahettunni og er
nú alltaf töff í tauinu, viðtals-
drottninguna okkar á DV – hana
Sirrý, Möggu Pálma kórstjóra
og Braga Kristjónsson bóksala.
Og eftir Austurstrætinu stikuðu
síðan Hörður Torfason tónlist-
armaður og Kári Stefánsson for-
stjóri Íslenska erfðamengisins.
Já, það var sannarlega ástæða til
að fagna fjölbreytileika mann-
fólksins í dag ...
Eric Clapton
slow hand ...
Siggi Hall og fjölskylda Voru
ánægð með frammistöðu Claptons.
Býflugan
Ari Edwald Forstjóri 365
miðla og hans fagra frú létu
kappann Clapton ekki fram
hjá sér fara.
Magni alltaf magnaður.
Þvílíkt hönk!
ungfrú reykjavík er Svo hýr
... einn dag á ári
Thor Vilhjálmsson
rithöfundurinn og
menningarunnandinn
mætti að sjálfsögðu á
frumsýningu íslensku
myndarinnar skrapp út.
sumarnóttum, með ægilegum drunum og
inngjöfum fyrir utan svefnherbergisglugg-
ann hennar. „Svona er að búa í miðbæn-
um!“ segja Grafarvogsbúar drjúgir með sig
og ulla á mig. En, bara halló! Mótorhjól eiga
einfaldlega ekki heima í miðbænum. Nema
þegar um er að ræða hópreið hjá Gay Pride
meðlimum ...
Didda stórleikkona Hér
með leikstjóranum, sólveigu
anspach, á frumsýningu
kvikmyndarinnar skrapp út.
Fáklæddir fegurðarsvein-
ar Fóru höndum um
draggdrottninguna.
Vinningshafarnir draggdrottning Íslands í gervi
söngkonunnar og villingsins amy Winehouse og
sveitalúðinn sem var valinn draggkóngurinn.