Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 4
miðvikudagur 13. ágúst 20084 Fréttir
Að eiga og elska heimsins versta hund
-Mjög fyndin ástarjátning
... Í bókinni Marley og ég
er viðfangsefninu lýst af
hlýju ... gamansemi og
ástúð.
New York Times
-Fyndin og hjartnæm saga um
fimmtíu kílóa Labrador sem
var jafn tryggur og elskulegur
og hann var óþekkur.
People
-Hugsanlega hugljúfasta bók
ársins. Sannarlega
hundavinabók ársins.
USA Today
MARLEY OG ÉG er bók sem allir
hundaáhugamenn verða að lesa
- og hinir líka.
Marley og ég
John Grogan
Að eiga og elska
heimsins versta hund
Á metsölulista New York
Times Frum-
útgáfa í
kilju
HÓLAR
FH getur grætt tugi milljóna króna á leiknum við Aston Villa:
Heimaleikurinn er gullpottur
Ef uppselt verður á leik FH og
enska úrvalsdeildarliðsins Aston
Villa, í Evrópukeppni félagsliða sem
fram fer á Laugardalsvelli á morgun,
geta FH-ingar átt von á því að fá vel
á þriðja tug milljóna króna í kass-
ann vegna leikisins við enska lið-
ið. Þegar hafa um sex þúsund mið-
ar selst og gera forsvarsmenn FH
sér vonir um að seljist upp á leikinn.
Miðarnir sem eru í boði á leikinn
kosta á bilinu 2.000 til 3.000 krón-
ur, eftir því í hvar áhorfendur sitja.
Pétur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Knattspyrnudeildar FH, forð-
ast að nefna ákveðnar upphæðir í
þessu samhengi og segir ekki rétt að
tala um það á þessum tímapunkti.
Hann bendir á að eftir standi að
FH-ingar hafi þurft að leigja Laug-
ardalsvöll fyrir leikinn ásamt því að
þeir fái engar tekjur fyrir seinni leik
liðanna, sem fram fer í Birmingham
seinna í mánuðinum.
FH fær einnig tekjur af sjónvarps-
rétti á heimaleiknum, því hann verður
meðal annars í beinni útsendingu á
Stöð 2 sport og á bresku almennings-
sjónvarpsstöðinni Channel 5. Pét-
ur býst þó við því að leikurinn verði
aðeins sýndur á svæðinu í kringum
Birmingham, heimaborg Aston Villa.
„Við lítum bara á þetta sem stórt
ævintýri, það yrði frábært ef það yrði
uppselt og við óskum þess,“ segir Pét-
ur og bætir við: „Það eru hins vegar
óverulegar upphæðir sem við fáum
fyrir sjónvarpsréttinn ytra. Þetta eru
ekki neinar upphæðir samanbor-
ið við það ef við hefðum mætt þýsku
liði í Evrópukeppninni. Þar eru mestu
peningarnir.“
Sem fyrr segir er enn hægt að fá
miða á leikinn, en þetta er í fyrsta
skipti í mörg ár sem íslenskt lið dregst
á móti ensku úrvalsdeildarliði í Evr-
ópukeppninni. valgeir@dv.is
Ekki tóm stúka tekjur af aðgangseyri
eru vanalega aðeins lítið brot af tekjum
knattspyrnuliða á Íslandi.
Hollendingar vilja
dularfullu skútuna
Hollenska tryggingafélagið Dextton
heldur því fram að þeir séu eigend-
ur að skútunni Ely sem legið hef-
ur við landfestar á Höfn í Horna-
firði síðan í september. Skútan sé í
raun stolin. Dextton hefur vitað af
skútunni hér á landi í nokkra mán-
uði. Þeir hins vegar geta ekkert gert
vegna seinagangs í kerfinu hjá Evr-
ópulögreglunni, Europol. Dextton
hefur komið öllum upplýsingum
um skútuna til hollensku lögregl-
unnar sem lét Europol hafa þær
upplýsingar sem kom þeim áleiðis
til alþjóðadeildar lögreglunnar hér
á landi.
Aðþjóðadeild skoðar Ely
Alþjóðadeild lögreglunnar hér
á landi hefur haft mál skútunnar
Ely til meðferðar. Hefur reyndar
haft það í marga mánuði. Grunur
leikur á að skútan sé stolin og sé
í raun skútan Elysee sem hvarf frá
Hollandi seint í september á síð-
asta ári. Skömmu eftir hvarf henn-
ar birtist hún við höfnina á Höfn í
Hornafirði.
Tryggingafélag skútunnar,
Dextton, hefur verið að leita skút-
unnar síðan þá. DV hafði samband
við Dextton sem sagði að þeir
vissu að skútan lægi hér við land.
„Við höfum vitað af henni á Íslandi
í marga mánuði. Hins vegar þeg-
ar við létum hollensku lögregl-
una fá allar upplýsingar kom upp
eitthvað leyndardómsfullt dæmi
frá Europol. Þeir sýndu skútunni
mikinn áhuga,“ segir Menno den
Drijver hjá Dextton.
Allsherjar misskilningur
Alþjóðadeild lögreglunnar hér
á landi staðfesti að trygginga-
félagið Dextton væri í raun eig-
andi skútunar Ely. Þeir hafi bent
tryggingafélaginu á að ef þeir vilji
fá skútuna sé lítið mál að koma
hingað til lands og ná í hana. Ein-
faldast væri að hafa samband við
viðkomandi yfirvöld á Höfn til að
gera upp hafnargjöldin.
Jónas Árni Lúðvíksson, eig-
andi skútunar Ely, hefur sagt að
þetta sé hins vegar einn allsherj-
ar misskilningur. Og heldur því
enn statt og stöðugt fram. „Lög-
fræðingur minn er bara að reyna
að leiðrétta þennan misskilning
sem er í gangi. Ég er búinn að
vera senda þeim tölvupóst þarna
fyrir austan og ríkislögreglustjóra
því þeir vilja enn meina að hún
sé stolin. En ég er bara með lykla,
pappíra og verksmiðjunúmer.
Þetta er ekkert báturinn sem þeir
eru að leita að. Þetta er því bara
misskilningur sem þarf að leið-
rétta.“
BEnEdikt BóAs hinRiksson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
„Hins vegar þegar
við létum hollensku
lögregluna fá all-
ar upplýsingar kom
upp eitthvað leynd-
ardómsfullt dæmi frá
Europol.“
Skútan Ely, sem hefur verið kyrrsett síðan í september við höfnina í Höfn í Horna-
firði, er enn skráð stolin hjá hollenska tryggingafélaginu Dextton. Tryggingafélagið
vill meina að Ely sé í raun skútan Elysee. Íslenskur eigandi skútunnar, Jónas Árni
Lúðvíksson, segist geta sannað að hann hafi staðið löglega að kaupunum. Alþjóða-
deild lögreglunnar er með málið til rannsóknar.
Eigandinn skuldar hafnargjöld skútan Ely hefur verið bundin við landfestar
síðan síðastliðið haust og skuldar eigandinn töluverða upphæð í hafnargjöld.
kom í september í fyrra skútan Ely hvarf
frá Hollandi í september síðastliðnum.
skömmu síðar birtist hún hér.
Of dýrt að
keyra hratt
Lögreglan á Blönduósi átti
nokkuð náðugan dag í gær. Lít-
ið var um hraðakstur enda er
orðið dýrt að aka hratt. Bæði
vegna sektarinnar og eldsneyt-
isverðs. Ef ökumaður er stopp-
aður á 110 kílómetra hraða
má hann búast við sekt upp á
tuttugu og tvö þúsund krónur.
Flestir þeirra sem Blönduós-
lögreglan hefur haft afskipti
af í sumar hafa verið erlend-
ir ökumenn. Geta þeir greitt
sektina á staðnum enda þýddi
lítið að vera senda sekt til Ít-
alíu, Þýskalands eða Englands.
Flestir lögreglubílar eru með
posa þar sem lögreglan getur
tekið á móti sektargreiðslum.
Veðrið lék við flesta lands-
menn í gær og samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar á
Blönduósi virðast Íslendingar
keyra hægar í blíðviðri.
Rólegt eftir
Þjóðhátíð
Lögreglan í Vestmanna-
eyjum hafði það náðugt í gær.
Eða svo til. Lítið var að gera
sem lögreglumönnum finnst
best. Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni í Vest-
mannaeyjum er yfirleitt ró-
legt að gera hjá þeim eftir að
Þjóðhátíð lýkur. Fara þá flestir
Eyjapeyjar í langþráð frí út um
hvippinn og hvappinn. Ágúst-
mánuður hefur því í gegnum
árin verið með allra rólegasta
móti í Vestmannaeyjum.
samstarf við
grænland
Utanríkisráðuneytið og
Ísafjarðarbær hafa undirrit-
að viljayfirlýsingu um að úttekt
verði gerð á möguleikum þess
að koma á auknum samskiptum
og viðskiptum milli Grænlands
og Ísafjarðar. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir heimsótti Grænland
á dögunum og sá tækifæri til
aukins samstarfs við Íslendinga.
Ísafjörður gæti þjónustað fyrir-
hugaða námuvinnslu á Austur-
Grænlandi, en þaðan er styst að
fljúga til Íslands til að fá vistir
fyrir verkamennina í námunum.
Ísafjarðarbær og utanríkisráðu-
neytið leggja jafnháa upphæð
í úttektina sem á að kosta um
eina milljón króna.
InnlEndarFréttIr
ritstjorn@dv.is