Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Qupperneq 6
miðvikudagur 13. ágúst 20086 Fréttir
„Við áætlum að útgjöldin á þessu
ári verði um 800 milljónir. Það er
tæplega tvöföldun á útgjöldum
sjóðsins frá síðasta ári,“ segir Björg-
vin Steingrímsson, deildarstjóri hjá
Ábyrgðarsjóði launa.
Veruleg aukning varð á útgjöld-
um sjóðsins á öðrum ársfjórð-
ungi en úr sjóðnum fær launafólk
greiðslur sem misst hefur vinnuna
vegna gjaldþrots.
Þúsund á þessu ári
„Síðustu þrjú eða fjögur ár hef-
ur verið hægt að telja hópuppsagn-
ir á fingrum annarrar handar, eða
því sem næst. Það eru oft um fimm
slíkar á ári. Núna horfum
við hins vegar upp á mikla
aukningu,“ segir Karl
Sigurðsson, forstöðu-
maður vinnumála-
sviðs hjá Vinnu-
málastofnun.
Nærri lætur
að eitt þús-
und manns hafi verið sagt upp í
hópum á þessu ári. Þar telja mest
uppsagnir hjá fyrirtækjum á borð
við Icelandair, Stafnás, HB Granda,
Ræsi, Glitni, Kaupás og Flugþjón-
ustuna á Keflavíkurflugvelli en
þessi fyrirtæki hafa samtals sagt
upp um 670 manns á þessu ári.
130 á mánuði
Sextán fyrirtæki hafa tilkynnt
um hópuppsagnir það sem af er
árinu. Nærri lætur að ríflega 130
manns sé sagt upp í hópum í
hverjum mán-
uði. Þar eru að sjálfsögðu ekki tald-
ar einstaka uppsagnir fyrirtækja.
Undir hópuppsagnir flokkast
uppsagnir að minnsta kosti tíu
starfsmanna í fyrirtækjum sem
venjulega hafa fleiri en tuttugu
og færri en hundrað starfsmenn í
vinnu. Hjá stærri fyrirtækjum þarf
að segja upp tíu prósentum starfs-
fólks svo það teljist hópuppsögn.
Icelandair er það fyrirtæki sem
sagt hefur flestum upp á árinu, eða
207 manns.
Gjaldið nægir
Björgvin segir að þegar stærri
fyrirtæki þurfi að skera niður með
þessum hætti séu milljónirnar
fljótar að streyma út. „Við höfum
á þessu ári fengið stórar uppsagn-
ir þar sem 70 til 100 manns missa
vinnuna á einu bretti. Þetta telur
fljótt og hefur auðvitað töluverð
áhrif á sjóðinn,“ segir hann. Ábyrgð-
argjald er sjálfstætt gjald sem inn-
heimtist með tryggingagjaldi, sem
launagreiðendur
greiða
til ríkissjóðs sem hlutfall af laun-
um. Það er 0,1 prósent nú.
Björgvin segir að ábyrgðargjald-
ið eigi að nægja til að standa undir
auknum útgjöldum sjóðsins, eins
og útlitið sé í dag. Sjóðurinn hefur
undanfarin tvö ár skilað 150 millj-
óna króna afgangi sem hann hefur
notað til að greiða niður eldri skuld
við ríkissjóð. Skuld upp á 680 millj-
ónir hafi myndast þegar ábyrgðar-
gjaldið var lægra, eða 0,04 prósent.
Aukið atvinnuleysi
Atvinnuleysi hefur aukist sam-
hliða fjölgun hópuuppsagna. Á
höfuðborgarsvæðinu eru nú um
1.500 manns skráðir atvinnulausir
en á landinu öllu eru liðlega 2.500
atvinnulausir. Á sama tíma í fyrra
voru atvinnulausir á landinu um
1.500.
Útgjöld úr Ábyrgðarsjóði launa munu líklega tvöfaldast á þessu ári, miðað við síðasta ár. Björgvin Steingrímsson,
deildarstjóri sjóðsins, segir milljónirnar fljótar að streyma út þegar stór fyrirtæki fara á hausinn. Karl Sigurðsson,
forstöðumaður vinnumálasviðs hjá Vinnumálastofnun, segir hópuppsögnum hafa fjölgað mikið á árinu.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Milljónirnar streyMa út
„Við höfum á þessu ári
fengið stórar uppsagn-
ir þar sem 70 til 100
manns missa vinnuna
á einu bretti. Þetta tel-
ur fljótt og hefur auð-
vitað töluverð áhrif á
sjóðinn.“
Hópuppsögnum hefur fjölgað
mikið á þessu ári að sögn karls
sigurðssonar hjá vinnumálastofnun.
dv mYNd karl PeterssoN
Sögðu upp 207 manns
icelandair hefur flestum
sagt upp á árinu.
Harðnar í ári Byggingariðnaðurinn fer
ekki varhluta af samdrættinum. Hann bitn-
ar einna verst á verkamönnum, fiskverk-
endum og starfsfólki í fluggeiranum.
dv-mYNd stefáN karlssoN
Einar Magnússon, tannlæknir í
Reykjanesbæ, sem liggur undir grun
um stórfelld fjársvik hjá Trygginga-
stofnun ríkisins, segist ekkert hafa
heyrt frá rannsóknardeild lögregl-
unnar á Suðurnesjum, varðandi gang
rannsóknarinnar á málinu gegn hon-
um. Einar liggur undir grun um að hafa
hagrætt reikningum sínum yfir fjórtán
ára tímabil og svikið út milljónir króna.
Hann veit ekki hvernig rannsókninni
miðar. Tryggingastofnun kærði hann í
september árið 2006 og lögreglurann-
sókn á málinu hófst í byrjun síðasta ár.
Nú eru liðin tæp tvö ár frá því stofn-
unin kærði hann fyrir meint brot. Ein-
ar hefur áður lýst yfir óánægju sinni
með ásakanir Tryggingastofnunnar
og seinagang rannsóknarinnar. Hann
kveðst saklaus af ásökununum. Þegar
DV ræddi við hann í gær, sagðist hann
ekki hafa fengið fregnir af málinu um
nokkurra mánaða skeið. Aðspurður
um hvað honum finnist um að hafa
málið hangandi yfir sér í slíkri óvissu,
svarar hann því til að hann sé þolin-
móður maður. Hann vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um málið.
Eyjólfur Kristjánsson, lögfræð-
ingur lögreglunnar á Suðurnesj-
um, segir að að nú sjái fyrir endann
á rannsókninni. „Þetta er umfangs-
meiri rannsókn en menn gerðu sér
grein fyrir í upphafi. Hún er hins
vegar á lokastigi núna.“ Eyjólfur seg-
ir of snemmt að segja til um hvort
ákæra á hendur Einari verði gefin út.
Það verður gert þegar rannsókninni
verður lokið. „Það er óvarlegt að tjá
sig um líkurnar á því að gefin verði
út ákæra á þessu stigi. Við verðum
að rannsaka svona mál til sektar eða
sýknu og rannsókninni ætti að ljúka
ekki síðar en í næsta mánuði, að öllu
óbreyttu,“ segir Eyjólfur. Hann vill
ennfremur ekki tjá sig um hversu
háa upphæð Einar er grunaður um
að hafa svikið út hjá Tryggingastofn-
un ríkisins. valgeir@dv.is
Rannsókn á meintum fjársvikum Einars Magnússonar á lokastigi:
Óvíst hvort ákært verður
Tannlæknir rannsókn á málinu hefur
tafist mikið. myndin tengist fréttinni ekki
beint.