Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Side 29
Tónsmíð og
handriTaskrif
miðvikudagur 13. ágúst 2008 29Fólkið
„Þetta er alls ekki grín, við tökum
okkur mjög alvarlega en ég hef
svo sem orðið var við það að fólki
finnst þetta svolítið fyndið og það
er líka bara gaman,“ segir Víking-
ur Kristjánsson leikari um hljóm-
sveitina Find a dog. Víkingur er í
hljómsveitinni ásamt Arnóri Heið-
ari sem hefur áður fengist við tón-
list og Erlu Maríu sem er nýkomin
heim frá námi í Mílanó á Ítalíu þar
sem hún lærði teiknimyndagerð.
„Svo lengi sem fólki finnst gam-
an að hlusta á okkur er okkur alveg
sama að það haldi að við séum að
grínast, við erum bara svo full af
gleði að það er eðlilegt að fólk taki
því sem einhverju gríni,“ segir Vík-
ingur. Hægt er að hlusta á afrakstur
hljómsveitarinnar á myspace.com/
findadog. „Okkur Erlu langaði svo
mikið að vera popparar en Erla og
Arnór byrjuðu tvö og settu saman
í lag fyrir ári. Við ákváðum síðan
að vaða í þetta, því nú verðum við
Erla bæði heima á íslandi, en ann-
ars erum við bæði mikið í útlönd-
um. Núna hittumst við reglulega
og erum að vinna í efni því okkur
finnst þetta svo ódýrt og skemmti-
legt,“ segir Víkingur.
Þegar talið berst að Ríkinu, þátt-
um sem Víkingur leikur í sog verða
sýndir á Stöð 2, segir hann að það
hafi verið verulega skemmtilegt
að leika í Ríkinu „Ég er í bandi við
marga af samleikurum mínum og
við vonum að það skili sér að okkur
fannst margt af þessu rosalega fynd-
ið. Þetta var svakalega skemmtilegt
allan tímann sem við vorum að
gera þetta og heilmargt sem á eft-
ir að hitta í mark,“ segir
Víkingur. Hann lýs-
ir því að grínið
í þáttunum
sé al-
veg á
brúninni og á mörk-
unum á því að fara yfir
strikið þó það hald-
ist oftast réttu meg-
in. „Fólki finnst svo
gaman að láta ganga
fram af sér, ég vona
bara að fólk eigi eftir
að fíla þetta. Meist-
ararnir í svona þátta-
gerð eru úti á Eng-
landi, þeir hafa
alveg farið hringinn
í ósmekklegheitum.
Svona þættir sem eru
á brúninni ganga ofan
í fólk og ég mundi segja
að Ríkið daðri aðeins
við að vera á brúninni,“
segir Víkingur.
Þessa dagana situr
Víkingur við skriftir og
vinnur að kvikmynda-
handriti. „Ég er að gera
þetta fyrir aðila sem fékk
mig í það en ég ætla ekk-
ert að fara meira út í það
sko,“ segir Víkingur íbygg-
inn. Í haust ætlar hann að
leikstýra Stúdentaleikhús-
inu í þriðja sinn. „Maður
segir bara aldrei nei þegar
þau hafa samband því það
er svo gaman að leikstýra
þeim. Við stefnum að því að
setja upp sýningu í Norræna
húsinu í nóvember,“ segir Vík-
ingur að lokum.
astrun@dv.is
Steingrímur Randver Eyjólfsson,
betur þekktur sem Steini bachel-
or, eignaðist stúlkubarn í vikunni.
Steini fann ekki ástina í þáttun-
um en fann hana fljótlega eftir að
þeim lauk. Hann og Hrönn kær-
asta hans hafa verið búsett á Egils-
stöðum síðustu mánuði en þau eru
flutt aftur til Akureyrar en þaðan er
kærasta hans. Steini og Hrönn hafa
verið saman í tæp tvö ár og skín af
þeim hamingjan. Fyrr á árinu settu
þau upp hringa og um helgina
fjölgaði í fjölskyldunni og því má
búast við að hamingjan verði enn
meiri á næstu mánuðum.
Víkingur Kristjánsson leikari og hljóm-
sveit hans Find a dog voru að senda frá
sér sín fyrstu lög. Víkingur er nýbúinn
að leika í gamanþáttunum Ríkinu,
skrifar kvikmyndahandrit og ætlar
að leikstýra Stúdentaleikhúsinu í
þriðja skiptið í haust.
Tæmdu faTaskápana
Þeir sem þjást mest af fortíðarþrá
og þrá að fara á skemmtistaðinn Sirk-
us geta gert það í október en staðnum
var lokað í vetur. Því miður verð-
ur það ekki hægt hér á landi held-
ur verður skemmtistaðurinn fluttur
í heilu lagi til Lundúna á sýninguna
Freeze Fest. Þar verður Sirkus opinn
heila helgi og hægt verður að fara
þangað og upplifa stemninguna sem
varð ógleymanleg fyrir skemmtana-
lífið á Íslandi. Sirkus varð frægur fyrir
skrautlega gesti sína og stanslaust
stuð og sóttu útlendingar staðinn
mikið þegar þeir komu til landsins.
sirkus í
London
Víkingur kristjánsson:
VíKingur Kristjánsson
mikið er að gera hjá víkingi þessa
dagana. Hann er meðal annars
að skrifa kvikmyndahandrit og er
í hljómsveitinni Find a dog.
pipar-
sveinninn
eignasT
sTeLpu
„Við erum komin með
voðalega mikið af flottum föt-
um, skarti, skóm, töskum og
listaverkum,“ segir Sigþrúð-
ur Ármann einn skipuleggj-
enda SÚK-glæsimarkaðarins
sem fram fer í Perlunni þann
þrítugast ágúst. Fjöldi valin-
kunnra Íslendinga lagði í gær
sitt af mörkum til stuðnings
verkefni Jóhönnu Kristjóns-
dóttur sem staðið hefur ötul-
lega fyrir aukinni menntun
kvenna og barna í Jemen.
„Það mættu mjög margir
þekktir Íslendingar hingað í gær
með fallegar og sérstakar flíkur
og fleira en nú verðum við mik-
ið hérna í Síðumúla 15, baka-
til, og það er öllum velkomið
að koma hingað með vandaða
og heillega hluti og fatnað. Það
hafa mjög margir boðist til þess
að vinna á glæsimarkaðnum og
það verður rosalegt stuð þar og
húllumhæ.“
Fjöldi valinkunnra Íslendinga gaf fallegar og sérstakar flíkur og fylgihluti í SÚK
-markaðinn í gær:
Leggur góðu málefni lið
Fegurðardrottningin Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir kom með ýmislegt
fallegt til að gefa á markaðinn.
Fótboltamenn á spjalli við
markaðshaldarann tryggvi
guðmundsson og arnar gunnlaugsson
spjalla hér við Jóhönnu kristjónsdóttur.