Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1963, Side 14
12*
Iðnaðarskýrslur 1960
31
311
312
319
33
332
333
334
339
35-6 350-60
37 370
38
381
Kemískur iðnaður.
Framleiðsla kemískra undirstöðuefna.
Framleiðsla köfnunarefnisáburðar, ammoníaks, acetylengass, súr-
efnis og kalks.
Aths.: Samkvœmt ISIC œtti að telja flugeldagerð hér, en hún er talin með ýmsum
iðnaði í grein nr. 399c.
Framleiðsla jurta- og dýraolíu og feiti og tengdra afurða.
a-d. Mjöl- og lýsisvinnsla (þ. á m. hvalvinnsla).
Lifrarbræðsla, öll mjöl- og lýsisvinnsla úr fiski, hvalskurður og
hvalbræðsla, lýsisherzla og soðkjarnaframleiðsla.
Önnur kemísk framleiðsla.
a. Snyrti- og hreinlætisvöruframleiðsla o. fl.
Snyrti- og hreinlætisvöruframleiðsla o. fl., svo sem framleiðsla
sápu, þvottaefnis, klórvatns, bóns, kerta, hreinsunarefna, júg-
ursmyrsla, rafgeymasýru, hárvatna, andlitskrems, sólarolíu o. fl.
Aths.: Framleiðsla lyfjagerða á lyfjum o. fl. er ekki meðtalin og er það frá-
vik frá ISIC. Hárvatnagerð er talin í grein nr. 211 árið 1959, sbr. athuga-
semd við þá grein.
b. Málningar- og lakkgerð.
Framleiðsla á málningu, lökkum, lími og kítti.
Aths.: Þessi grein samsvarar grein nr. 313 samkvæmt ISIC í þeirri mynd, sem
sú flokkun er núna, en var áður hluti af grein nr. 319. Hér er greinin látin
halda sínu gamla númeri, sem notað hefur verið í fyrri iðnaðarskýrslum.
Steinefnaiðnaður, annar en málm-, kola- og olíuiðnaður.
Gleriðnaður.
Glerslípun, speglagerð, líming á tvöföldu gleri.
Aths.: Fjölgun vinnuvikna í þessari grein síðustu árin byggist á aukinni fram-
leiðslu tvöfalds glers. Hin háa tala 1955 byggist á tilraun, sem gerð var með
glerframleiðslu í Reykjavík (sjá töflu nr. I).
Leirsmíði og postulínsiðnaður.
Sementsframleiðsla.
Annar steinefnaiðnaður.
Steinsteypuframleiðsla steypustöðva, fínpússningargerð, stein-
ullarframleiðsla, pípugerð, vikurplötugerð, framleiðsla steyptra
hleðslusteina, hellugerð, framleiðsla steinstólpa, steinsúlna, stein-
bita, gluggapósta úr steinsteypu og annarra steinsteypuvara,
malar- og sandnám.
Aths.: Malar- og sandnám var áður flokkað með námuvinnslu samkvæmt ISIC,
og í vinnuvikuyfirlitum skýrslunnar er sú starfsemi aðeins talin með árin 1951—-
1959 (sbr. töflu I).
Málmsmíði, önnur en flutningstækja- og rafmagnstækjagerð.
Öll málmsmíði, önnur en flutningstækja- og rafmagnstækjagerð,
og viðgerðir (stálhúsgagnagerð þó talin í grein nr. 250-60), t. d.
öll venjuleg starfsemi í járnsmiðjum, vélsmiðjum, málmsteypum,
blikksmiðjum, enn fremur ofnasmíði, stálvaskasmíði, málmhúðun,
stáltunnugerð, viðgerðarvinna ýmiss konar o. fl.
Smíði og viðgerðir rafmagnstækja.
Smíði rafmagnstækja, t. d. eldavéla, ofna, ísskápa, þvottavéla,
lampa o. fl., viðgerðir rafmagnstækja, rafmótoraframleiðsla, raf-
geymaframleiðsla, radíóviðgerðir, o. fl.
Smíði og viðgerðir flutningstækja.
Skipasmíði og viðgerðir.