Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1900, Blaðsíða 226
224
gömlum mönnum«, líkt átti sjer stað hjá Þorv. Jónssyni, 1 hans hjeraSi bar mjög mikið á
veikinni í byrjun og enda ársins. Veikin var og mjög algeng hjá Ó. Finsen (74 sjúkl.) og
M. Asgeirssyni.
9. Blóðkreppusótt (Dysenteria). TilfærSir eru alls 81 sjúklingur, og þar af
dáinn 1. Flestir voru sjúklingarnir hjá Ólafi Guðmundss. (54), svo hjá Kr. Kristjánss. (16).
Ólufur GuSmundsson segir: »Veiki þessi virtist vera mjög næm þetta ár«.
Ekkert hefur borið á veikinni hjá Þorgr. Þórðarsyni, en þar var hún mjög tfð
fyrra árið (1898).
10. Hettusótt (Angitia parotidea) liefur að eins komið fyrir 15 sinnum. Helzt
var það í Ólafsvíkurhjeraði (9 sjúkliugar) 3 fyrstu mánuði ársins, en síðar varð hennar alls
ekki vart.
11. Sullaveiki (Echinococcus). I skyrslunum eru tilfærðir 123 (í fyrra 255).
Nokkrir læknar taka það fram, að þeim virðist, sem sjúklingar með sullaveiki heldur fækki,
og má vel vera að svo sje, og má þakka það bæði hundalækningunum og því, að hin yngri
kynslóð mun umgangast hundana með meiri varúð en hin gamla kynslóð.
Hundalækningar liafa alstaðar farið fram með reglu.
12. Berklaveiki (Tuberculosis). í skyrslunum eru tilfærðir 117 (10.3°/0) með
berkla í lungum og af þeim 12 dánir, og 64 meö berkla í öðrum pörtum líkamans, og af
þeim dánir 6. Flesta tilfærir Guðmundur Björnsson 30 (22 í lungurn, 8 í öðrum stöðum).
Guðrnundur Hannesson 27 (7 í lungum og 20 í öðrum stöðum). Þórður Thoroddsen 10 í
lungum og 1 í öðrum stað; Kr. Kristjánsson 9 í lungum og 3 í öðrum stöðum. Svo að segja
allir lreknar hafa iiaft einn eða fleiri sjúklinga berklaveika. Þótt eigi sjeu tilfærðir í skyrsl-
unum fyrir þetta ár fleiri en 181, (sjúklingar í fyrra 209), þá er að svo komnu eigi hægt að
segja, hvort berklaveikin er að fara í vöxt, en líkindi ern því miður til þess, að svo sje. —
Jeg tek því upp aptur það, sem sagt var í fyrri skyrslu minni : Hin brýnasta nauð-
syn er á, að almenningur ky n,n i sjer ítarlega ritið, sem landssjóður
hefur látið útbýta, og sem hverogeinn getur fengið ókeypishjá
læknum landsins. (Um berklaveiki eptir G. Björnsson hjeraðs-
1 æ k n i).
13. Skyrbjúgur (Scorbutus) er að eius nefndur; ei því um það alveg að hverfa
úr veikindaskrá landsins.
14. Holdsveiki (Lepra). Einstöku læknar geta veikinnar; en það er óefað, að
aö eins fáir bætast nýir við.
15. Krabbamein (Cancer). Alls eru tilfærðir 27 sjúkir (17 höfðu meinið í
maganum, 2 í brjósti, 3 í vörinni, 3 í innýflum, 1 í lifrinni, 1 í vælindinu.
16. Beinbrot (Fractura). Tíðust hafa verið rifbrot (fr. costæ) 26 sinnum, þessu
næst geislabeinsbrot (fr. radii) 19 s.; viðbeinsbrot (fr. elaviculæ) 11 s.; sperrilegsbrot (fr.
fibulæ) 10 s.; lærbrot (fr. femoris) 5 s. ; fótleggsbrot (fr. cruris) 15 s.; framhandleggsbrot
(fr. antibrachii) 3 s.; fingurbrot* (fr. digit.) 3 b. ; nefbrot (fr. nasi) 1 s.; olnbogabrot (fr.
olecrani) 3 s. Tíðust hafa brotin verið í hjeraði G. Björnssonar (16), Ólafs Guðmundssonar
(10), Þórðar Thoroddsens (9).
17. Li ð h 1 a u p (Luxatio). Optast hefur gengið úr liði í axlarliðnum (1. humeri)
15 sinnum; um olnbogalið (1. cubiti) 3 s.; hnjeskjel (1. patellæ) 1 s.
18. Skotsár (V. sclopetarium). Slys af púðri og skotvopnum hafa orðið nokkr-
urn sinnum á þessu ári, og skal hjer tilfært hið helzta af því tagi.
Helgi Guðmundsson: »Unglingspiltur skaut sig í september. Skot.ið hafði
komið framau í ennið og tók allan efri part kúpunnar og láu heilasletturnar víðs vegar«.