Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1900, Síða 227
225
Sig. Hjörleifsson: MaSur gekk á rjúpnaveiSar og var mjóg eyddur bógurinn
á byssunni og fjell illa viS perlunni. Hann skaut og hrókk perlubrot í augað inn gegn um
cornea. VarS aS taka úr honum augaS«. »Skot hljóp úr byssu hjá sjómönnum, er voru aS
setja fram bát og snerti skotið viS baki á dreng, er þeim megin var; var það nokkurt sár,
en þó ekki hættulegt og batnaði til fulls«.
Páll Blöndal: »Unglingsmaður var að þurka J/4 pd. af púðri, er raki hafSi kom-
ist aS í pjáturskút á eldsglæðum, þar til púðrið exploderaði og blossann lagSi um andlit hon-
um; brann hárið framau á höfðinu og andlitið allt meira og minna til 3. stigs og voru blöðrur
á conjunctiva. Manninum batnaði furðu fljótt algjörlega og hjelt fullri sjón«.
Gísli Pjetursson: »Brot af knallhettu hrökk upp í augað á unglingspilti,
skar gat á cornea og í sundur iris utanvert við pupilla. Brotið náSist út og sárið greri fljótt
og drengur fjekk fulla sjón aptur«.
19. Lekandi (Gonorrhoea). I skvrslunum er þetta ár taldir 32 sjúklingar. —
Flestir hafa veriS hjá G. Björnssyni (20, þar af 2 konur) og hjá Kr. Kristjánssyni (7).
20. S a m r æ ð i s s j ú k d ó m a r (Syphjlis og UIc. vener.) höfðu 3 útlendingar.
21. Drykkuæði (Delirium tremens) kom fyrir á 6 (þar af 3 hjá G. Hannessyni).
22. K 1 á ð i (Scabies) tilfærður hjá öllum læknum.
23. G i n k 1 o f i (Trismus neonatorum). Af ginklofa hafa komið 3 tilfelli, 1 í
Vestmannaeyjum, 1 hjá Ásgeiri Blöndal og 1 hjá Þorvaldi Jónssyni. Þorsteinn segir, að
optast deyi 1 á ári stundum 2 af ginklofa þar á eyjunum.
Fæðingar (Partus).
Þetta ár hafa læknar 43 sinnum örðiS að hjálpa konum í barnsnauð með verkfærum
(töng) og 4 sinnum sinnum orðið að snúa burðinum; í eitt skipti varS að lima sundur burð-
inn og í eitt skipti náSist hann með engu móti og dó konan.
Ein þríburafæðing kom fyrir Guðm. Björnsson: »8. jan. að kveldi dags tók konan
ljettasóttina; 10. jan. kl. 1 lJ/2 síðdegis fæddist lifancþ, fullburða stúlkubarn (1. hvirfilstaða),
15 merkur að þyngd; 11. jan. kl. lOl/2 síðdegis fæddist lifandi, fullburSa drengur (sitjanda-
fæSing), 16 merkur aS þyngd; 12. jan. kl. 11 árdegis fæddist andvana drengur (2. hvirfilstaða),
14 merkur að þyngd, öll börnin fæddust sjálfkrafa. Konan kom furðu fljótt til heilsu.
T v í b u r a f æ ð i n g kom fyrir Kr. Kristjánssou, Skúla Árnason, Pál Blöndal og
GuSm. Scheving. Kristján varð að taka síðari tvíburan með töngum (sóttleysi). Skúli vaað
að snúa síðari burSinum og draga hann út (vegna blóSláta).
Pdll Blöndal segir: »37 ára gl. multipara fjekk 2 dögum á undan fæSingunni
nokkur krampaslög (eclampsia) en ekki bar á þeim meðan á fæðingunui stóð eða eptir hana;
ól hún tvíbura; veiktist á 3. degi af barnsfarasótt og dó á 6. degi.«
Ennfremur segir hann: »Jón sonur minn var sóttur til konu 30 ára gl., er fengiS
hafði blóðlát og taldi sig vanfæra á 8. mánuð. BlóSlátin tókst að stöðva; öðru hvoru hafði
hún samt næstu daga verki og nokkurn blóSmissi þar til hún 4 dógum síðar fæddi af sjer
kjötklump (mola carnea) á stærð við vænt »Boeufstykki« og líkt því hráu að útliti«.
Ekki er þess getið í skyrslunum, að 1 e g k a k a u hafi »legið fyrir« nema einu
sinni og kom það fyrir Helga GuSmundsson: »Konan hafði verið frísk um meðgöngutímann,
þar til fyrir 3 vikum, er hún fjekk blóSlát, er stiltust af sjálfu gjer og lá hún þá í rúminu
í 3—4 daga; síðan tóku blóðlátin sig upp aptur við og við, þar til hún tók ljettasótt ^/g. um
kveldið; 2/s kl. H um kveldið var jeg sóttur og kom til hennar eptir 5 tímaferð. Við rann-
sókn fanst partur af legkökunni fyrirliggjandi og smápartar fyrir innan; legopið c. l"ástærð.
Hjelst sema sóttleysið við allau daginn hinn 3., en um morguninn hinu 4/8 elnaði sóttin og
29