Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Síða 12
þriðjudagur 25. nóvember 200812 Fréttir Lögreglan í stuði Tíu þúsund lögregluþjónar í Bret- landi munu á næstunni fá rafbyss- ur til að takast á við ofbeldisglæpi. Jacqui Smith, innanríkisráðherra Bretlands, vill að allt lögreglulið Englands og Wales hljóti þjálfun í notkun þeirra en hinar umdeildu rafbyssur gefa frá sér 50 þúsund volta straum. Smith segir að kostn- aður við vígbúnað lögregluliðsins verði um 8 milljónir punda og er stolt af þeirri staðreynd að lög- reglulið Bretlands sem ekki gangi vopnað skotvopnum dagsdaglega. Amnesty International í Bretlandi harmar tilkynninguna enda sam- tökin mótfallin notkun rafbyssna. Yfirvöld í hinu fjarlæga héraði Pap- úa í Indónesíu hafa ákveðið að styðja tillögur að umdeildum lög- um sem myndu skylda HIV- og al- næmissmitaða einstaklinga til að láta græða í sig örtölvukubb svo hægt verði að fylgjast með þeim. Heilbrigðisstarfsmenn og mann- réttindasamtök í landinu hafa gagnrýnt áformin harðlega og segja þau viðbjóðsleg. Smita vísvitandi Einn flutningsmanna tillögunnar, John Manangsang, sagði að með því að koma fyrir slíkri örflögu í húð alnæmissjúklinga sem sýnt hefðu af sér „kynferðislega árásargirni“ gætu yfirvöld með auðveldu móti borið kennsl á, fylgst með og á end- anum refsað þeim sem vísvitandi smita saklausa einstaklinga af veir- unni. Refsing fyrir þann hræðilega verknað nemur þó ekki nema sex mánaða fangelsi, eða fimm þúsund dollara sekt. Verður að lögum Enn á eftir að ákveða nákvæmlega hvernig tæknilegum og praktískum þáttum aðgerðanna verður háttað, en tillagan hefur nú þegar fengið fullan stuðning landsbyggðarþinga Indónesíu. Og ef tillagan fær meiri- hluta atkvæða, eins og fastlega er gert ráð fyrir, mun hún verða að aukalögum í næsta mánuði. Eyðnifaraldur geisar Indónesía er fjórða þéttbyggðasta land í heiminum og er það land í Asíu þar sem fjöldi HIV- og alnæm- issmitaðra hefur verið í hvað örust- um vexti undanfarin misseri. Í dag eru allt að 290 þúsund einstakling- ar smitaðir af 237 milljón manns sem sérfræðingar rekja til þess mikla fjölda sprautufíkla og vænd- iskvenna sem þar eru. Papúa er fátækasta hérað lands- ins og hefur hefur orðið verst úti í faraldrinum. 61 af hverjum 100.000 íbúum þess er smitaður sem er fimmtánfalt yfir meðaltali þjóðar- innar. Þetta kemur í ljós í nýlegri alþjóðlegri rannsókn sem kennir fáfræði fólksins, varðandi kynsjúk- dóma, um slæma stöðu héraðsins. Merktir eins og nautgripir „Staða heilbrigðismála er afar óvenjuleg, svo við verðum að grípa til óvenjulegra aðgerða,“ segir einn stuðningsmanna til- lögunnar á þingi Papúa, Weynand Watari. Hann sér fyrir sér merk- ingar á borð við þær sem notað- ar eru við að merkja farangur og nautgripi. Það er með útvarps- bylgjum. Ráðgert er að nefnd verði stofn- uð í kjölfar lagasamþykktarinn- ar sem mun ákveða hverjir hinir hættulegu verða sem fá merking- arnar græddar í sig. Japanski ferðamaðurinn, Hiroshi Nohara, varð svo yfir sig ástfanginn af flugvelli í Mexíkóborg þegar hann ferðaðist þangað að hann er þar ennþá. Þremur mánuðum eftir að hann mætti á svæðið. Nohara ákvað að gera flugstöð 1 á alþjóðaflugvellinum Benito Juarez í Mexíkó að heimili sínu. Í þrjá mán- uði hefur hann lifað á matarfram- lögum frá skyndibitastöðum flug- vallarins og öðrum farþegum. Ekki ósvipað og Tom Hanks gerði í hlut- verki sínu í kvikmyndinni The Term- inal árið 2004. Nohara hefur hlotið talsverða frægð fyrir uppátæki sitt, þar sem fréttastofur sitja um hann daglega og færa almenningi fréttir af Jap- ananum í flugstöðinni. Ferðamenn vilja líka ólmir láta taka af sér mynd- ir með manninum og sníkja eigin- handaráritanir. Nohara, sem kemur frá Tókýó, flaug til Mexíkó með ferðamanna- áritun og átti að fljúga aftur til baka. En hann yfirgaf aldrei flugvöllinn við komu sína. Hann segist ekki vita hversu lengi hann muni vera þarna, né heldur vill hann gefa upp af hverju hann er þar enn. „Ég veit ekki af hverju ég er hér. Líf mitt er hér á flugstöðinni,“ er haft eftir Nohara í gegnum túlk. Á með- an á dvöl hans hefur staðið hefur snyrtilegur hökutoppur sem hann skartaði við komuna orðið að al- skeggi. Og föt hans og útgangur er sá að þarna virðist umrenningur vera á ferðinni enda hefur hann ekki get- að leyft sér mikinn munað varðandi umhirðu og hreinlæti í þrjá mánuði. „Hann virðist vera róleg og góð manneskja,“ segir Silvia del Toro, húsvörður flugstöðvarinnar, og seg- ir hann bara sitja allan daginn og borða. Yfirvöld segjast ekkert geta gert til að þvinga Nohara úr landi fyrr en ferðamannaáritun hans rennur út í mars á næsta ári. mikael@dv.is Hershöfðingi kennir þolfimi Herskár taílenskur hershöfðingi sem á dögunum hótaði að sprengja mótmælendur ríkisstjórnarinnar í loft upp og varpa snákum á hóp- ana úr þyrlu hefur verið færður til í starfi og lækkaður í tign svo um munar. Hann mun nú starfa sem þolfimikennari. Kommúnista- baninn Khattiya Sawasdipol brást ókvæða við nýju hlutverki sínu. „Það er fáránlegt að senda mig, stríðsmanninn, að dansa á götum úti.“ sagði hershöfðinginn og gagn- rýndi yfirmenn hersins harðlega. Hann hefur að eigin sögn þegar búið til einn dans, að-kasta-hand- sprengjum-dansinn. gerði flugstöð að heimili sínu Japanskur ferðamaður hefur hafst við í flugstöð í þrjá mánuði: Heima er best Hiroshi nohara hefur búið á flugstöðinni í mexíkóborg í þrjá mánuði og lifað á ölmusu. minnir um margt á kvikmyndina The Terminal sem Tom Hanks lék í um árið. Umdeild lög um að græða örtölvukubb í HIV- og alnæmissmitaða einstaklinga verða að öllu óbreyttu að lög- um í Indónesíu í næsta mánuði. Er þetta tilraun yfirvalda til að hemja útbreiðslu veirunnar en faraldur hef- ur geisað í landinu undanfarin ár. Stuðningsmenn tillögunnar segja hana nauðsynlega til að verja saklausa borgara gegn þeim sem vísvitandi smita aðra. Viðbjóðsleg hugsun segja mannréttindasamtök. EyrnamErktir EyðnisjúkLingar Hann sér fyrir sér merkingar á borð við þær sem not- aðar eru við að merkja farangur og nautgripi. Sigurður MikaEl jónSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is Faraldur eyðnifaraldur hefur geisað í indónesíu undanfarin ár sem má að sögn rekja til óvarlegrar sprautunotkunar fíkniefnaneytenda og vændis. vanþekking á smitsjúkdómum spilar líka stóran þátt þar í. Mynd gEtty

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.