Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Side 13
þriðjudagur 25. nóvember 2008 13Fréttir
Í smábænum Valentine í Nebraska-ríki
Bandaríkjanna hefur lögreglan loks
gripið klúran skemmdarvarg sem hef-
ur verið eftirlýstur í meira en ár. Hinn
35 ára gamli maður var gripinn glóð-
volgur, grunaður um að skilja eftir sig
klúr ummerki á rúðum kirkna, skóla
og fyrirtækja í smábænum síðasta árið
eða svo. Hann hefur fengið viðurnefn-
ið bossabófinn.
Um vorið 2007 fóru fyrirtækjaeig-
endur í Valentine að taka eftir gróf-
um og fitugum kámförum á glugg-
um sínum þegar þeir mættu til vinnu
á morgnana. Bossabófinn gerir sér
það að leik að halda út í skjóli nætur
og þrýsta afturenda sínum, og stund-
um kynfærum, upp að rúðum stofn-
ana og fyrirtækja en athæfið hefur sært
blygðunarkennd smábæjarbúanna.
Til að tryggja að ummerki hans sæjust
glögglega smurði hann líkamspartana
með ýmiss konar áburði eða vaselíni.
Yfirvöld stóðu ráðalaus er maður-
inn fullnægði blætisþörfum sínum á
rúðum bæjarins út vorið og sumarið
í fyrra. En hann tók sér frí yfir haust-
mánuðina og veturinn. „Þetta þykir
ekki viðeigandi hegðun í Valentine,“
er haft eftir lögmanni sýslunnar, Eric
Scott. „Þetta er móðgandi fyrir dug-
legt fólk bæjarins.“ Í Valentine búa um
2.650 manns.
Á miðvikudaginn var sá lögregl-
an í Valentine manninn búa sig und-
ir að fremja enn einn gjörninginn um
hálf fjögurleytið að nóttu til en tókst að
handtaka hann. Þar virtist vera á ferð
sami maður og náðist á öryggismynda-
vél grunnskóla í bænum á síðasta ári.
Yfirvöld í bænum rekja nú ummerki
sóðans en hafa ekki kært hann enn
sem komið er.
Grunur hafði vaknað hjá lögreglu
um að hugsanlega hefðu eftirhermur
tekið upp á iðju mannsins vegna þeirra
mörgu atvika sem komið höfðu upp,
en telja nú að hann hafi starfað einn í
afbrigðilegheitunum. mikael@dv.is
Óprúttinn öfuguggi skildi eftir klúr ummerki á opinberum stöðum:
bossabófi gripinn
Bossabófinn maðurinn skildi eftir klúr ummerki í
kirkjum, skólum og fyrirtækjum með því að löðra
afturenda sinn eða kynfæri í áburði og þrykkja á rúður.
Mynd photos.coM
dv.is aldrei vinsælli!
Fjöldi notenda á dv.is hefur vaxið gríðarlega undanfarnar vikur
og í dag eru stærstu veffréttamiðlar landsins
dv.is, visir.is og mbl.is
100.000
90.000
80.000
70.000
60.000
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
0
1 vika 10 vika 20 vika 30 vika 47 vika40 vika
*Ritið sýnir fjölda notenda á dv.is skv vefmælingum Modernus.
Notendur
* Töffari á Akureyri
* Skítafýlubombur í Borgarbíói
* Mætti með saltfiskinn á ballið
* Rakvélablöðin borðuð með bestu lyst
* Lás opnaður með augnaráðinu
* Náði úrum, veskjum og brjósthaldara
* Uppskurður með berum höndum
* Morðhótun
* Löggubíl ekið undir áhrifum
* Hjartastopp í sjónvarpsviðtali
holar@simnet.is – www.holabok.is
Einlæg,
áhugaverð, fyndin,
átakanleg!
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
V
I
44
05
9
11
/0
8
www.kvikmyndaskoli.is
LEIKS
TJÓR
N / FR
AMLE
IÐSLA
SKAP
ANDI
TÆK
NIVIN
NA
HAND
RIT /
LEIKS
TJÓR
N
LEIKL
IST /
FRAM
KOMU
FRÆÐ
I
Kvikm
ynda
skóli
Íslan
ds er
skem
mtile
gur
og kr
efjan
di sk
óli se
m me
nntar
fólk
til
skap
andi
starfa
.
SKRÁ
NING
STEN
DUR Y
FIR!Vi
ðurk
ennt
tveg
gja á
ra ná
m.
100%
láns
hæft
hjá L
ÍN.