Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2008, Side 17
þriðjudagur 25. nóvember 2008 17Sport
Fabregas Fyrirliði
eftir ítrekaðan dómgreindarbrest og hálfvitahátt hlaut að koma að því að William gallas
þyrfti að skila fyrirliðabandinu. Frakkinn fríkaði gagnrýndi nú síðast liðsfélaga sína opin-
berlega í síðustu viku. arsene Wenger sá þörfina á breytingum og ákvað að launa
Spánverjanum unga, Cesc Fabregas, þær öru framfarir sem hann hefur sýnt á
leið sinni að því að verða heimsklassaleikmaður. Hann mun leiða lið sitt í
fyrsta sinn í kvöld þegar arsenal tekur á móti dynamo Kiev á emir-
ates. Fjölmiðlar gera því skóna að framtíð gallas hjá arsenal sé nú
í uppnámi en Wenger neitar því enn sem komið er.
Ótrúlegur enda-
sprettur Kr-inga
Áttunda umferð iceland express-
deildar kvenna hófst í gærkvöldi
með leik Kr og grindavíkur í dHL-
höllinni í vesturbænum. Liðin voru á
svipuðu róli í deildinni og búist við
hörkuleik. jafnræði var með
liðunum í 1. leikhluta en gestirnir
sigu fram úr í þeim seinni og staðan
í hálfleik 34-26 fyrir grindavík. Kr-
stúlkur komu sterkar inn eftir hlé og
söxuðu á forskotið niður í tvö stig í 3.
leikhluta. Síðasti leikhlutinn var
æsispennandi. grindavík byrjaði
betur en Kr saxaði á forskotið
jafnóðum og komst yfir 52-50 og
hreinlega valtaði yfir gestina með
því að skora 19 körfur gegn engri.
ótrúlegur endasprettur Kr eftir að
hafa verið undir mestallan leikinn.
Lokatölurnar 68-56. Sigrún
Ámundadóttir var markahæst í Kr
með 22 stig og markahæst í
grindavíkurliðinu var ingibjörg
jakobsdóttir með 15 stig.
Wigan aF
botnsvæðinu
Leikur Wigan og everton fer ekki í
sögubækurnar fyrir fallegan fótbolta.
Fyrri hálfleikur var tíðindalítill og
markalaus en hart var barist enda
bæði lið þekkt fyrir fullorðins
fótbolta í þeirri deild. Wigan þurfti
nauðsynlega á sigri að halda til að
lyfta sér af botnsvæðinu á meðan
sigur fyrir gestina hefði þýtt 6. sætið
í deildinni.
everton byrjaði betur án þess að
ógna markinu en markvörður þess,
Tim Howard, kom í veg fyrir mörk í
tvígang undir lok hálfleiksins með
frábærri markvörslu.
Heimamenn mættu sterkari í seinni
hálfleik og komust yfir á 50. mínútu
með marki Henris Camara eftir góða
sókn Wigan. Heimamenn réðu
ferðinnni eftir það og sóttu stíft að
marki gestanna og þurfti Tim
Howard að vera vel vakandi á milli
stanganna.
Síðasta stundarfjórðung leiksins
reyndi everton að sækja af veikum
mætti en heimamenn vörðust af
krafti og beittu skyndisóknum.
everton fékk gott færi í uppbótar-
tíma en Tim Cahill brenndi af.
Lokatölur 1-0, góður og verðskuld-
aður sigur hjá Wigan. niðurstaðan,
sigur sem fleytir liðinu upp í 15. sæti.
umSjón: TómaS þór þórðarSon, tomas@dv.is / Sveinn Waage, swaage@dv.is
Ætla má að getspakir muni tippa á
jafntefli í leik toppliðanna í E-riðli,
Villarreal og Manchester United.
Liðin hafa mæst þrisvar áður og í öll
skiptin skildu liðin jöfn. Þau úrslit
myndu að auki tryggja báðum liðum
sæti í útsláttarkeppninni. Bæði lið-
in eru í harðri baráttu heima fyrir og
þrátt fyrir að bæði lið muni halda því
fram að leikið verði til sigurs má gera
ráð fyrir að liðin fari varlega í þenn-
an leik enda bæði með sex stiga for-
skot á Celtic og Aalborg. Berbatov er
sem fyrr meiddur en reiknað er með
því að Cristiano Ronaldo verði með
United, en hann fór með liðsfélögum
sínum til Spánar þrátt fyrir að hafa
meiðst í leiknum gegn Aston Villa.
Darren Fletcher verður líklega klár
einnig en markvörðurinn Edwin Van
der Sar varð eftir heima og munu
því annaðhvort Kuszczak eða Foster
verða í markinu. Þótt hvorki skoska
né danska liðið eigi möguleika á að
komast upp úr riðlinum eiga þau
jafnmikla möguleika á þriðja sætinu
sem gefur þátttökurétt í UEFA Cup.
Liðin munu því leggja allt undir í
leiknum í Danmörku.
Arsenal fær erfiða gesti
Topplið G-riðils, Arsenal, tek-
ur á móti Dinamo Kiev sem nart-
ar í hælana á Porto í öðru sæti. Hjá
Lundúnaliðinu hefur ekkert geng-
ið sem skyldi undanfarið. Liðið tap-
aði illa um helgina fyrir Man.City,
meiðsli lykilmanna hafa hrjáð liðið,
nú síðast Theo Walcott, og mórallinn
verið í molum með hinn stórskrítna
fyrrverandi fyrirliða William Gallas í
fararbroddi. Liðið er þó í kjörstöðu í
riðlinum en má ekki við því að mis-
stíga sig í tveimur síðustu leikjunum
þar sem stutt er í Porto og aðeins 3
stig í Dinamo Kiev sem hefur staðið
sig fantavel á útivelli og aðeins tapað
einum leik. Þeir unnu Porto úti, voru
óheppnir að klára ekki Arsenal í Kiev
og fengu ekki á sig mark í Tyrklandi.
Þeir eru því sýnd veiði fyrir Arsenal
en ekki gefin þótt leikurinn sé á Em-
irates. Porto heldur til Tyrklands á
einn efiðasta útivöll í Evrópu. Fen-
erbahce er neðst en aðeins þrem-
ur stigum frá Dinamo og getur því
blandað sér í bárattuna um 3. sætið
og áframhaldandi Evrópubolta.
Real þarf sigur
Miðað við gengi Juventus í Meistara-
deildinni í ár er Zenit ekki öfunds-
vert af að fá þá í heimsókn til Péturs-
borgar. Juventus varð fyrst liða til að
tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni
og getur því mætt afslappað í leik-
inn. Heimamenn í Zenit eru Evrópu-
meistarar félagsliða og engin lömb
að leika sér við. Þeir byrjuðu Evr-
ópuboltann á því að leggja Man.Utd
í leik Evrópumeistaranna en hafa
síðan ekki nýtt heimavöllinn sem
skyldi í Meistaradeildinni. Liðið er
sem stendur í hinu dýrmæta 3. sæti
en á aðeins 2 stig í Real Madrid sem
hefur þegar tapað tveimur leikjum
og ekki verið sannfærandi hingað til
í riðlinum. Real heldur einnig í aust-
urveg og mætir Bate Borisov í Hvíta-
Rússlandi. Brokkgengi Madrídinga
í deildinni í ár hefur vakið athygli. Í
síðasta leik tapaði liðið 0-2 á heima-
velli gegn Juventus og nú verður liðið
að klára Bate og tryggja sig í útslátt-
arkeppnina í 12. sinn í röð. Meist-
aradeildin virðist vera númeri of
stór fyrir Bate. Liðið á samt sem áður
möguleika á 3. sætinu ennþá og hlýt-
ur að stefna á það.
Úrslit ráðin í F-riðli
Úrslit virðast að mestu ráðin í F-
riðli. Toppliðin Lyon og Bayern
þurfa aðeins stig úr sínum leikj-
um til þess að gulltryggja sig áfram
upp úr riðlinum. Fiorentina er
mun líklegra en Steaua Bucarest til
að hreppa þriðja sætið. Steaua fær
tröllvaxið verkefni þegar liðið sæk-
ir Bayern München heim á með-
an Fiorentina fær frönsku meistar-
ana í Lyon í heimsókn. Ítalska liðið
fer langt með að tryggja sér sæti í
UEFA Cup með því að ná stigi gegn
Lyon.
Allir leikir kvöldsins hefjast
klukkan 19.45 nema leikur Zenit og
Juventus sem hefst klukkan 17.30.
Meistaradeildin: Fimmta og næstsíðasta umferð riðlakeppninnar hefst í kvöld með átta
leikjum. Toppliðin eru í vænlegri stöðu en stórliðin Real Madrid og Porto þurfa að
girða sig í brók.
Línur að skýrast
sveinn wAAge
blaðamaður skrifar: sveinn@dv.is
© GRAPHIC NEWS
Umferð
Heimild: UEFA, Infostrada Sports
Fyrri viðureignir LEIKIR 25. NÓVEMBER
5
LEIKIR 26. NÓVEMBER
S-J-TMörk Stig S-J-T MörkStig
Villareal -
Manchester Utd
S0-J3-T0
AaB Aalborg -
Celtic
S0-J1-T0
Man Utd
Villareal
Celtic
AaB
2-2-0
2-2-0
0-2-2
0-2-2
7-1
9-5
1-5
5-11
8
8
2
2
Fenerbahce -
Porto
S0-J0-T1
Arsenal -
Dinamo Kyiv
S1-J2-T2
Zenit -
Juventus
S0-J0-T1
BATE Borisov -
Real Madrid
S1-J0-T0
Arsenal
Porto
Dinamo
Fenerbahce
2-2-0
2-0-2
1-2-1
0-2-2
10-3
5-7
3-3
3-8
8
6
5
2
Bayern -
Steaua
S1-J2-T0
Fiorentina -
Lyon
S0-J1-T0
Lyon
Bayern
Fiorentina
Steaua
2-2-0
2-2-0
0-3-1
0-1-3
10-6
6-2
3-6
3-8
8
8
3
1
Juventus
Real
Zenit
BATE
3-1-0
2-0-2
1-1-2
0-2-2
7-3
5-5
4-4
3-7
10
6
4
2
Bordeaux -
Chelsea
S0-J0-T1
CFR Cluj -
AS Roma
S1-J0-T0
Chelsea
Roma
Bordeaux
CFR
2-1-1
2-0-2
2-0-2
1-1-2
6-3
7-5
4-8
3-4
7
6
6
4
Shakhtar -
Basel
S1-J0-T0
Sporting -
Barcelona
S1-J0-T2
Barcelona
Sporting
Shakhtar
Basel
3-1-0
3-0-1
1-0-3
0-1-3
11-3
5-3
3-5
2-10
10
9
3
1
Internazionale -
Panathinaikos
S1-J0-T0
Anorthosis -
Werder Bremen
S0-DJ-T0
Inter
Anorth.
Panathin.
Bremen
2-2-0
1-2-1
1-1-2
0-3-1
7-4
6-5
6-7
3-6
8
5
4
3
Atletico Madrid -
PSV
S1-J0-T0
Liverpool -
Marseille
S2-J1-T2
Atletico
Liverpool
Marseille
PSV
2-2-0
2-2-0
1-0-3
1-0-3
7-3
7-4
5-6
3-9
8
8
3
3
OFTAST ÁFRAM
Leiktíðir í röð sem lið hafa komist í útsláttarkeppnina.
(tímabilið 2007-08 þar á meðal)
GRÓFUSTU LIÐIN
Brot framin
ÁRANGUR STJÓRANNA
Flestir sigrar þjálfara í Meistaradeildinni.
Real Madrid
Arsenal
Chelsea
Lyon
Barcelona
Internazionale
Liverpool
11 Alex Ferguson
Wenger
Hitzfeld
Ancelotti
van Gaal
Capello
Lippi
Benitez
del Bosque
Mourinho
Cuper
76
49
47
43
42
38
38
34
34
26
26
5
5
5
5
4
4
MÖRKIN DÝRMÆTU
Markahæstir Mörk
Manchester Utd
Juventus
Liverpool
FC Barcelona
Berbatov
Del Piero
Gerrard
Messi
Shakhtar
Juventus
Steaua
Dinamo Kiev
Panathinaikos
Sporting
Lyon
Chelsea
85
83
78
77
77
75
74
73
4
4
4
4
MEISTARADEILDIN
suðrænir djöflar nani og anderson
fylgjast með ungstirninu rafael da Silva
á æfingu man.utd fyrir leikinn gegn
villarreal.