Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Síða 40
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 200840 Áramót
A
llir þurfa hetju til
að horfa til. Ég man
þegar ég var yngri,
þá fann maður
sér hetju sem setti
manni einhvers
konar markmið.
Þannig verða hetjurnar til,“ segir
Þráinn Bjarnason Farestveit fram-
kvæmdastjóri sem valinn hefur ver-
ið hetja ársins hjá DV. Þráinn vann
mikla hetjudáð í lok september þeg-
ar hann bjargaði manni úr bifreið
sem stóð í björtu báli við Reykjaveg
í Reykjavík eftir að gas hafði lekið úr
kút sem var í aftursæti bílsins.
Daginn örlagaríka var Þráinn að
koma úr World Class í Laugum. Þeg-
ar hann ók af bílastæði líkamsrækt-
arstöðvarinnar tók hann eftir að
aksturslag bílsins fyrir framan hann
var frekar undarlegt. „Í beygjunni út
á Reykjaveg hikaði hann óeðlilega
lengi, þrátt fyrir að engin tiltakan-
leg umferð væri til að hindra hann
í að komast inn á götuna,“ lýsir Þrá-
inn. Þegar bíllinn svo loks beygir til
vinstri, suður Reykjaveg, ákveður
Þráinn að halda í humátt á eftir hon-
um í stað þess að taka hægri beygju
eins og Þráinn hugðist gera.
Bíllinn springur
Þegar bílarnir eru komnir að
hringtorginu rétt fyrir neðan gatna-
mót Reykjavegar og Suðurlands-
brautar ákveður Þráinn að renna
upp að hlið hins bílsins til að athuga
hvort ekki sé allt í góðu hjá öku-
manninum.
„En um leið og ég beygi inn á
akreinina við hliðina springur bíll-
inn bara í loft upp með þvílíkum
látum. Þetta var eins og maður sér í
bíómyndunum þegar skotið er á bíl
með skriðdreka eða sprengikúlu eða
einhverju álíka. Það myndast eld-
hnöttur, bíllinn lyftist og allar rúð-
ur þeytast úr,“ segir Þráinn. Bíllinn
hans fór ekki varhluta af hamagang-
inum því glerbrotunum rigndi yfir
hann.
„Ég snarnegli niður og hleyp út.
Bíllinn er fullur af eldi þegar ég kem
að honum og ég get því ekki athafn-
að mig neitt í fyrstu. En svo dregur
mikið úr eldinum sem seinna kom
í ljós að var vegna þess að gasið í
bílnum var að megninu til uppur-
ið. Þá sé ég manninn sitja þarna illa
brunninn og enn logar í hári hans og
kraga. Ég næ að slökkva þá loga með
hendinni og reyni svo að tala við
manninn en hann er ekki í ástandi
til að svara mér.“
Eldurinn magnast á ný
Þegar Þráni verður ljóst að ekki
er hægt að ná sambandi við öku-
manninn reynir hann að opna bíl-
dyrnar. „Það gengur ekki heldur því
þær skemmdust svo mikið við þetta
mikla högg. Þá er ekkert annað að
gera en að reyna að losa beltið af
manninum í gegnum gluggaopið, en
hann hindrar mig sífellt í því,“ segir
Þráinn. Hann telur að það hljóti að
hafa orsakast af áfallinu eða ástand-
inu sem ökumaðurinn var í eftir
sprenginguna.
Meðan á þessu stendur er eld-
urinn sífellt að magnast á ný inni í
bílnum. Þráni tekst loks eftir nokkr-
ar tilraunir að losa beltið af öku-
manninum með því að teygja sig
inn í bílinn.
„Þegar beltið er loks laust næ ég
að fara inn undir manninn og draga
hann þannig út um gluggann. Á
nokkurn veginn sama augnabliki
kemur kona þarna að og við styðj-
um manninn út á umferðareyjuna
sem þarna er. Þá sé ég að bíllinn er
orðinn alelda á ný. Við þurfum svo
að bíða í smá stund á eyjunni, áður
en við komumst yfir akreinina þar
sem umferðin liggur niður Reykja-
veg, því bílarnir stoppuðu ekki til að
hleypa okkur yfir,“ segir Þráinn.
Fannst óratími líða
Þegar Þráinn og konan eru kom-
in með manninn yfir götuna, og í ör-
ugga fjarlægð ef ske kynni að önnur
sprenging muni eiga sér stað, horfa
þau bjargarlaus á bílinn brenna.
Bíll Þráins varð einnig eldinum að
bráð. Hann segir þetta allt saman
hafa gerst mjög hratt, án þess þó
að átta sig á hversu margar sekúnd-
ur eða mínútur líða frá því að bíll-
„Um leið og ég beygi inn á
akreinina við hliðina spring-
ur bíllinn bara í loft upp með
þvílíkum látum. Þetta var eins
og maður sér í bíómyndun-
um þegar skotið er á bíl með
skriðdreka eða sprengikúlu
eða einhverju álíka.“
Þráinn Bjarnason
Hetja ársins 2008 að mati
DV með verðlaunagripinn
sem nafnbótinni fylgir.
MYND Sigtryggur Ari