Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Page 42
Þriðjudagur 30. desember 200842 Ættfræði umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson, kgk@dv.is Gunnlaugur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ 1978 og embættisprófi í lögfræði við HÍ 1986. Á námsárunum var Gunn- laugur blaðamaður við DV. Hann var framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1984-88 framkvæmdastjóri Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar, síð- ar Faxamjöls, frá ársbyrjun 1988 en fyrirtækið var síðan samein- að Granda, var framkvæmdastjóri hjá Urði, Verðandi Skuld um skeið, var stjórnarformaður Trygginga- miðstöðvarinnar og stjórnarfor- maður Icelandic Group um skeið og gegndi þar framkvæmdastjóra- stöðu. Gunnlaugur var fulltrúi í stúd- entaráði HÍ 1982-84, var formað- ur Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, 1983-84, sat í stjórn SUS 1985-87, sat í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1988-94, sat í stjórn Samtaka um vestræna samvinnu, var einn af stofnendum Frjálshyggjufélags- ins og sat í stjórn þess um ára- bil og var formaður Útvarpsráðs frá 1995-2007 er breytingar voru gerðar á lögum um ríkisútvarp- ið. Gunnlaugur sat í stjórn Félags fiskimjölsframleiðenda og for- maður þess 1990-95, sat í vara- stjórn Granda, í aðalstjórn Granda, sat í stjórn Ísfélags Vestmannaeyja, var stjórnarformaður Faxamarkað- arins, í stjórn Íslandsmarkaðar og var stjórnarformaður Fóðurblönd- unnar hf. Gunnlaugur var kjörinn stjórn- arformaður Íslands árið 2007. Fjölskylda Kona Gunnlaugs er Anna, f. 12.3. 1960, húsmóðir og stjórn- málafræðinemi. Hún er dóttir Júlíusar Halldórssonar, forstjóra Búvéla í Reykjavík, sem nú er ný- látinn, og k.h., Þórunnar Gröndal húsmóður. Börn Gunnlaugs og Önnu eru Þórunn, f. 18.9. 1981; Erla, f. 5.3. 1984; Anna Lára, f. 16.12. 1985; Edda, f. 15.1. 1991; Pétur Júlíus, f. 8.7. 1993. Systkini Gunnlaugs eru Garðar, f. 11.12. 1956, framkvæmdastjóri í Reykjavík; Hildur, f. 25.6. 1965, framkvæmdastjóri í Garðabæ; Ás- laug, f. 23.10. 1973, lögfræðingur. Foreldrar Gunnlaugs: Gunn- laugur Guðmundsson, f. 8.2. 1931, kaupmaður í Reykjavík, og k.h., Svanhildur Erla J. Levy, f. 4.9. 1937, kaupmaður. Ætt Gunnlaugur kaupmaður er son- ur Guðmundar, b. á Vesturhópshól- um í Þverárhreppi Jónssonar, b. á Grund og Vesturhópshólum Jóns- sonar, b. í Laxárdal í Bæjarhreppi Jónssonar. Móðir Jóns á Grund var Oddhildur, systir Sæmundar, langafa Þórðar, símstöðvarstóra á Hvammstanga, föður Sveins, fyrrv. skattstjóra Reykjanesumdæmis, en Þórður var einnig afi Þórs Magn- ússonar þjóðminjavarðar og Lýðs Björnssonar sagnfræðings. Odd- hildur var dóttir Lýðs, hreppstjóra í Hvítuhlíð í Hrafnadal Jónssonar, b. í Skálholtsvík, bróður Björns, pr. í Trölla- tungu, langafa Margrét- ar, langafa Sighvats Björgvinsson- ar, forstöðumanns Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands. Jón var sonur Hjálmars, ættföður Trölla- tunguættar Þorsteinssonar. Móðir Gunnlaugs var Lára Guðmannsdóttir, b. á Krossanesi á Vatnsnesi Árnasonar, og Agnar Eyjólfsdóttur. Svanhildur Erla er dóttir Jó- hannesar Levy, oddvita í Hrísakoti, Eggertssonar Levy, hreppstjóra á Ósum Jónssonar, pr. á Tjörn á Vatnsnesi, bróður Þorláks í Vestur- hópshólum, föður Jóns, forsætis- ráðherra og fyrsta formanns Sjálf- stæðisflokksins. Annar bróðir Jóns á Tjörn var Arnór, pr. á Hesti, afi Sigurðar Pálssonar, skálds og rit- höfundar. Jón á Tjörn var sonur Þorláks, pr. á Undirfelli Stefáns- sonar, og Sigurbjargar Jónsdóttur, prófasts í Steinnesi Péturssonar. Móðir Eggerts Levy var Ólöf Egg- ertsdóttir, hreppstjóra og skálds á Kolþernumýri í Vesturhópi Jóns- sonar. Móðir Jóhannesar Levy var Ögn Guðmannsdóttir, hálfsyst- ir Láru í Vesturhópshólum. Móðir Agnar var Ósk Guðmundsdóttir. Móðir Svanhildar Erlu er Marz- ibil Sigurrós Jenný, systir dr. Jóns Jóhannessonar prófessors. Jenný er dóttir Jóhannesar Péturs, b. í Hrísakoti Jónssonar, Jónsson- ar, b. í Syðsta-Hvammi á Vatns- nesi Arnbjarnarsonar, stúdents frá Stóra-Ósi Árnasonar, pr. að Bæg- isá Tómassonar. Móðir Jennýjar var Guðríður Guðrún Gísladóttir, b. á Varmá í Mosfellssveit Gunn- arssonar, b. á Lágafelli Gíslasonar. Móðir Gunnars var Ástríður Gunn- arsdóttir, hreppstjóra í Hvammi Einarssonar. Móðir Ástríðar var Kristín Jónsdóttir, yngra, hrepp- stjóra í Neðra-Seli, bróður Ólafs, b. á Fossi, langafa Odds, hreppstjóra á Sámsstöðum, langafa Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra. Jón var sonur Bjarna, hreppstjóra og ættföður Víkingslækjarættar Hall- dórssonar. Móðir Guðríðar Guð- rúnar var Guðrún Bjarnadóttir, b. á Hraðastöðum í Mosfellssveit Ei- ríkssonar. xxx xxx 95 ára á gamlársdag Franch Michelsen Franch fæddist á Sauðárkróki og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Ungl- ingaskóla Sauðárkróks 1931, Iðnskól- anum í Reykjavík 1936, lærði úrsmíði hjá föður sínum 1929-34, stundaði nám í danska úrsmiðaskólanum 1938-39 og lauk sveinsprófi í úrsmíði við Den Danske Urmagerskole Tekn- ologisk Institut í Kaupmannahöfn 1939, sótti endurmenntunarnám- skeið í Sviss 1978 í elektronískum úrum og stóð fyrir slíku námskeiði hér á landi 1981 og hefur auk þess tekið þátt í nokkrum endurmennt- unarnámskeiðum í Reykjavík og Sviss. Franch var úrsmíðasveinn hjá föður sínum 1934-35 og 1936-37, hjá Guðna A. Jónssyni í Reykjavík 1935- 36, hjá Axel Hansen í Kaupmanna- höfn 1937-38 og hjá Carl Jonsén, konunglegum hirðúrsmið, í Kaup- mannahöfn 1939-40. Hann rak eig- in úrsmíðavinnustofu á Sauðárkróki 1940-43 og síðan í Reykjavík og var framkvæmdastjóri fyrirtækisins Franch Michelsen ehf. frá 1943-92. Franch var einn af stofnendum Tóbaksbindindisfélags Sauðárkróks 1929 og ritari þess 1935, stofnaði Frí- merkjasafnarafélagið Ísland 1936 og sat síðar í stjórn Félags frímerkjasafn- ara í Reykjavík, einn af stofnendum Iðnaðarmannafélags Sauðárkróks 1942, var einn af stofnendum Vík- ings, félags ungra sjálfstæðismanna á Sauðárkróki og einn af stofnend- um Félags ungra sjálfstæðismanna í Skagafirði, var í fulltrúaráði sjálf- stæðismanna í Reykjavík og hefur verið fulltrúi á landsfundum flokks- ins, starfaði í fimm ár í stúkunni Gleym mér eigi, nr. 35 á Sauðárkróki, sat í mörg ár í stjórn Umf. Tindastóls, sat í stjórn Almenns stofnlánasjóðs Kaupmannasamtaka Íslands frá 1974, þar af varaformaður 1980-87 og formaður 1987-89 og sat í fulltrúa- ráði Kaupmannasamtaka Íslands um árabil frá 1976. Franch iðkaði frjálsar íþróttir af kappi á sínum yngri árum og keppti þá m.a. í hlaupum og glímu. Franch var einn af stofnendum skátafélags- ins Andvarar á Sauðárkróki 1929 og varð foringi þess 1931, stofnaði skáta- félögin Fálkar í Staðarhreppi og Fjall- búar á Hofsósi 1934, var skátafor- ingi í Reykjavík 1935-36 og frá 1943, í varastjórn BÍS 1936-38 og 1948- 50 og í aðalstjórn 1950-64, stofnaði skátafélagið Ísland í Kaupmanna- höfn 1939 og var foringi þess, var foringi danskrar skátasveitar 1940, einn af stofnendum og í foringjaliði Gilwell-skátaskóla á Íslandi, vann að stofnun gamalla skáta, St. Georgs- gildanna og undirbjó stofnun lands- samtaka þeirra 1963 og sat í stjórn þeirra til 1975 og var landsgildis- meistari 1971-75. Hann er heiðursfé- lagi skátafélagsins Eilífsbúar á Sauð- árkróki. Þá hefur hann verið ritstjóri ýmissa skátablaða. Þess má geta að fyrirtækið, Mi- chelsen Úrsmiðirnir, verður hundr- að ára á næsta ári, 2009. Það hefur alla tíð verið í eigu fjölskyldunnar og starfrækt af fagmönnum. Fjölskylda Eiginkona Franchs er Guðný Guðrún Jónsdóttir, f. 11.3. 1921, fyrrv. verslunarstjóri við Franch Michelsen hf. Hún er dóttir Jóns Sigurðssonar, f. 8.1. 1879, skrifstofustjóra, og Ingi- bjargar Eyjólfsdóttur, f. 14.11. 1895, húsmóður. Börn Franch og Guðnýjar eru Ingibjörg Ásthildur Michelsen, f. 27.11. 1938, fyrrv. kaupmaður; Guð- rún Rósa Michelsen, f. 24.12. 1944, fyrrv. verslunarstjóri; Lilja Dóra Mi- chelsen, f. 17.1. 1948, stuðningsfull- trúi; Frank Michelsen, f. 29.2. 1952, d. 16.5. 1954; Frank Úlfar Michelsen, f. 26.4. 1956, úrsmíðameistari; Hlyn- ur Jón Michelsen, f. 9.12. 1961, bíl- stjóri.; Anna Birna Michelsen, f. 15.6. 1963, leiðsögumaður. Systkini Franchs: Karen Ed- ith Michelsen, f. 2.8. 1910, d. 20.2. 1965, prjónakona; Pála Elinborg Mi- chelsen, f. 24.8. 1911, d. 19.6. 2005, prjónakona; Hulda Ester Michel- sen, f. 26.11. 1912, d. 29.8. 1985, ljós- myndari; Rósa Kristín Michelsen, f. 5.3. 1915, d. 25.12. 1917; Georg Bernharð Michelsen, f. 20.5. 1916, d. 3.11. 2001, bakarameistari; Paul Valdimar Michelsen, f. 17.7. 1917, d. 27.5. 1995, garðyrkjumaður; Aðal- steinn G. Michelsen, f. 28.10. 1918, d. 9.12. 1994, bifvélameistari; Ottó Alfreð Michelsen, f. 10.6. 1920, d. 11.6. 2000, forstjóri; Elsa María Mi- chelsen, f. 12.5. 1922, d. 6.2. 1976, húsmóðir; Kristinn Pálmi Michel- sen, f. 5.3. 1926, d. 29.5. 2008, versl- unarstjóri; Aage Valtýr Michelsen, f. 14.10. 1928, bifvélameistari og for- stjóri. Foreldrar Franchs voru Jörgen Frank Michelsen, f. 25.1. 1882, d. 16.7. 1954, úrsmiður og kaupmaður á Sauðárkróki, og Guðrún Pálsdóttir Michelsen, f. 9.8. 1886, d. 31.5. 1967, húsmóðir. Ingólfur Sigurðs Ingólfsson, for- maður Vélstjórafélags Íslands og forseti Farmanna- og fiskimanna- sambands Íslands, fæddist á Akra- nesi og ólst þar upp. Hann gekk í Barna- og gagnfræðaskóla Akra- ness, stundaði nám við Iðnskóla Keflavíkur 1948-‘49, lærði vélvirkj- un í Vélsmiðju Ol. Olsen í Ytri- Njarðvík 1946-‘50, stundaði nám við Vélskóla Íslands og lauk þaðan prófi frá rafmagnsdeild 1953. Ingólfur starfaði hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur við Elliðaár 1953-‘68, var framkvæmdastjóri Vélstjórafélags Íslands 1968-‘70, formaður þess 1970-‘83, var for- seti Farmanna- og fiskimannasam- bands Íslands í eitt kjörtímabil og gegndi ýmsum öðrum trúnaðar- störfum um árabil. Hann var heið- ursfélagi Vélstjórafélags Íslands frá 1984. Ingólfur kvæntist Vilhelmínu S. Böðvarsdóttur, húsmóður sem einnig er látin, og eignuðust þau fimm börn auk þess sem hann átti dóttur frá því áður. Foreldrar Ingólfs voru Ingólf- ur Sigurðsson, f. 2.11. 1891, d. 6.2. 1954, verkstjóri á Akranesi, og Krist- ín Ingunn Runólfsdóttir, f. 14.11. 1894, d. 12.12. 1975, húsmóðir. Kjartan Gunnar Kjartansson rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk@dv.is ingólfur s. ingólfsson f. 31. desember 1928, d. 26. febrúar 2005 50 ára í gær Gunnlaugur sævar Gunnlaugsson stjórnarformaður og framKvæmdastjóri merkir íslendingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.