Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2008, Síða 80
n Stjörnuparið Eva María Jónsdótt-
ir, sjónvarpskona og útvarpsþul-
ur, og Óskar Jónasson leikstjóri er
skilið. Séð og heyrt segir frá þessu í
nýjasta hefti sínu og
jafnframt því að
skilnaðurinn hafi
verið mikið áfall
í kunningja- og
vinahópi pars-
ins. Almennt
hafði verið talið
að hjónaband
þeirra stæði
traustum
fótum en nú
er komið á
daginn að
svo bregð-
ast krosstré
sem önnur
tré.
Innvígður og innmúr-
aður drullusokkur?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Ég var innvígður og innmúraður á
35. Goslokahátíðinni í Vestmanna-
eyjum í júlí síðastliðnum,“ segir Geir
Jón sem er Drullusokkur númer 165 í
mótorhjólaklúbbnum Drullusokkar í
Vestmannaeyjum.
„Ég var staddur í kirkjugarðin-
um ásamt fjölda fólks þar sem við
vorum að minnast Golla Valdason-
ar sem var þekktur drykkjumaður í
Eyjum. Þá kom Tryggvi beikon, for-
maður Drullusokkanna, til mín og
bauð mér í félagið. Ég tók því boði
feginsamlega og fannst þetta mikill
heiður, verandi fyrrverandi lögreglu-
maður í Eyjum og þurfti oft að taka
á þessum peyjum á sínum tíma. En
þeir eru greinilega sáttir við mig.
„Þetta nafn var valið á félag-
ið fyrir mörgum árum. Það kom til
í einhverri hendingu en þessi fé-
lagsskapur heitir ekki þessu nafni í
neikvæðum skilningi. Drullusokkur
leysir málið og tekur stíflur og menn
leysa málin farsællega í klúbbnum í
anda drullusokksins,“ segir Geir Jón
sem fær aðeins að kenna á stríðni
frá vinum og vandamönnum sökum
nafnbótarinnar. „Þeir láta mig sumir
hverjir heyra það en ég er afar stoltur
af því að vera Drullusokkur.“
Geir Jón er ekki aðeins meðlimur
Drullusokkanna heldur einnig Trú-
boðanna og Bykkjanna, mótorhjóla-
kúbbs lögreglumanna.
liljakatrin@dv.is
Stjörnuhjón
Skilin
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/N
A
T
4
45
83
1
2/
08
Geir Jón Þórisson er virkur félagi mótorhjólaklúbbsins í Vestmannaeyjum:
Stoltur drulluSokkur
n Auðmaðurinn Þorsteinn Jónsson,
betur þekktur sem Steini í Kók, er
á köflum ákaflega nægjusamur. Á
meðan aðrir auðmenn eru með
flatskjái á nánast hverjum vegg læt-
ur Þorsteinn sér nægja að vera með
túbusjónvarp í eld-
húsinu heima hjá
sér. Rétt er þó að
taka fram að hann
er með vegleg-
an flatskjá á þeim
hluta heimilisins
sem ætlaður er til að
stunda sjónvarps-
gláp. Fyrir þá
sem ekki vita
hvað túbu-
sjónvarp er
skal útskýrt
að það
er gamla
þykka
gerðin af
sjón-
varps-
tækjum.
n Jónas Kristjánsson, bloggari og
fyrrverandi ritstjóri, lýsir því á bloggi
sínu hvernig hann fann pottþétta
aðferð til að léttast um tvö kíló á
viku. Hann einfaldlega borðaði gras
fjórum sinnum á dag og fisk einu
sinni á dag. En svo fór allt á hliðina
hjá Jónasi þegar jólin gengu í garð:
„Fæ hins vegar engin verðlaun fyr-
ir pottþétta aðferð við
[að] þyngjast aftur
um tvö kíló á einni
jólaviku. Þrautreynd
aðferð fjöldans. Lá
í gærmorgun með
brjóstsviða,
sem ég vissi
ekki, hvort
stafaði af
hangikjöti
eða pipar-
kökum.“
ÞyngdiSt um
tvö kíló
Drullusokkur nr. 165 geir Jón var
vígður inn í Drullusokkana á goslokahá-
tíðinni í Vestmannaeyjum í júlí á þessu
ári. MynD Stefán KarlSSon
AuðmAður með
túbuSjónvArp