Bridge - 12.12.1957, Qupperneq 17

Bridge - 12.12.1957, Qupperneq 17
BRIDGE 15 Tvímenningskeppni meistaraflokks B.R. Tvímenningskeppni meistarafl. Bridgefélags Reykjavíkur lauk fyrst í nóvember. Spilaðar voru að venju fimm umíerðir, í tveimur 16 para riðlum. Efstu pörin lentu ekki saman fyrr en í síðustu um- ferð, og varð það til þess, að fjögur pör komust nokkuð á undan i fyrstu umferðunum. Mótið gekk mjög vel, undir ágætri stjórn Vil hjálms Sigurðssonar. Eftir fyrstu umferðina höfðu Guðlaugur Guðmundsson og Krist ján Kristjánsson bezta skor — 283 — en meðalskor var 210, svo hér var um óvenjuháa skor að ræða. Næstir voru Asmundur Pálsson og Jóhann Jónsson með 275 og þriðju Agnar Jörgensson og Ólafur Hauk ur Ólafsson með 262. f 2. umferð náðu Einar Þorfinnsson og Lárus Karlsson langbeztri skor og færð ust í efsta sætið úr sjötta. Jafn framt var það bezta skorin, sem náðist í keppninni eða 288. Einar og Lárus voru með eftir þessar tvær umferðir 534, næstir voru Guðlaugur og Kristján með 516. Ásmundur og Jóhann með 513 og Agnar og Ólafur með 505. Næstu pör komu langt á eftir. í þriðju umferðinni sóttist Guð 'laugi og Kristjáni bezt og náðu aftur fyrsta sætinu með 784, Ein ar og Lárus fylgdu fast á eftir með 778, Ásmundur og Jóhann voru með 752 og Ólafur og Agnar 741, fjörutíu stigum á undan næsta pari. f fjórðu umferð náðu Einar og Lárus efsta sætinu á ný með 1027 og höfðu nú nokkurt forskot á næsta par, en þeir Agnar og Ó1 afur voru nú komnir í annað sæti með 981, Ásmundur og Jóhann voru þriðju með 978 og Guðlaugur og Kristján féllu niður í fjórða sæti með 977. En nú fóru fleiri að blanda sér í baráttuna um efsta sætið. Kristinn Bergþórsson og Stefán Stefánsson höfðu nú hlotið 961 og Ásbjörn Jónsson og Ewald Berndsen voru með 958. í fimmtu og úrslitaumferðinni hlutu flest efstu pörin tiltöhilega lága skor, svo staðan breyttist lít ið frá umferðinni á undan. Efetu átta pörin í keppninni urðu sem hér segir. 1. Einar og Lárus 1249 og sigruðu þeir því með nokkrum yfirburðum. 2. Agnar og Ólafur 1190 3. Kristinn og Stefán 1185 4. Guðlaugur og Kristján 1181. 5. Ás mundur og Jóhann 1179. 6. Ás björn og Ewald 1179. 7. Jóhann Jó hannsson og Stefán Guðjöhnsen 1163 og 8. Haukur Sævaldsson og Þórir Sigurðsson 1146. Á þessu má marka að keppnin hefir verið mjög hörð um 2—6 sæti og munar þar aðeins 11 stigum. Sökum rúmleysis í blaðinu verð ur aðeins eitt spil birt frá þessari keppni og í því fengu sigurvegar arnir „topp“. Spilið er þó varla gott dæmi um spilamennsku þeirra í keppninni, en sýnir að þeir hafa stundum haft heppnina með sér og teflt á tæpasta vaðið.

x

Bridge

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bridge
https://timarit.is/publication/1131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.