Bridge - 12.12.1957, Side 29
BRIDGE
27
var að minnsta kosti skipaður 20
sveitum eða meir. Fjölgun bridge
félaga hér í Reykjavfk á eflaust
þátt í þvi hve þátttaka hefir minnk
að á síðustu tveimur árum í mótum
hjá Bridgefól. Reykjavíkur — þó
hins vegar verði ekki gengið fram
hjá þeirri staðreynd, að léleg
stjórn á félaginu á þar líka ein
hvem hlut að máli.
Mótinu lauk þriðjudaginn 26.
nóvember með sigri sveitar Ólafs
Þorsteinssonar eftir harða keppni
við sveit Magnúsar Sigurðssonar.
Hlutu báðar sveitirnar 12 stig.
Sveit Ólafs tapaði í fyrstu umferð
fyrir sveit Þorsteins Bergmanns
með fimm stigum (fjögur stig jafn
tefli), en vann eftir það alla leik
ina. Fyrir síðustu umferð voru að
eins þessar sveitir öruggar um að
komast í meistaraflokk, en ekiki
færri en fimm sveitir háðu bar
áttu um næstu tvö sætin. — Það
voru sveit Sveins Helgasonar með
6 stig, sveitir Ragnars Halldórs
sonar, Leifs Jóhannssonar og Guð
mundar Sigurðssonar með 5 stig
og sveit Þorsteins Bergmanns með
4 stig. Fjórar af þessum sveitum
mættust innbyrðis í síðustu um-
ferðinni og fóru leikar þannig, að
Sveinn vann Ragnar og hlaut því
8 stig, og Þorsteinn vann Guðmund
og hlaut 6 stig. Sveit Leifs tapaði
fyrir sveit Magnúsar og sveit Ól-
afs vann sveit Þorsteins Thorlac
iusar.
Úrslit í mótinu urðu því þessi:
1. Ólafur 12 stig. 2. Magnús 12 stig
3. Sveinn 8 stig. 4. Þorsteinn Berg
mann 6 stig. 5. Guðmundur 5 st.
6. Leifur 5 st. E. Ragnar 5 st. og
Þorsteinn Thorlacius 3 st.
í sveit Ólafs spiluðu auk hans,
Agnar Jörgensson, Árni Guð-
mundsson, Hallur Símonarson,
Símon Símonarson og Þorgeir Sig
urðsson. í sveit Magnúsar spiluðu
auk hans Árni M. Jónsson, Geir
Þorsteinsson, Ingólfur Isebarn og
Örn Guðmundsson.
V
Bridgefélag Hafnarfjarðar.
Nýlega var háð bæjarkeppni
milli Akurnesinga og Hafnfirð-
inga. Spilað var á fimm borðum
og varð jafntefli. Á 1. borði sigr-
aði sveit Óla Arnar Ólafssonar, Ak,
sveit Péturs Auðunssonar, Hf. Á
2. borði varð jafntefli, á þriðja
og fimmta borði sigruðu Hafnfirð
ingar, en Akurnesingar á fjórða.
Spilað var í Hafnarfirði.
V
Tafl- og bridgeklúbburinn.
Að undanförnu hefir staðið yfir
sveitakeppni í 1. fl. hjá klúbbn-
um, en keppninni var ekki að fullu
lokið, er þetta blað fór í prentun.
Sýnt var þó, að sveit Zóphóníasar
Benediktssonar myndi bera sigur
úr býtum. Fjórar aðrar sveitir
munu færast upp í meistaraflokk,
en sveitakeppni meistaraflokks
mun hefjast um 10. janúar. í þeiri’i
fceppni taka þátt tíu sveitir.
Þátttaka í sveitakeppni 1. flokks
var mikil eins og í öðrum mótum
Tafl- og bridgeklúbbsins á þessum
vetri. Spilað er í Sjómannaskólan
um á hverjum fimmtudegi og ann
an hvern mánudag.