Lögmannablaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 42
Heiðursgestur fundarins, Guðni Ágústsson, land-
búnaðarráðherra ásamt þeim Ásgeiri Thoroddsen, hrl.
formanni LMFÍ og Ragnhildi Arnljótsdóttur, formanni
LI.
Ólafur Sigurgeirsson, hrl. ásamt fríðu föruneyti
kvenna úr lögmannsstétt.
Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, kennslustjóri lagadeildar
HÍ ásamt bandarískum lagaprófessor og fleirum úr
lagadeild.
Viðbrögð gesta létu ekki á sér standa eins og sést á
þessari mynd. Helgi I. Jónsson, formaður DÍ, Lára V.
Júlíusdóttir, hrl. og Ingimar Ingason, framkv.stj. LMFÍ.
Lögmenn í Hafnafirði ásamt fleirum.
Einar Gautur Steingrímsson hrl. ásamt lögmönnum úr
Skeifunni.
Jólafundur Lögmannafélags Íslands
Hinn árlegi jólafundur Lögmannafélags Íslands, Dómarafélags Íslands og Lögfræðingafélags Íslands
var haldinn í Víkingasal Hótels Loftleiða, fimmtudaginn 6. desember s.l. Heiðursgestur á fundinum að
þessu sinni var Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra. Jólafundur félaganna hefur verið geysilega vin-
sæll og fjöldi þátttakenda farið vaxandi ár frá ári, enda hér um að ræða kjörinn vettvang fyrir félags-
menn þessara félaga til að hittast utan hins daglega amsturs.