Lögmannablaðið - 01.10.2003, Page 19
19L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
Fréttir frá félagsdeild
Fréttir frá félagsdeild
Starfsmaður félagsdeildar hefur
undanfarið einbeitt sér að undirbún-
ingi haustsins. Ekki hafa þó haust-
verkin falist í sultugerð eða slátur-
stússi að þessu sinni heldur undir-
búningi námskeiða fyrir lögmenn,
haustferðar á Þingvelli og annað
sem þarf að huga að svo þeir svelti
ekki á andlega sviðinu. Afrakstur-
inn er nokkuð drjúgur þótt hann fari
hvorki í búrið eða frystikistuna.
Að þessu sinni verður farið í
haustferðalag á Þingvelli og mun Sigurður Lín-
dal fyrrverandi lagaprófessor verða fararstjóri.
Lagt verður af stað kl. 14 laugardaginn 4. okt-
óber, og verður gengið um þingstaðinn með
Sigurði. Endað verður með þriggja rétta máltíð
í Valhöll.
Haustnámskeið
Á þessu hausti eru 10 námskeið skipulögð
hjá félaginu og eru þau af ýmsu tagi. Má þar
nefna trílógíu um fjármálamarkaðinn, upp-
lýsingaleit á netinu, word fyrir vana, námskeið
í tölvupósti og villibráðarnámskeið sem búist
er við mikilli þátttöku á. Einnig eru skipulögð
námskeið fyrir starfsmenn á lögmannsstofum,
bæði í ensku og gerð hæstaréttarágripa. LMFÍ
hefur það að stefnu sinni að bjóða félags-
mönnum sínum upp á fjölbreytt námskeið á
sanngjörnu verði og félagsmenn kunna vel að
meta það. Námskeiðin eru öll auglýst á öðrum
stað í blaðinu og um að gera að skrá sig sem
fyrst.
Handbók lögmanna
Það gerist öðru hvoru að lögmenn hafa sam-
band við félagið og undra sig á því að þeir hafa
ekki fengið sent efni í handbók lögmanna um
langa hríð. Svarið við þessu er að handbókin
hefur um nokkurra ára skeið verið gefin út á
netinu. Í vinstra horni á heimasíðu félagsins,
www.lmfi.is er tengill í handbók þar sem
félagsmenn geta valið á milli fjölmargra mögu-
leika, m.a. að prenta út félagatalið. Skrifstofa
LMFÍ getur hins vegar ljósritað
félagatalið ef menn kjósa frekar og
kostar það þá kr. 600,-
Erfðafjárskattur –
Skuldabréf
Á heimasíðu LMFÍ eru reikni-
vélar til að reikna út erfðafjárskatt
og afborganir skuldabréfa. Reikni-
vélarnar eru aðeins opnar fyrir
félagsmenn félagsdeildar LMFÍ.
Bókasafn LMFÍ
Á hverju ári er talsverðri fjárhæð varið í
kaup á nýjum bókum, gagnagrunnum og
föstum áskriftum fyrir bókasafn Lögmannafé-
lagsins en sérstök bókasafnsnefnd sér um valið.
Það sem af er þessu ári hafa verið keyptar
u.þ.b. 40 bækur en auk þess er notkun Karnov
og Ufr á internetinu sífellt að aukast. Hægt er
að skoða bókakost bókasafns LMFÍ á heima-
síðu félagsins. Metrabókin er opin fyrir alla
meðlimi félagsdeildar LMFÍ og því handhægt
að athuga hvort viðkomandi rit eru til áður en
komið er til að leita á bókasafninu. Boðið er
upp á aðstoð fyrir hádegi við að komast í
gagnagrunna á internetinu og fleira. Einnig er
rétt að benda á námskeið í upplýsingaleit á net-
inu sem verður haldið á haustönn hjá félaginu.
Internetið er sífellt að verða mikilvægari leitar-
miðill fyrir lögmenn sem aðrar stéttir og enginn
ætti að láta fram hjá sér fara stutt námskeið í að
rata í því völundarhúsi. Auk þess er byrjað að
bjóða upp á að kaupa einstakar greinar hjá
Karnov og UfR en nánar er hægt að lesa um
það á heimasíðu þeirra www.thomson.dk.
Eyrún Ingadóttir