Lögmannablaðið - 01.10.2006, Page 14
< LÖGMANNABLAÐIÐ – 3 / 2006
kom að verðmæti þess „pro bono“
framlags sem öll útibú Morgan Lewis
inna af hendi sé metið á um 10 millj-
ónir dollara á ári. Þetta samsvarar því
að hver eigandi leggi fram um eina og
hálfa milljón íslenskra króna árlega í
þessu skyni. Í heimsókn okkar til San
Francisco Bar Association síðar um dag-
inn kom fram að vissulega væri erf-
iðara að fá stærri lögmannsstofurnar
til að vinna „pro bono“ vinnu en þær
smærri en jafnframt upplýstu lögmenn
Morgan Lewis að talsverð pressa væri
á að fá lögmenn stærri stofanna til að
taka að sér slík verkefni, svo sem varnir
í dauðarefsingamálum. Slíku verkefni
fylgir mikil vinna enda tekur iðulega
mörg ár að fylgja dauðarefsingamáli
eftir á þeim mörgu dómsstigum sem
málið fer gegnum áður en yfir lýkur og
kostnaður getur verið um tvær millj-
ónir dollara.
Greinarhöfundur, Erla S. Árnadóttir,
ásamt Jóhannesi Albert Sævarssyni og
Ingimar Ingasyni. Einnig sést í Gísla M.
Auðbergsson.
Gestgjafar hjá Morgan Lewis: f.v.
Caryn S. Schreiber, James N. Penrod
og Joan M. Haratani.
Í samtali við Joan M. Haratani og
reyndar einnig í samtali við starfs-
mann San Francisco Bar Association
síðar um daginn kom fram að talsvert
brottfall væri af yngri lögmönnum úr
stéttinni, sér í lagi meðal kvenna, og
að félagið stæði fyrir námskeiðum þar
sem tekið væri fyrir hvernig samræma
mætti vinnu og einkalíf.
Við tókum eftir því að fundarher-
bergin á þeirri hæð húsakynna stof-
unnar sem hýsir móttökuna voru að
öllu leyti stúkuð af frá ganginum með
gleri þannig að fundarmenn blöstu við
hverjum þeim sem leið átti hjá. Að
sögn Joan er talið heppilegt að hafa
þetta fyrirkomulag en fyrir nokkrum
árum kom fyrir að einhver fundarmað-
ur hóf að skjóta af byssu á nærstadda
inni í fundarherbergi. Við höfðum
einnig tekið eftir því að í anddyri húss-
ins var þess vandlega gætt að enginn