Lögmannablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 4

Lögmannablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 4
 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007 Frá rit­st­jórn Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl. Meginefni þessa tölublaðs er könnun sem Lögmannablaðið lét gera meðal lögmanna á lögmannsstofum. Þetta er í fyrsta sinn sem könnun af þessu tagi er gerð hér á landi en lögmannafélög á Norðurlöndum hafa gert svipaðar kann- anir reglulega síðustu ár. Það ber að þakka lögmönnum undirtektirnar. Svarhlutfallið var 63% sem er sambærilegt við samsvarandi kannanir í Noregi og Svíþjóð. Fjölda spurninga var haldið í lágmarki og þeim hagað þannig að auðvelt væri fyrir lögmenn að svara þeim. Fyrir vikið er könnunin ekki jafn ítarleg og norrænu kannanirnar sem byggjast mikið á því að safna upplýsingum um rekstr- arafkomu lögmannsstofanna. Ef litið er til stærðar lögmannsstofanna staðfesta niðurstöð- urnar að hátt í helmingur þeirra lögmanna sem starfa á lögmannsstofum (42%) eru á stærri stofum, þar sem eru fleiri en fimm lögmenn. Fulltrúum virðist fara hlutfallslega fjölgandi og þeim sem starfa á stóru stofunum með tíu eða fleiri lögmönnum. Það er sama þróun og víða annars staðar. Aðsókn að réttindanámskeiðunum staðfestir það einnig að ungir lögfræðingar vilja eiga þann möguleika að fara í lög- mennsku. Þá er ánægjulegt að fá staðfest að konur standa jafnfætis körlum hvað varðar tímagjald og eru framsæknari þegar kemur að sérhæfingu og markaðssetningu. Þessi könnun er vonandi upphafið að frekari kortlagningu á starfsumhverfi lögmanna. Megingildi kannana af þessu tagi felst í endurtekningunni, að geta mælt breytingar og fylgst þannig með þróuninni innan greinarinnar. Þá getur verið ástæða til að bæta við spurningum. Að þessu sinni voru lögmenn, svo dæmi sé tekið, ekki spurðir hvort þeir sinntu aðallega ráðgjöf við fyrirtæki eða einstaklinga. Eins og sést af umfjöllun blaðsins um norrænu kannanirnar er verulegur munur er á þessum tveimur hópum þar bæði hvað varðar tekjur og sérhæfingu. Notkun á hugtökum olli nokkrum þeirra sem svöruðu könnuninni erfiðleikum. Það á ekki síst við um einyrkja- hugtakið en almennt hefur það verið notað um þá sem starfa einir án aðstoðar eða félags við aðra. Hugtakið „sjálf- stætt starfandi lögmaður“ er heldur ekki mjög lýsandi og ekki síst þegar lögmenn eru hluthafar í félagi um rekstur stofunnar. Það er því spurning hvort þetta heiti eigi lengur rétt á sér sem samheiti yfir lögmenn sem eru eigendur eða eiga eignarhlut í lögmannsstofu nema ef vera skyldi af sögu- legum ástæðum. Annars sýnist mér eðlilegra að tala um eigendur. Eins er með fulltrúana. Í könnuninni er gengið út frá því að allir sem ekki eru eigendur séu fulltrúar. Ekki var kannað hvort fulltrúarnir hefðu allir sömu stöðu gagnvart eigendum eða hvort einhver breyting hefði orðið þar á með fjölgun fulltrúa. Mér sýnist að þessi hugtakanotkun miðist frekar við gamla einyrkjafyrirkomulagið en síður þróuð fyr- irtæki eins og margar lögmannsstofur eru í dag. Í blaðinu er einnig fjallað nokkuð ítarlega um þjónustu- tilskipunina sem ætlað er að auðvelda lögmönnum og öðrum þeim sem veita þjónustu að fara á milli landa innan EES- svæðisins. Í því felst ekki aðeins áskorun fyrir íslenska lögmenn heldur einnig tækifæri til starfa erlendis. Sá réttur er reyndar þegar fyrir hendi eins og fram kemur í grein Margrétar Gunnarsdóttur um hvernig hún fékk íslensk lög- mannsréttindi sín viðurkennd í Noregi en þar starfar hún nú sem „advokat“. Þá er ástæða til að árétta mikilvægi þess fyrir hlutleysi dóm- stóla að persónur dómara séu ekki dregnar inn í umfjöllun um niðurstöðu mála eins fram kemur í pistli formanns hér í blaðinu.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.