Lögmannablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 26

Lögmannablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 26
2 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007 Þjónustuviðskipti innan Evrópska Efnahagssvæðisins Stærsti hluti þeirra starfa sem unnin eru í EES löndunum, þ.m.t. á Íslandi, telst til þjónustuviðskipta. Þjónustuviðskipti nema þó einungis um 20% af þeim viðskiptum sem eiga sér stað á milli landa EES. Ástæðan er sú að þjónustufyrirtæki mæta hindr- unum í öðrum aðildarríkjum, sér í lagi í formi skilyrðisbindinga og leyf- isveitinga af hálfu þess ríkis þar sem fyrirtækin hyggjast bjóða þjónustu. Til þess að bæta þessa stöðu var, eftir mikla þrautagöngu, tilskipun nr. 123/2006/EC um þjónustu samþykkt innan Evrópusambandsins. Hér á eftir verður farið yfir helstu meginreglur til- skipunarinnar eins og hún lítur út í dag og skoðað hvernig hún getur varð- að lögmannsþjónustu hér á landi. Gildissvið þjónustu- tilskipunarinnar Tilskipunin gildir almennt um þjón- ustu sem veitt er af aðilum með stað- festu í aðildarríki og tekur bæði til þjónustu við viðskiptalífið og neyt- endur, þar á meðal lögfræðiþjónustu, skatta- og fasteignaráðgjöf. Sú þjón- usta sem ekki er sérstaklega undanskil- in gildissviði tilskipunarinnar fellur undir hana, en undanskilin er m.a. þjónusta í almannaþágu sem ekki er rekin í hagnaðarskyni, fjármálaþjón- usta, rafræn fjarskiptaþjónusta, þjón- usta á sviði samgangna, starfsmanna- leigur, heilbrigðis- og félagsleg þjón- usta. Þjónustutilskipunin inniheldur almennar reglur enda er tekið fram í henni að ef í evrópusambandslöggjöf- inni séu ákvæði sem fjalli um aðgengi eða framkvæmd þjónustu í ákveðn- um geirum, gangi sú löggjöf framar beri ákvæðum ekki saman. Ber hér að nefna að sérstakar evrópureglur eru í gildi um lögmenn, sjá hér á eftir. Einföldun stjórnsýslu Í tilskipuninni er fjallað um aðgerð- ir aðildarríkjanna til þess að auðvelda aðgengi þjónustuaðila frá öðru aðild- arríki. Þar kemur m.a. fram að stjórn- völdum beri að yfirfara löggjöf sína til þess að einfalda verklagsreglur og formsatriði. Aðildarríki skulu sjá til þess að ákveðnar upplýsingar séu aðgengi- legar bæði seljendum og kaupendum þjónustunnar, einkum verklagsreglur og formsatriði sem þjónustuveitendur þurfa að uppfylla. Þá ber stjórnvöld- um að sjá til þess að þjónustuveitanda sé mögulegt að ganga frá öllum forms- atriðum á einum og sama stað. Upplýsingar um verð Seljendum þjónustu ber að hafa til- teknar lágmarksupplýsingar um sig og þá þjónustu sem þeir hyggjast veita aðgengilegar. Þá ber að tryggja greið- an aðgang þjónustukaupenda að upp- lýsingum um aðgengi og framkvæmd þjónustunnar í öðrum aðildarríkjum. Nefna má að í þjónustutilskipuninni er tekið fram að þjónustuveitandi þurfi að framvísa upplýsingum um verð fyrir þjónustuna (grein 22, f-liður) að öðrum kosti er skylt að kynna þá aðferð sem notuð er við verðútreikning. Stjórnsýsluleg samvinna Kveðið er á um stjórnsýslulega sam- vinnu og upplýsingaflæði milli þeirra stofnana aðildarríkjanna sem ábyrgar eru fyrir eftirfylgni með innleiðingu tilskipunarinnar. Eru þær stofnanir skyldugar til samvinnu, upplýsinga- miðlunar og gagnkvæmrar aðstoðar. Frelsi veitanda þjónustu til að staðfesta sig í öðru aðildarríki Reglur um veitingu leyfis fyrir stað- festu eru endurbættar og ástæður sem heimila að sérstakrar leyfisveitingar sé þörf, eru takmarkaðar að mun, auk þess sem að umrædd leyfisveiting þarf að vera nauðsynleg og ferlið hvorki fela í sér mismunun né ganga lengra en nauðsyn krefur. Í gildi er tilskipun 98/5/EB „um að auðvelda lögmönnum að starfa til fram- búðar í öðru aðildarríki en þar sem þeir hlutu starfsmenntun sína og hæfi“ og er tilgangur hennar m.a. sá að auð- velda lögmönnum að fá starfsheiti í gistiaðildarríkinu. Til eru fjölmargir dómar Evrópudómstólsins sem lúta að þessu, sbr. t.d. dóm í máli C-193/05. Sigrún H. Kristjánsdóttir, lögfræðingur Evrópuskrifstofu Samtaka atvinnulífsins i Brussel Þjónustutilskipunin og áhrif hennar á lögmenn

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.