Lögmannablaðið - 01.03.2007, Page 15
LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007 > 1
lögmenn eru með sameiginlegan rekst-
ur. Yngri lögmenn og lögmenn með
starfsreynslu undir fimm árum eru
oftast á slíkum stofum. Þá starfa 7%
lögmanna á lögmannsstofum þar sem
er einn eigandi með einn eða fleiri full-
trúa í starfi. 36% lögmanna eru ein-
yrkjar eða starfa fyrir eigin reikning
með sameiginlegt skrifstofuhald (regn-
hlíf ). Hlutfallslega færri konur starfa
sem einyrkjar en þær eru færri í efri
aldurshópnum þar sem einyrkjafyr-
irkomulagið er algengast. Einyrkjarnir,
einir út af fyrir sig, eru 22% lögmanna
en hlutfallið í hópi lögmanna sem eru
60 ára eða eldri er 47%. Tæplega 5%
svarenda skilgreindu sig sem „annað“
en flestir þeirra voru einyrkjar, ýmist
með fulltrúa eða í sameiginlegum
rekstri. Flestir þeirra eru yfir fimm-
tugt.
Þóknun lögmanna
Verð á útseldum tíma án virðisauka-
skatts hjá lögmönnum er á bilinu 6.000
til 20.000 krónur þótt dæmi séu um
hærra gjald. Flestir lögmenn, eða 64%,
taka á milli 10.000 til 13.900 krónur
á tímann en 20% taka á bilinu 14.000
til 17.900 krónur. Tæplega 8% lög-
manna taka tímagjald á bilinu 8.000
til 9.900 krónur og 2% lögmanna
taka á bilinu 6.000 til 7.900 krónur.
Athyglisvert er að yngstu lögmennirnir
og þeir sem eru með minnstu starfs-
reynsluna eru ekki í hópi þeirra sem
taka lægsta tímagjaldið en þeir starfa
hlutfallslega flestir á stóru stofunum.
Hlutfallslega fleiri konur eru með
tímagjald á bilinu 10.000 til 13.900
heldur en karlar og átta af hverjum tíu
lögmönnum með innan við fimm ára
starfsreynslu eru einnig í þeim hópi.
Hafa þarf í huga að konur eru hlut-
fallslega fleiri en karlar í hópi yngri
lögmanna. Aldurshópurinn 60 ára og
eldri sker sig úr. Tæplega 12% lög-
manna á þeim aldri er með tímagjald
á bilinu 6.000 til 7.900 krónur og þeir
eru flestir einyrkjar. Þá eru 15% þessa
aldurshóps með tímagjald á bilinu
8.000 til 9.900 krónur.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
fram komu í athugasemdum einstakra
lögmanna ræðst þóknun þeirra m.a.
af verkefnum, hagsmunum og hvort
unnið er fyrir erlenda viðskiptavini.
Ekki var spurt sérstaklega um sam-
keppni eða aðrar markaðsaðstæður
en slík sjónarmið ættu að hafa áhrif á
verðlagninguna. Ekki var heldur spurt
um tegund þjónustu. Samsvarandi
kannanir í Noregi og Svíþjóð sýna
að þóknun fyrir ráðgjöf við fyrirtæki
er almennt hærri en þegar unnið er
fyrir einstaklinga enda oftast um sér-
fræðiráðgjöf að ræða. Að tekið sé
hærra gjald af erlendum viðskiptavin-
um er sagt ráðast af markaðsástæðum
og því að slík þjónusta sé á margan
hátt flóknari. Þar kemur einnig fram
LÖGMENN Á LÖGMANNSSTOFUM
2
Þegar rætt er um starfsreynslu er átt við þann tíma sem viðkomandi hefur verið í
lögmennsku. Eins og gefur að skilja eru fulltrúar almennt yngri og með minni
starfsreynslu en sjálfstætt starfandi lögmenn. Þannig eru fulltrúar 46% þeirra sem eru í
aldurshópnum 25-39 ára og 63% þeirra eru með innan við 5 ára starfsreynslu. Þar sem
ekki hefur áður verið gerð könnun sem þessi eru samanburðartölur ekki fyrir hendi. Þó
má sjá á félagatali að hlutfall fulltrúa hækkaði úr 10% af heildarfjölda félagsmanna árið
2002 í 14% árið 2007. Á sama tíma fækkaði sjálfstætt starfandi lögmönnum, þ.e.
eigendum, úr 56% í 46% félagsmanna. Þróunin virðist því vera sú að um leið og
lögmannsstofur stækka þá fjölgi fulltrúum en það er svipuð þróun og á sér stað í Noregi
og Danmörku. Í Noregi eru 3% norskra lögmannsstofa stórar með tíu eða fleiri lögmenn
en þar starfar hins vegar rúmlega 40% allra norskra lögmanna.
Sjálfstætt starfandi lögmenn og fulltrúar
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100%
Yfir 20 ára starfsreynsla
10-20 ára starfsreynsla
5-10 ára starfsreynsla
Innan við 5 ára starfsreynsla
60 ára eða eldri
50-59 ára
40-49 ára
25-39 ára
Karlar
Konur
Allir lögmenn
Sjálfstætt starfandi fulltrúi
Rekstrarfyrirkomulag lögma nsstofa
Síðustu ár hafa lögmannsstofur stækkað og lögmenn sameinað rekstur sinn. Samkvæmt
könnuninni er þó ákveðinn kynslóðamunur þar sem eldri lögmenn og þeir sem eru með
meiri starfsreynslu starfa frekar sem einyrkjar heldur en yngri lögmenn.
Rúmur helmingur svarenda starfar á lögmannsstofu þar sem tveir eða fleiri lögmenn eru
með sameigi legan rekstur. Yngr lögmenn og lögmenn með starfsreynslu undir fimm
Skipting lögmanna eftir rekstrarfyrirkomulagi
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80% 90% 100%
Yfir 20 ára starfsreynsla
10-20 ára starfsreynsla
5-10 ára starfsreynsla
Innan við 5 ára starfsreynsla
60 ára eða eldri
50-59 ára
40-49 ára
25-39 ára
Karlar
Konur
Allir lögmenn
Á lögmannsstofu þar sem tveir eða fleiri lögmenn erum með sameiginlegan rekstur
Fyrir eigin reikning en með sameiginlegt skrifstofuhald (regnhlíf)
Á lögmannsstofu þar sem er einn eigandi með fulltrúa
Einyrki
Annað
Þóknun lögmanna ræðst meðal annars
af verkefnum og hagsmunum.