Lögmannablaðið - 01.03.2007, Síða 21

Lögmannablaðið - 01.03.2007, Síða 21
LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007 > 21 Leiðbeinandi reglur fyrir lögmenn um varnir gegn peningaþvætti Lögmannafélag Íslands hefur útbúið leiðbeinandi reglur fyrir lögmenn um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi. Markmið þeirra er að koma í veg fyrir að þjónusta lögmanna eða lög- mannsstofa verði notuð til að þvætta fjármuni eða fjármagna hryðjuverka- starfsemi. Reglunum er ætlað að end- urspegla þau lágmarksviðmið sem Lögmannafélag Íslands telur að félags- menn ættu að hafa í starfsemi sinni á grundvelli gildandi laga og tilmæla. Leiðbeiningarreglurnar voru sendar félagsmönnum í tölvupósti í byrjun mars s.l.. Þær er einnig að finna í hand- bók lögmanna á heimasíðu félagsins. Virðisaukaskattskyld þjónusta banka, sparisjóða og annarra fjármálafyrirtækja. Í byrjun árs sendi stjórn Lög- mannafélagsins bréf til ríkisskattstjóra, þar sem vakin er athygli á vaxandi þjónustu banka, sparisjóða og ann- arra fjármálastofnana, sem ekki verð- til lögmanna og annarra lög fræðinga, sem sinni bæði störfum er tengjast eiginlegri banka- og lánastarfsemi en einnig og í vaxandi mæli þjónustu sem ekki getur talist falla undir slíka starf- semi fjármálafyrirtækjanna. Stjórn félagsins bendir á að með þessu sé samkeppnisstaða sjálfstætt starf- andi sérfræðinga, sem hafa atvinnu af slíkri ráðgjöf og/eða þjónustu, skert verulega. Þeir þurfi að leggja virð- isaukaskatt ofan á þá þjónustu sem þeir selja en ekki fjármálafyrirtækin sem þó stunda sömu starfsemi í sam- keppni við lögmenn. Þar sem ljóst er að framangreind þjónusta sérfræðinga fjármálafyrirtækjanna fellur ekki undir eiginlega banka- og lánastarfsemi í skilningi virðisaukaskattslaganna, hlýt- ur hún að vera virðisaukaskattskyld. Sú skylda hvíli á skattayfirvöldum að sjá til þess að þeir aðilar sem eru virð- isaukaskattskyldir samkvæmt íslensk- um lögum, standi skil á þeim skatti í ríkissjóð. Því sé eðlilegt að embætti ríkisskattstjóra geri úttekt á umfangi þeirrar þjónustu fjármálafyrir tækjanna sem ekki fellur undir undanþáguákvæði 3. mgr. 2. gr. virðisaukaskattslaganna og sjá til þess að þessi þjónusta verði skattlögð til jafns við það sem gerist Af vettvangi félagsins ur talin falla undir undanþáguákvæði 3. mgr. 2. gr. virðisaukaskattslaga nr. 50/1998, en fyrirtækin greiða hins vegar ekki virðisaukaskatt af. Í bréfinu bendir stjórn félagsins á að enda þótt umrætt undanþáguákvæði sé nokkuð opið og almennt orðað, komi skýrt fram í greinargerð með frumvarpi því sem síðar varð að lögum nr. 50/1988, að undir það falli ein- ungis eiginleg banka- og lánastarfsemi. Vísað er til þess að starfsemi og starfs- umhverfi banka, sparisjóða og ann- arra fjármálafyrirtækja hafi gjörbreyst á undanförnum misserum og árum. Þessi fyrirtæki, sem áður hafi nær ein- göngu stundað inn- og útlánastarfsemi hér á landi, reki nú mörg hver fjölþætta fjármála þjónustu hérlendis og erlendis, þar sem viðskiptavinum er boðið upp á margháttaða þjónustu, allt frá einfaldri lánastarfsemi upp í heildarfjármögnun og ráðgjöf við stofnun, kaup, yfirtöku eða sameiningu fyrirtækja. Einnig hafi bankar í auknu mæli boðið upp á skatta- og tryggingaráðgjöf o.fl. Bent er á að samhliða framangreindri þróun hafi háskólamenntuðum sér- fræðingum hjá fjármálafyrirtækjum fjölgað gífurlega. Þessi fjölgun nái m.a.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.