Lögmannablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 22

Lögmannablaðið - 01.03.2007, Blaðsíða 22
22 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007 hjá öðrum sem slíka þjónustu veita, þannig að fulls jafnræðis sé gætt. Skoðanakannanir – notkun Lögmannablaðið stóð nýlega fyrir umfangsmikilli skoðanakönnun á störf- um og starfsumhverfi sjálfstætt starf- andi lögmanna og fulltrúa á lögmanns- stofum. Til stendur að gera sambærilega könnun á starfsumhverfi innanhúss- lögmanna á næstu misserum en stjórn Lögmannafélagsins sér mikla möguleika fólgna í könnunum sem þessum, m.a. í tengslum við skipulagningu á þjónustu félagsins við félagsmenn. Fundur með fulltrúum Hæstaréttar Nýlega áttu fulltrúar Lögmannafélagsins fund með fulltrúum Hæstaréttar Íslands þar sem farið var yfir ákvarðanir rétt- arins um þóknun í gjafsóknarmálum og fyrir verjenda- og réttargæslustörf. Einnig voru ræddar nýjar viðmiðunar- reglur sem settar hafa verið fyrir héraðs- dómstóla og fjallað um umsögn laga- nefndar Lögmannafélagsins um frum- varp til laga um meðferð sakamála. Þá var rætt um niðurstöðu skýrslu Dóms- málaráðuneytisins um málskostnað í opinberum málum og opinbera rétt- araðstoð, viðbrögð félagsins við henni svo og umfjöllun fjölmiðla um dóms- mál, dómstóla og þá sem þar starfa. Markmiðið er að halda slíka samráðs- fundi reglulega, líkt og gert er með Dómstólaráði, Dómarafélagi Íslands og Dómsmálaráðuneyti. Áframhaldandi samstarf við lagadeild Háskólans í Reykjavík um fundi og málþing Í ljósi góðrar reynslu af samstarfi Lögmannafélagsins við lagadeild Háskólans í Reykjavík um fræðafundi og ráðstefnur á sviði lögfræði, hefur stjórn félagsins ákveðið að halda því samstarfi áfram á þessu ári. Á síðasta ári voru haldnir 17 fundir, málþing og ráðstefnur á grundvelli þessa samstarfs og má gera ráð fyrir að svipaður fjöldi viðburða verði á þessu ári. Fundur með dómsmálaráðherra Fulltrúar Lögmannafélagsins áttu fund með dómsmálaráðherra í desember s.l.. Meðal annars var farið yfir skýrslu nefndar um málskostnað í opinberum málum og opinbera réttaraðstoð og álitsgerð sérstakrar nefndar félagsins af því tilefni. Einnig var farið yfir for- sendur fjárlaga við mat á útgjöldum til opinberrar réttaraðstoðar og til greiðslu málskostnaðar í opinberum málum, nýja löggjöf um meðferð sakamála, sem verið er að vinna að og laganefnd félagsins hefur skilað umsögn um. Rætt var um nauðsyn þess að breyta lögum um gjafsókn í samræmi við ályktun síðasta aðalfundar félagsins. Loks var rætt um breytingar á fram- kvæmd námskeiða til öflunar mál- flutningsréttinda fyrir héraðsdómi í þá átt að opna fyrir upptökupróf. Umsögn um drög að frv. um meðferð sakamála Laganefnd Lögmannafélagsins skilaði fyrir skemmstu umsögn um drög að frumvarpi til laga um meðferð saka- mála. Auk almennra athugasemda við frumvarpsdrögin gerði nefndin sér- staklega athugasemdir við ákvæði 38. gr. þar sem fjallað er um ákvörðun þóknunar til verjenda. Umsögn nefnd- arinnar er í raun samhljóða ákvæði 44. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opin- berra mála. Á það er bent að dómstólar hafi á liðnum árum túlkað 44. gr. með þeim hætti að þóknun verjanda skuli ákveðin við lok meðferðar máls, þ.e. með dómi eða þegar mál er fellt niður. Hafi verjandi jafnframt verið verjandi á rannsóknarstigi hefur þóknun vegna þeirrar vinnu verið ákveðin í einu lagi við uppkvaðningu dóms í málinu. Reynslan sýni að rannsókn og meðferð stærri mála kann að dragast á langinn og mörg dæmi eru um að rannsókn og meðferð mála hafi staðið árum saman. Við þær aðstæður er óviðunandi fyrir lögmenn að þurfa að una því að þókn- un þeirra sé ákveðin við lok meðferðar máls fyrir dómi. Eðlilegt sé að lög- menn geti sett fram kröfu um að þeim verði ákvörðuð þóknun á meðan á rannsókn máls stendur. Þá kemur enn fremur fram í umsögn nefndarinnar að Dómstólaráð hafi samið sérstakar við- miðunarreglur um þóknun verjenda þar sem tímagjald verjanda er meðal annars ákvarðað. Margir verjendur leggi metnað sinn í að halda nákvæma tímaskrá, sem þeir svo framvísa við aðalmeðferð máls, þannig að dómari geti byggt ákvörðun sína um máls- varnarlaun á traustum grunni. Mörg dæmi eru hins vegar um að dómendur hafi algerlega horft framhjá ítarlegum og vönduðum tímaskýrslum verjenda við ákvörðun málsvarnarlauna þeim til handa, án nokkurs rökstuðnings. Það sé því afstaða laganefndar LMFÍ og lögmanna almennt að tryggja verði með lögum, að dómarar taki mið af tímaskráningu verjenda, svo fremi sem hún geti að þeirra mati talist eðlileg, en rökstyðji að öðrum kosti niðurstöðu sína um að víkja þar frá. Sams konar athugasemd er gerð við ákvæði 48. gr. frumvarpsdraganna þar sem fjallað er um ákvörðun þóknunar skipaðs rétt- argæslumanns. Bókun stjórnar Lögmannafélags Íslands vegna myndbirtingar af hæstaréttardómurum. Eftirfarandi bókun var samþykkt á fundi stjórnar Lögmannafélags Íslands miðvikudaginn 7. febrúar 2007 í tilefni af forsíðuumfjöllun Morgunblaðsins um dóm Hæstaréttar Íslands í máli nr. 329/2006. „Stjórn Lögmannafélags Íslands harmar myndbirtingu Morgunblaðsins af fimm hæstaréttardómurum á forsíðu blaðsins þann 2. febrúar s.l. í tengslum við frétt um að dómurinn hefði mildað refsingu í sakamáli sem dómur gekk í deginum áður. Stjórn Lögmannafélagsins tekur sérstaklega fram að öflug og opin umræða um niðurstöður dómstóla sé afar mik- ilvæg í hverju réttarríki og hana beri að efla. Stjórnin telur hins vegar fráleitt að draga dómara réttarins persónulega fram í umræðuna með þeim hætti, sem gert var enda er það mikilvæg forsenda fyrir hlutleysi dómstóla að niðurstöður þeirra séu ekki tengdar við persónur dómend- anna sjálfra.“

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.