Lögmannablaðið - 01.03.2007, Síða 23

Lögmannablaðið - 01.03.2007, Síða 23
LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007 > 23 Skákmót Lögmannafélagsins var hald- ið föstudaginn 19. janúar í húsnæði félagsins. Um var að ræða tilraun til að endurvekja skákmót félagsins sem var haldið árlega til ársins 1994. Ekki var húsfyllir að þessu sinni en sex lögmenn mættu og höfðu gaman af. Þar á meðal Jóhann Hjartarson, stórmeistari, sem kom, sá og sigraði með fullu húsi. Næstur í röðinni kom Björgvin Jónsson og í þriðja sæti var Árni Ármann Árnason. Á hæla þeirra komu gamlir reynsluboltar úr skák- inni sem voru þeir Jón Briem, Kristján Stefánsson og Tryggvi Þórhallsson. Boðið var upp á léttar veitingar. Þetta var hin besta kvöldskemmtun og ríkti sönn skákgleði. Stefnt er að því að gera mótið aftur að árvissum viðburði enda fjöldinn SKÁKMÓT LMFÍ 2007 allur af skákmönnum í félaginu sem myndu tvímælalaust hafa gaman af því að hitta kollegana eina kvöldstund og tefla nokkrar léttar hraðskákir. Árni Ármann skákformaður LMFÍ Boðið var upp á „léttar“ veitingar að hætti hússins. Skákmeistarar gera sig tilbúna í slaginn, f.v. Jón Briem, Kristján Stefánsson, Tryggvi Þórhallsson, Árni Ármann Árnason, Björgvin Jónsson og Ríkharður Sveinsson mótsstjóri. Á myndina vantar sigurvegarann, Jóhann Hjartarson. Brautarholti 10-14, 105 Reykjavík • Sími: 550 9600 • LT@LT.is • www.LT.is Upplýst ákvörðun öruggari viðskipti nánari upplýsingar á www.lt.is og hjá fyrirtækjaráðgjöfum lánstrausts. Dómasafni allt frá árinu 1946 Uppboðsvakt /framhaldsuppboðum Veðbandayfirliti Þjóðskrá/kennitöluleit Ökutækjaskrá/kennitöluleit Vanskilaskrá Fyrirtækjaskrá o.fl. Lánstraust er framsækið og leiðandi fyrirtæki í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga. P IP A R • S IA • 7 0 5 0 4 Lögmenn sem nýta sér þjónustu Lánstrausts hafa aðgang að upplýsingum úr: Lögmenn hafa heimild til að skrá mál á vanskilaskrá Lánstrausts, sem getur um leið bætt innheimtuárangur.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.