Lögmannablaðið - 01.03.2009, Qupperneq 6
Meistaranám í skattarétti
og reikningsskilum
www.vidskipti.hi.isVIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
www.lagadeild.hi.isLAGADEILD
Haust 2009
Íslenskur
skattaréttur -
almennur hluti
Íslenskur
skattaréttur -
sérstakur hluti
Ársreikningagerð A
Endurskoðun
Vor 2010
Alþjóðlegur
skattaréttur -
almennur hluti
Alþjóðlegur
skattaréttur -
sérstakur hluti
Ársreikningagerð B
Haust 2010
Stjórnsýslu-
endurskoðun
Félagaréttur I
Ritgerð
Vor 2011
Samstæðu-
reikningsskil
Félagaréttur II
Greining
ársreikninga
Ritgerð
Haustið 2009 hefst nýtt þverfaglegt meistaranám skipulagt af
viðskiptafræðideild og lagadeild Háskóla Íslands.
Námið hentar mjög vel fyrir alla útskrifaða lögfræðinga og viðskipta-
fræðinga sem vilja styrkja þekkingu og auka sérhæfingu á þessu sviði.
Skipulag námsins, sem er 90 einingar, er sem hér segir:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið BA prófi frá lagadeild Háskóla Íslands
eða BS prófi eða BA prófi frá viðskiptafræðideild háskólans eða öðru
háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaprófi í sambærilegum
greinum.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2009.
Sjá nánar á vidskipti.hi.is og lagadeild.hi.is
6 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008
Í síðasta hefti Lögmannablaðsins skrifar
Gunnar Jónsson hrl. „jólahugvekju“ og
víkur m.a. að útgáfu tveggja bóka um
gjaldþrot Hafskips hf. og eftirmála þess
á svohljóðandi hátt:
„Skipafélagið var skrifað á flot í tveim
bókum nýverið. Bækurnar voru í boði
enskra og hollenskra sparifjáreigenda.
Veruleg áhöld eru um hvort sögu
skýringar í þeim séu á sjó setjandi.“
Ég tel víst, að þessi langsótti mál
flutningur Gunnars Jónssonar hrl. í
„jólahugvekju“ skýrist af því sem hér
segir: Þann 2. október 2008 sendu
hæstaréttar lögmennirnir Ragnar
Aðalsteinsson og Sigríður Rut Júlíus
dóttir ítarlega og vel studda kröfu um
opinbera rannsókn til ríkis saksóknara.
Krafa þessi var send fyrir hönd okkar
Björgólfs Guðmundssonar, Helgu
Thomsen, ekkju Ragnars Kjartanssonar,
Þórðar H. Hilmarssonar og Helga
Magnússonar á grundvelli og með
heimild í 4. mgr. 66. gr. laga nr. 19/1991
um meðferð opinberra mála. Tilefni
rannsóknarinnar eru ætluð brot
yfirborgarfógetans í Reykjavík og
borgar fógeta/skiptaráðenda við embætti
hans, ríkislögmanns, ríkissaksóknara,
rannsóknar lögreglu stjóra ríkisins og
starfsmanna þeirra gegn ákvæðum XIV.
og XV. kafla almennra hegningarlaga
nr 19/1940, einkum 148. gr., þegar
ákvörðun var tekin um og framkvæmd
var rannsókn á ætlaðri refsiverðri
háttsemi fyrrverandi fyrirsvarsmanna
Hafskips hf. á grundvelli skýrslu
borgarfógeta skiptaréttar Reykjavíkur til
ríkissaksóknara dagsettri 6. maí 1986.
Teljum við að fram sé kominn
rökstuddur grunur um brot hinna
opinberu starfsmanna af þessu tagi.
Gunnar Jónsson hrl. fullyrðir, að
bækurnar um Hafskipsmálið hafi verið
verið kostaðar af Icesavereikningum
Landsbankans með peningum
hollenskra og breskra sparifjáreigenda.
Bækurnar sem hér um ræðir eru án
nokkurs vafa „Afdrif Hafskips í boði
hins opinbera“ eftir Stefán Gunnar
Sveinsson sagn fræðing, og „Hafskip í
skotlínu“ eftir Björn Jón Bragason,
sagnfræðing og B.A. í lögfræði. Þessi
tenging er óskiljanleg með öllu og
algjörlega tilefnislaus, þótt einn af fimm
rannsóknarbeiðendum sé Björgólfur
Guðmundsson, fyrrverandi formaður
bankaráðs Landsbanka Íslands hf.
Gunnar Jónsson hrl. fullyrðir semsagt
raka og blygðunarlaust, að framið hafi
verið auðgunarbrot með því að láta
almenningshlutafélagið Landsbankann
greiða kostnað bankanum alls óvið
komandi. Með þessu framferði er
Gunnar Jónsson hrl. að ófrægja okkur
öll, sem að rannsóknarbeiðninni stönd
um og gera lítið úr kröfu okkar um
saka málarannsókn, sem ýmsir ein
staklingar honum tengdir persónu lega
skuli sæta. Rannsóknarbeiðnin er studd
rannsóknum framangreindra sagnfræð
inga, sem hafa leitt í ljós fjölmargar
nýjar upplýsingar og gögn áður hulin í
málinu.
Ég tel framgöngu Gunnars Jónssonar
ósamboðna hæstaréttarlögmanni og
álít, að þeir sem leiti réttar síns eigi ekki
að þurfa að þola svo níðingslega fram
komu af hálfu hæstaréttarlögmanns
fyrir það eitt að vekja athygli á og bera
mál undir rétt stjórnvöld. Ég tel að þessi
framganga og málflutningur sé til þess
fallinn að rýra heiður og trúverðugleika
lögmanna stéttarinnar.
Höfundur er fyrrverandi framkvæmda
stjóri hjá Hafskipi hf.
Aðsent efni
Sérkennileg
„jólahugvekja“
Páll Bragi Kristjónsson