Lögmannablaðið - 01.03.2009, Síða 8
8 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008
Reglur um innheimtu
starfsemi lögmanna
Stjórn félagsins vinnur nú að gerð
reglna um innheimtustarfsemi lög
manna á grundvelli 2. og 3. mgr. 15. gr.
inn heimtulaga nr. 95/2008. Reglunum
er ætlað að taka til lögmanna sem falla
undir ákvæði 1. mgr. 12. gr. lög manna
laga nr. 77/1998 og einnig til innheimtu
fyrirtækja sem eru að fullu í eigu
lögmanna og/eða lögmannsstofa og
sinna innheimtu samkvæmt 1. gr.
innheimtulaganna. Drög þessara reglna
verða væntanlega kynnt félagsmönnum
í apríl n.k.
Skipað í dómnefnd
Stjórn félagsins hefur tilnefnt Bjarna S.
Ásgeirsson, hrl., sem aðalmann og
Ástríði Gísladóttur, hdl., sem varamann
í dómnefnd til að fjalla um hæfni
umsækjenda um embætti héraðs
dómara, samkvæmt 2. mgr. 12. gr.
dómstólalaga nr. 15/1998.
Hdl.námskeið
Nú stendur yfir námskeið til öflunar
réttinda til að vera héraðsdómslögmaður
og er þetta 11. námskeiðið sem haldið
er frá því fyrirkomulagi réttindaöflunar
var breytt með lögum 77/1998 um
lögmenn. Fjöldi nýskráðra á nám
skeiðinu er 35 og koma þeir frá laga
deildum allra þeirra fjögurra háskóla
sem útskrifa lögfræðinga á landinu. Til
viðbótar sitja ellefu aðrir lögfræðingar
námskeiðið en um er að ræða þátt tak
endur af fyrri námskeiðum, sem ekki
höfðu lokið öllum prófum.
Fundur með David Wilkins
Þann 27. febrúar s.l. stóð Lögmanna
félagið fyrir hádegisverðarfundi með
David Wilkins, prófessor við Harvard
Law School um áskoranir og tækifæri í
starfi lögmanna á breyttum tímum.
Fundurinn var afar áhugaverður í alla
staði, þar sem tæpt var á fjölmörgum
þáttum sem búast má við að lögmenn
þurfi að takast á við á næstu misserum
og árum í kjölfar erfiðleika í efna
hagsmálum heimsins. Nánari saman
tekt um fundinn er að finna annars
staðar í blaðinu.
Fjölgun félagsmanna
Mikil fjölgun félagsmanna í Lögmanna
félagi Íslands heldur áfram. Þannig voru
791 lögmaður skráður í félagið í byrjun
mars samanborið við 773 á sama tíma
árið 2008. Væntanlega mun þessi þróun
halda áfram á þessu ári, a.m.k. miðað
við þann fjölda lögfræðinga sem nú sitja
námskeið til öflunar réttinda til að vera
héraðsdómslögmaður. Einnig er gert
ráð fyrir að annað réttindanámskeið
verði haldið næsta haust sem væntan
lega kemur fram í enn frekari fjölgun
lögmanna í lok ársins.
Leiðbeiningar til
dómskvaddra matsmanna
Vinna sem stjórn Lögmannafélagsins
setti af stað á síðasta ári um gerð
leiðbeininga til dómskvaddra mats
manna er nú á lokastigi og má vænta
þess að drög þeirra verði kynnt í lok
mars eða byrjun apríl næstkomandi.
Reglur um málskostnað í
einkamálum
Hugmyndir hafa verið uppi um smíði
sérstakra viðmiðunarreglna til að
ákvarða málskostnað í einkamálum,
svipaðar þeim sem þegar gilda um
ákvörðun þóknunar fyrir verjenda og
réttar gæslustörf. Á næstunni munu
fulltrúar félagsins funda með Dóm
stólaráði þar sem farið verður yfir helstu
þætti sem taka þarf mið af verði gerð
slíkra reglna á annað borð hrint í
framkvæmd.
Norrænt samstarf
Forsætisfundur norrænu og baltnesku
lögmannafélaganna verður haldinn í
Helsinki 24. apríl n.k. Meðal efnis á
Fjölgun félagsmanna
og fleira
Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri
Af vettvangi félagsins