Lögmannablaðið - 01.03.2009, Page 12
12 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008
Helgi Jóhannesson hrl. er faglegur
framkvæmdastjóri LEX sem er ein
stærsta stofa landsins. Helgi sagði
fyrirtækið sjaldan auglýsa þjónustu
sína beint í fjölmiðlum.
Við markaðssetjum Lex með metnað
arfullri heimasíðu, dreifum kynningar
efni til viðskiptavina okkar og heim
sækjum þá í þeim tilgangi að efla
tengslin. Þegar fyrirtækið flutti sl. vor
þá aug lýstum við það vel og eins notum
við tækifærið þegar við leitum eftir nýju
starfsfólki. Við auglýsum svo í fag
tímaritum um lögfræði en lítum meira
á þær sem styrk heldur en beina
markaðs setningu.
Hver er þín skoðun á auglýsingum
lögmanna?
Það fer eftir því um hvaða praxis er
verið að ræða. Fyrir okkar fyrirtæki sem
einbeitir sér að fyrirtækjalögfræði skipti
meira máli að ná í persónuleg sambönd
við viðskiptavinina.
Telur þú að lögmenn eigi eftir að
auglýsa þjónustu sína í auknum
mæli í framtíðinni?
Já, miðað við það sem var. Ég held að
lögmannsstofur þurfi að vera vakandi
yfir markaðssetningu annars konar
miðla, t.d. netsins. Stór hópur fólks á
aldrinum 2040 ára leitar að allri
þjónustu á netinu.
Gylfi Thorlacius, hrl. hjá Lögmanns
stofunni Fortis, telur að lögmenn
verði að gæta hófs í framsetningu
auglýsinga þótt ekki sé rétt að setja
skorður við þeim.
Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið
rétt á sínum tíma að aflétta banni við
auglýsingum lögmanna og í sjálfu sér
ekkert nema jákvætt að almenn ingur sé
upplýstur um rétt sinn. Hins vegar tel
ég að lögmenn verði að gæta hófs í
framsetningu auglýsinga sinna og hafa
í huga virðingu stéttarinnar. Þykir mér
ekki við hæfi t.d. að menn dreifi upp
lýsingarbæklingum inn á læknastofur
og slysadeildir sjúkrahúsa um starfsemi
sína eins og dæmi eru um og minnir
mann óneitanlega á þá lögmenn sem
Banda ríkjamenn kalla „ambulance
chasers“. Ekki gengur heldur að
lögmenn brjóti samkeppnis lög og reglur
með full yrðingum eins og „bestir“ og
„númer eitt“ í tilteknum málaflokkum.
Að mínu mati koma auglýsingar
einstakra lögmannsstofa um tiltekna
málaflokka stéttinni í heild til góða en
þegar upp er staðið er það orðspor
hvers lögmanns sem vegur þyngst.
Hvernig markaðssetur þín stofa
þjónustu sína?
Í símaskrá, með heimasíðu og á
já.is. Einnig hófum við nýlega að
auglýsa í fjölmiðlum.
„Ambulancechasers“ ekki
við hæfi
Auglýsingar fara eftir
praxís
Gylfi Thorlacius hrl.
Helgi Jóhannesson hrl.