Lögmannablaðið - 01.03.2009, Blaðsíða 13
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008 > 13
Lögmannsstofan Fulltingi hefur
auglýst þjónustu sína með áberandi
hætti undanfarið. Óðinn Elísson hrl.
aðaleigandi Fulltingi slysa og
skaðabótamála ehf. var spurður að
því hvað hefði komið til að lög
manns stofan hefði stigið þetta
skref:
Í byrjun árs 2008 urðu breytingar á
starfsemi og eignarhaldi hjá Fulltingi. Í
dag eru stofurnar tvær, þ.e. Fulltingi
lögfræðiþjónusta ehf. og Fulltingi slysa
og skaðabótamál ehf., þar sem engin
skörun er á eignarhaldi. Í kjölfarið hóf
mitt félag kynningu á breyttu eignar
haldi og þegar nýtt lógó og nýtt
fræðsluefni lá fyrir sl. haust var ákveðið
að kynna Fulltingi slysa og skaða bóta
mál ehf. Jafnframt töldum við ástæðu til
að kynna fólki rétt sinn í þessum
málaflokki.
Með hvaða hætti markaðssettuð þið
ykkur áður?
Jafnt nú sem fyrr er helsta auglýsing
okkar ánægðir viðskiptamenn, auk þess
sem við höldum úti góðri heima síðu og
endurnýjum upplýsinga og fræðslu
bæklinga reglulega. Að auki teljum við
auglýsingarnar til þess fallnar, óháð því
frá hverjum þær stafa, að fleiri leiti
réttar síns og þannig hafi þær áhrif.
Telur þú að lögmenn eigi eftir að
auglýsa þjónustu sína í auknum
mæli?
Lögmenn á ákveðnum sérhæfðum
starfssviðum munu án efa auglýsa
þjónustu sína í auknum mæli í fram
tíðinni. Það er þó grundvallaratriði að
mínu mati að þær auglýsingar verði
fagmannlegar. Auglýsingar eiga að
upplýsa um rétt einstaklinga og fela í
sér kynningu á þeirri þjónustu sem til
boða stendur en ekki fela í sér full
yrðingar um reynslu og eigið ágæti sem
ekki virðist vera innistæða fyrir í sumum
tilvikum.
Eyrún Ingadóttir tók saman.
Ástæða til að kynna fólki
rétt sinn
Óðinn Elísson hrl.