Fréttablaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 2
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Hvernig gengur að fanga athyglina á Kvíabryggju? „Það er auðvelt þegar maður er hugfanginn af starfinu.“ Helga Lind Hjartardóttir er námsráðgjafi við Fjölbrautarskóla Snæfellsbæjar og hefur sinnt námsráðgjöf fyrir fanga á Kvíabryggju. TÓNLIST „Þetta var bara alveg stórkostlegt því ég hafði ekki gert ráð fyrir þessu,“ segir Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður. Lag hans Þannig týnist tíminn var valið Óskalag þjóðarinnar í gær í símakosn- ingu í þættinum Óskalög þjóðarinnar á RÚV. Bjartmar var á heimaslóðum þegar honum barst fregnin. Hann var í þann mund að stíga á svið í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum. „Þetta var ofboðslega fallegt að því leyti að ég var staddur í sama bak- herbergi og þar sem við stofnuðum okkar fyrstu unglingahljómsveitir 15-16 ára gamlir,“ segir Bjartmar sem kveðst afar stoltur og þakk- látur þjóðinni. „Mér finnst þetta fallegt af henni. Ég segi takk fyrir að þykja jafn vænt um lagið og mér þykir vænt um þjóðina. Ég segi bara eins og skáldið sagði forðum: „Ég þakka þjóðinni fyrir að færa mér efnivið í ljóðin mín.“ - þij Bjartmar var staddur á æskuslóðum þegar hann frétti af Óskalaginu: Finnst þetta fallegt af þjóðinni ÞAKKLÁTUR Bjartmar hneigði sig djúpt er hann var hylltur í Alþýðuhúsinu. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON HEILBRIGÐISMÁL Ekkert sam- komulag náðist á fundi í kjara- deilu lækna í húsnæði ríkissátta- semjara í dag. Deiluaðilar höfðu þá fundað í tæpar fimm klukku- stundir. Fundur er boðaður klukkan þrjú í dag. Ný verkfallslota hófst á mið- nætti í gærkvöld. Þá lögðu læknar á aðgerðarsviði, rann- sóknarsviði og kvenna- og barna- sviði Landspítalans niður störf auk lækna á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu og á heil- brigðisstofnunum á landsbyggð- inni. -sks Funduðu í fimm klukkutíma: Nýr fundur hjá læknum í dag VEÐUR Veðurstofa Íslands spáir óveðri í kvöld sem verður verra en stormurinn sem gekk yfir landið fyrir um viku. „Það er suðaustanstormur og –rok annað kvöld [í kvöld]. Þetta er eitthvað verra en suðaustanstorm- urinn þann þrítugasta,“ segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur. „Það var svo reyndar vestanhvellur eftir það en það er ekki svo í þessu tilfelli.“ Hrafn segir að veðrið muni ná hámarki suðaustan til í kringum miðnætti og síðan norðaustan og austan til um nóttina. „Þetta er talsvert meiri veðurhæð og úrkoma í suð- austanáttinni en það gengur nú tiltölulega fljótt yfir,“ segir Hrafn. „Síðan verður slæmt um nóttina á norð- austur- og austurhluta landsins. Það verður þó gengið niður fljótlega, líklega um klukkan tvö um nóttina hérna suðvestanlands. Þannig að þetta verður mjög slæmt veður um allt land.“ Búast má við miklum vindhviðum með storminum. „Hviðurnar verða líklegast víða upp yfir 40 m/s við fjöll sérstaklega. Það verður líklegast ekkert hægt að ferðast mikið um á meðan þetta gengur yfir.“ - þij Veðurstofan spáir slæmu veðri um allt landið í kvöld og í nótt: Enn verri stormur en fyrir viku ÓVEÐUR Í AÐSIGI Stormurinn fyrir viku var sá versti síðan 1991. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ALÞINGI Umdeild lög Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, um upptöku nátt- úrupassa verða ekki lögð fyrir þingið á þessu ári. Það er mat Sig- rúnar Magnúsdóttur, formanns þingflokks Framsóknarflokksins. Frumvarp iðnaðarráðherra mætir mikilli andstöðu innan þingflokks Framsóknarflokksins. Sigrún Magnúsdóttir telur þetta frumvarp þurfa lengri yfirlegu og ekki þurfa að fara í gegnum þingið fyrir áramót. „Við erum núna að raða niður hvaða frumvörp þurfa að fara í gegnum þingið. Öll frumvörp sem snerta fjárlagafrumvarpið munu hafa forgang. Við munum reyna að halda starfsáætlun þingsins og því mun þetta endanlega verða ljóst á morgun,“ segir Sigrún. Frumvörp um náttúrupassa og um stjórn fiskveiða hafa ekki enn komið fyrir þingið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður beðið með þessi frumvörp þar til þing kemur saman 20. janúar. - sa Lagafrumvarp um náttúrupassa fast í þingflokki Framsóknarflokksins: Ekki lagt fram fyrir áramót SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR Náttúru- passi ekki enn til umræðu segir for- maður þingflokks Framsóknarmanna. DAMASKUS, BBC Ísraelskar her- þotur vörpuðu sprengjum í nágrenni Damaskus, höfuðborgar Sýrlands, í gær samkvæmt sýr- lenska ríkissjónvarpinu. Sprengjurnar lentu á flugvelli skammt frá bænum Dimas. Eng- inn slasaðist en vistir og hergögn skemmdust. Engin yfirlýsing hefur borist frá Ísraelum vegna árásarinnar. Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem ísraelskar sprengjur lenda innan landamæra Sýrlands en það hefur ítrekað gerst frá árinu 2011. - jóe Sprengdu flugvöll í Sýrlandi: Ísrael sagt hafa sent sprengjur FASTEIGNIR St. Jósefsspítalinn í Hafnarfirði hefur verið settur á sölu en núverandi eigendur hús- næðisins eru Hafnarfjarðarkaup- staður og Ríkissjóður. Spítalinn var formlega tekinn í notkun árið 1926 og hefur í tví- gang verið byggt við húsið. Spítal- anum var lokað í upphafi árs 2012. Tilboð í húsnæðið skulu berast fyrir 27. janúar 2015. Bent er á að í aðalskipulagi bæjarins er lóðin skilgreind fyrir samfélagsþjón- ustu. - jóe Ríkiskaup óska tilboða: St. Jósefsspítali settur á sölu SPURNING DAGSINS www.n1.is facebook.com/enneinn Hluti af hádeginu Gríptu með þér eitthvað gott MENNTAMÁL „Við höfum hafið undir- búning að því að stofna Nobel Aca- demy í Los Angeles í Kaliforníu,“ segir Davíð Ingi Magnússon, annar framkvæmdastjóra Nóbel náms- búða. Atli Bjarnason, stofnandi Nóbel námsbúða, flutti í ágúst síðast liðnum til Los Angeles og munu Davíð Ingi og Sigvaldi Fannar Jónsson, annar framkvæmdastjóra Nóbel náms- búða, einnig flytjast búferlum í júní næstkomandi. „Við áætlum að fyrstu nám skeiðin muni líta dagsins ljós í Los Angeles haustið 2015. Okkar markmið er að aðstoða milljón nemendur fyrir lokapróf á innan við fimm árum um allan heim,“ segir Davíð Ingi. Ástæðan fyrir því að velja Kali- forníu segja þeir vera þá að þar sé að finna um fimmtíu skóla sem séu jafnfjölmennir eða fjölmennari en fjölmennasti háskólinn hér á landi, Háskóli Íslands. „Það má segja að við séum braut- ryðjendur á þessu sviði í Banda- ríkjunum. Þar er að finna svokall- aða study groups en enga formlega umgjörð,“ segir Davíð Ingi. Nóbel-menn hafa talað við aðila sem hafa búið úti og stofnað fyrir- tæki til að afla sér þekkingar fyrir brottför. Í dag segja þeir Nóbel námsbúðir vera með 120 námskeið í tólf fram- haldsskólum og þremur háskólum. „Nemendafjöldi okkar er kominn í fjögur þúsund nemendur á ári og erum við því, samkvæmt Hagstof- unni, þriðja stærsta mennta stofnun á Íslandi, á eftir Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík,“ segir Davíð Ingi. Í Bandaríkjunum ætla þeir félagar að einblína á háskóla og framhaldsskóla. „Námskeiðin munu fara fram þar sem hagstæðast er að leigja stofur. Á Íslandi höfum við til dæmis verið í Ísaksskóla, Kvennó, MK og í háskól- unum. Við viljum halda verðinu niðri og markmið okkar er að allir hafi kost á því að læra,“ útskýrir Davíð Ingi. Mikið er lagt upp úr því að gera kennsluna þægilega. „MR-ingur kennir til dæmis aldrei nemanda úr Verzló. MR-ingur úr tilteknu nám- skeiði kennir MR-ingi sem er í sama námskeiði. Þetta er hugmyndafræði sem við víkjum ekki frá. Við finn- um námskeið sem eru fjölmenn og erfið og í samstarfi við nemenda- félög. Síðan finnum við nemanda sem hefur nýlokið námskeiðinu og staðið sig framúrskarandi vel og hefur þá mannlegu þætti sem til þarf. Sá fer í Nóbelskólann þar sem hann lærir að ferðir við að kenna flókið efni á einfaldan hátt,“ útskýr- ir Davíð Ingi. Þá stefna Nóbel námsbúðirnar einnig til Skandinavíu á næstunni. gunnarleo@frettabladid.is Ryðja nýja braut fyrir bandaríska nemendur Nóbel námsbúðir, sem vakið hafa mikla lukku hér á landi undanfarin ár, eru á leið til Bandaríkjanna. Gert er ráð fyrir að fyrstu námskeiðin þar í landi hefjist í haust. TIL BANDARÍKJANNA Davíð Ingi Magnússon og Sigvaldi Fannar Jónsson, fram- kvæmdastjórar Nóbel-námsbúða, flytja til Bandaríkjanna í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Það má segja að við séum brautryðjendur á þessu sviði í Bandaríkj- unum. Þar er að finna svokallaða study groups en enga formlega umgjörð. Davíð Ingi Magnússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.