Fréttablaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 54
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 34
„Ég er mikil dýramanneskja og
skil dýr mun betur en fólk,“ segir
Anna Ingimarsdóttir ljósmynda-
nemi sem myndar gæludýr í stað
fólks.
„Þetta byrjaði með fyrsta árs
sýningunni í skólanum, þar tók ég
portrettmyndir af köttum og skrif-
aði karakterlýsingu við þá,“ segir
Anna, sem hefur nú látið prenta
myndirnar á púða og samstæðuspil.
Hún útskrifast úr Ljósmynda-
skólanum í janúar og ætlar að sér-
hæfa sig í gæludýraljósmyndun
eftir útskrift. „Ég vel alltaf erfiðu
leiðina, þarf alltaf að finna upp
hjólið. Þess vegna vel ég frekar
að taka myndir af gæludýrum en
fólki,“ segir hún. Á púðunum eru
myndir af gæludýrum sem sátu
fyrir í verkefninu og rataði mynd
úr sýningunni á forsíðu skóla-
blaðsins. „Það var mynd af henni
Birtu, sem er sphynx-köttur, en
hún drapst í mars. Eigandi hennar
skrifaði bók um hana sem fjallaði
um einelti og var Birta aðalpers-
óna bókarinnar.“
Eftir útskrift vonast Anna til að
geta myndað gæludýr eftir sér-
pöntunum. „Það er draumurinn,“
segir hún. - asi
Vill frekar mynda dýr en fólk
Anna Ingimarsdóttir vill einbeita sér að dýramyndatökum eft ir útskrift .
DÝRAVINUR Anna með púðana. Sphynx-kötturinn Birta er á púða í fangi Önnu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM.
„Fyrir okkur voru Emmy-verð-
launin og MTV Awards risastór. Við
gátum með engu móti áttað okkur
á hversu risastórir viðburðir Holly-
wood Film Awards og American
Music Awards voru,“ segir Magni
Þorsteinsson.
Hann og Hugrún Árnadóttir, eig-
endur og hönnuðir tískulínunnar
Kron by Kronkron, fengu annað
tækifæri til þess að kynna vörur
sínar fyrir þverskurðinum í kvik-
mynda- og tónlistarbransanum.
Í lok ágúst voru þau á MTV- og
Emmy-verðlaunahátíðunum í Los
Angeles. „Við vissum ekkert hvað
við vorum að fara út í. Þegar við
vorum komin út sáum við hvaða
hringiðu við vorum dottin í. Þarna
vorum við kynnt fyrir leikurum,
leikstjórum, handritshöfundum,
viðskiptafólki og þar sem þetta er
mjög skipulagt gafst okkur tími til
að spjalla í rólegheitum við hvern
og einn. Í kjölfarið var okkur boðið
að koma aftur og taka þátt í Holly-
wood Film Awards og svo American
Music Awards,“ segir Magni.
Meðal þeirra sem þau hittu voru
Hollywood-stjörnurnar Angelina
Jolie, Johnny Depp, Reese Wither-
spoon, Jared Leto og Julianne
Moore. Einnig hljómsveitin One
Direction, söngkonurnar Lorde,
Ferg ie og Diana Ross, auk fyrirsæt-
unnar Heidi Klum og Kardashian-
systurinnar Kendall Jenner.
„Kron by Kron kron féll vel í
kramið hjá stjörnunum og eru ýmsir
boltar komnir af stað í Hollywood.
Mikið af áhrifafólki er farið að
klæðast fötunum og skónum okkar.
Þetta er fólk allt frá eig endum
Guggen heim-safnsins, til stór-
stjarna á borð við Angelu Bass ett og
Sharon Stone, auk nokkurra á list-
anum hér fyrir ofan,“ segir Magni.
Vegna stífra reglna og samninga
geta þau ekki gefið út hverjir muni
klæðast fötunum. „Nú eru öll blöð
vöktuð og bíðum við spennt eftir
að geta sagt frá. Þetta er án efa
stærsta tækifærið sem við höfum
fengið á erlendum markaði. Svona
tækifæri kemur í kjölfar gríðar-
legrar vinnu og óbilandi trúar á
okkur. Við vorum svo heppin að
Hönnunar sjóður Auroru hefur líka
óbilandi trú á okkur og var tilbúinn
að styðja við bakið á okkur og erum
við endalaust þakklát fyrir þeirra
hjálp,“ bætir Magni við.
Næst á dagskrá hjá þeim eru
Golden Globe-verðlaunin í janúar.
„Þau úti segja að þau séu enn þá
risa-risastærri [en hinar hátíðirnar]
þannig að við bíðum við bara spennt
eftir því hvert þetta ævintýri tekur
okkur.“ adda@frettabladid.is
Leggja Hollywood
undir sig með stíl
Magni Þorsteinsson og Hugrún Árnadóttir hjá Kron by Kronkron eru á leiðinni á
Golden Globe-hátíðina í janúar að kynna merkið fyrir stjörnunum í Hollywood.
„Það héldu allir að það hefði
blætt inn á hausinn á mér þegar
ég sagðist vera að fara á uppi-
standsnámskeið,“ segir Anna
Þóra Gunnarsdóttir, 52 ára
þriggja barna móðir og eigandi
gleraugnaverslunarinnar Sjáðu.
Hún skellti sér á uppistands-
námskeið hjá Þorsteini Guð-
mundssyni og sló í gegn á
lokakvöldinu sem var á fimmtu-
dagskvöld. „Flestar konur á
mínum aldri fara á námskeið í
postulínsmálun eða að gera búta-
saumsteppi. Ég hef bara engan
áhuga á því,“ segir Anna og hlær.
Hún segir námskeiðið hafa
verið alveg frábært og finnst
mjög sorglegt að því sé lokið.
Aðspurð hvort hún mæli með því
að konur á hennar aldri fari á
uppistandsnámskeið neitar hún
því. „Nei, ég mæli ekkert sér-
staklega með þessu fyrir eldri
konur, ekki frekar en þegar mælt
var með því að ég færi á nám-
skeið að læra að hekla eldhús-
gardínur. Ef þú sérð hins vegar
spaugilegu hliðarnar á lífinu þá
mæli ég með þessu. Við eigum
ekki að vera svona niðurnjörv-
aðar og staðlaðar. Maður má
alveg fara í gylltar gallabuxur,
fara upp á svið og segja brand-
ara þótt maður sé 52 ára.“
- asi
52 ára móðir sló í gegn í uppistandinu
Anna Þóra Gunnarsdóttir, þriggja barna móðir, sagði staðalímyndum stríði á hendur og tók þátt í námskeiði.
HEFUR ENGAN ÁHUGA Á BÚTASAUMI
Anna Þóra Björnsdóttir valdi uppi-
standið fram yfir bútasaumsnámskeið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
➜ Á meðal þeirra sem þau
hittu voru Hollywood-stjörn-
urnar Angelina Jolie, Johnny
Depp, Reese With erspoon,
Jared Leto og Julianne Moore.
Maður má alveg fara
í gylltar gallabuxur, fara
upp á svið og segja brand-
ara þótt maður sé 52 ára.
Grísk jógúrt með hlynsírópi og
ferskum jarðarberjum, bláberjum og
hindberjum mömmu-style. Annars
elska ég að gera góðan brunch um
helgar!
Þuríður Kristín Þorleifsdóttir, plötusnúður og
nemi í vöruhönnun.
MORGUNMATURINN