Fréttablaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 6
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Opið mánudag til föstudaga frá kl. 9:00 - 18:00
Lau. frá kl. 11:00 - 17:00 og sun. frá kl. 13:00 - 17:00
Vesturlandsvegur
H
öf
ða
b
ak
ki
500,- 1.500,- 1.900,-
300,-500,-1.500,-500,-
Komið og gerið frábær jólainnkaup!
4.900,-
Höfðabakki 9
Skoðaðu möguleikana og starfsmenn eigna-
og atvinnuþróunar leiðbeina þér með ánægju.
www.reykjavik.is/lodir
Reykjavík býður tilbúnar lóðir á föstu verði
í Úlfarsárdal sem er í uppbyggingu með
vaxandi þjónustu, en þar mun á næstu árum
rísa miðstöð skóla, menningar og íþrótta.
Framtíð í Úlfarsárdal
Lóðir á föstu verði
NEYTENDUR Styrking krónunnar
hefur ekki skilað sér í lægra verði
dagvöru. Þetta segir Ólafía B.
Rafnsdóttir, formaður VR stéttar-
félags, í grein sem birtist í næsta
VR blaði.
„Á tímabilinu lækkaði gengis-
vísitalan um 11% (12,4% styrk-
ing gengis). Matarverð eða verð á
dagvöru hækkaði á sama tímabili
um 1,8% og verð á innfluttri mat-
og drykkjarvöru lækkaði um 0,6%
samkvæmt mælingum Hagstof-
unnar,“ segir Ólafía í greininni.
Ólafía segist sjá fátt sem bendir
til þess að styrking krónunnar
hafi skilað sér í lægra matarverði.
„Og það er í takt við það sem við
neytendur sjáum í buddunni um
hver mánaðamót,“ segir Ólafía.
Hún spyr því þá sem halda því
fram að styrking krónunnar hafi
skilað sér í lægra verði á nauð-
synjavörum hvar ávinningurinn
sé.
„Í umræðunni hefur því oft
verið haldið fram að útgjöld til
matvæla séu sambærileg hjá
öllum heimilum, burtséð frá
tekjum. Það er ekki allskostar
rétt. VR hefur bent á að þeir sem
eru á lægri launum verji hlutfalls-
lega meira af sínum ráðstöfunar-
tekjum í matarinnkaup en þeir
sem hæstu launin hafa, eins og
Útgjaldarannsókn Hagstofunnar
sýnir,“ segir Ólafía í grein sinni.
Hún segir að tekjuhæstu heim-
ilin verji að meðaltali 10,7% ráð-
stöfunartekna sinna í mat- og
drykkjarvöru en þau tekjulægstu
17,6%.
Hagnaður Haga, sem rekur
matvöruverslanirnar Bónus og
Hagkaup, nam rúmum tveimur
milljörðum króna á tímabilinu
mars til ágúst síðastliðinn. Þetta
má sjá í árshlutauppgjöri sem var
kynnt síðla í október. Finnur Árna-
son, forstjóri fyrirtækisins, sagði
við það tilefni að það væri stöðug-
leiki í verðlagi og tekjuvöxtur lítill.
Hann sagði að styrking krón unnar
kæmi glöggt fram í því uppgjöri
enda væri framlegðin óbreytt.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslun-
ar og þjónustu, segir í samtali við
Fréttablaðið það vera alveg ljóst
að gengi krónunnar hafi afgerandi
áhrif á verðlagið. Hann bendir á
tölur Hagstofunnar varðandi verð-
lag máli sínu til stuðnings. Tólf
mánaða verðbólga var eitt prósent
í nóvember, en lækkunin skýrist
að mestu af lækkun flugfargjalda
og lægra olíuverði.
jonhakon@frettabladid.is
Segir innistæðu fyrir
lægra matarverði
Formaður VR segir að sterkara gengi krónunnar skili sér ekki í lægra vöruverði.
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu bendir á að verðlag í landinu
hafi lækkað á árinu. Framkvæmdastjóri Haga segir verðlag hafa verið stöðugt.
VILL MEIRI LÆKKUN MATARVERÐS Ólafía B. Rafnsdóttir segir þróun matarverðs
ekki hafa fylgt styrkingu krónunnar.
GENGI KRÓNUNNAR OG ÞRÓUN MATARVERÐS
105
100
95
90
85
80
janúar 2012 - september 2014
ja
n.
2
01
3
ja
n.
2
01
4
fe
b.
2
01
3
fe
b.
2
01
4
m
ar
. 2
01
3
m
ar
. 2
01
4
ap
r.
20
13
ap
r.
20
14
m
aí
. 2
01
3
m
aí
. 2
01
4
jú
n.
2
01
3
jú
n.
2
01
4
jú
l.
20
13
jú
l.
20
14
ág
ú.
2
01
3
ág
ú.
2
01
4
se
p.
2
01
3
se
p.
2
01
4
ok
t.
20
13
nó
v.
20
13
de
s
20
13
Innfluttar mat -
og drykkjarvörur
Mat -
og drykkjarvörur EU Gengi Dagvara
DÓMSMÁL Hæstiréttur sýknaði
á fimmtudag félagið Matthews
Holding S.A., Pálma Haraldsson,
oft kenndan við Fons, og Jóhann-
es Kristinsson af kröfu þrotabús
Fons um endurgreiðslu á arð-
greiðslu upp á 4,2 milljarða króna
frá árinu 2007.
Þrotabúið krafðist endur-
greiðslunnar á þeim grundvelli
að annmarkar hefðu verið á
framkvæmd úthlutunar arðsins,
þar sem fjárhagsstaða félags-
ins hefði ekki boðið upp á slíka
greiðslu.
Hæstiréttur taldi sýnt fram á
að nægur hagnaður hefði verið
af rekstri félagsins árið 2006 og
ekki hefði verið leitt í ljós að svo
miklum arði hefði verið úthlut-
að úr félaginu að andstætt hefði
verið góðum rekstrarvenjum með
tilliti til fjárhagsstöðu samstæð-
unnar.
Þannig þurfa þeir Pálmi og
Jóhannes ekki að endurgreiða
þrotabúinu þessa fjárhæð.
Fons var tekið til gjaldþrota-
skipta í apríl árið 2009 en lýstar
kröfur í þrotabúið námu samtals
39,8 milljörðum króna.
- fbj
Pálmi Haraldsson og fleiri voru sýknaðir af endurgreiðslukröfu þrotabús Fons:
Sleppa við 4,2 milljarða greiðslu
4,2 MILLJARÐAR Hæstiréttur taldi að
nægur hagnaður hefði verið í rekstri
Fons til að greiða út 4,2 milljarða í arð.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
NÁTTÚRA Vísindamenn flugu yfir
gosstöðvarnar í Holuhrauni á
fimmtudag. Meðal erinda þeirra
var að afla nákvæmra gagna um
rúmmál hraunbreiðunnar. Þeir
reikningar verða tilbúnir nú eftir
helgi, en vikugömul mæling sýndi
að rúmmál hraunsins er metið um
einn rúmkílómetri.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
flaug með vísindamenn á Bárðar-
bungu í gær til að koma á sam-
bandi við gps-mælitækið í öskj-
unni.
Eitt helsta sérkenni gossins sem
hófst þann 31. ágúst er mikið og
óvenju stöðugt hraunflæði. Kvikan
sem upp kemur er fremur frum-
stætt basalt með efnafræðileg
einkenni eldstöðvakerfis Bárðar-
bungu. Hraunbreiðan er nú 76 fer-
kílómetrar. Flæði hrauns í septem-
ber var nærri 200 rúmmetrum á
sekúndu en meðaltal fyrir nóvem-
ber er talið vera undir 100 rúm-
metrum á sekúndu. Nýja hraunið
er það stærsta sem runnið hefur
hér á landi frá Skaftáreldum (1783-
1784) og sennilega þriðja stærsta
hraun sem runnið hefur á jörðinni
á sama tímabili.
Þótt dregið hafi úr gosinu þá er
jarðskjálftavirkni og hraunflæði
þó enn mikið í samanburði við þau
eldgos sem orðið hafa á Íslandi í
yfir hundrað ár. Ef þróunin verð-
ur með sama hætti og verið hefur
mun bæði sig Bárðarbungu og eld-
gosið í Holuhrauni halda áfram í
að minnsta kosti nokkra mán-
uði, er mat vísindamannaráðs
almannavarna. - shá
Eldgosið í Holuhrauni mun halda áfram í nokkra mánuði hið minnsta er mat vísindamanna:
Flugu á Bárðarbungu til að gera við mæli
STÓRGOS Eldgosið mun halda áfram
langt inn á nýtt ár, ef að líkum lætur.
MYND/MARTIN RIISHUUS
1. Hver er nýráðinn Þjóðleikhússtjóri?
2. Hvaða leikmaður Stjörnunnar
skoraði 17 mörk í leik gegn Val í Olís-
deild karla?
3. Hvað kallast rafdúett Ólafs Arnalds
og Janusar Rasmussen?
SVÖR:
1. Ari Matthíasson. 2. Egill Magnússon. 3.
Kiasmos.
Save the Children á Íslandi
VEISTU SVARIÐ?