Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2014, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 08.12.2014, Qupperneq 4
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Fiskislóð 31, 101 Reykjavík | Sími 514 1400 | sumarferdir.is Jólapakkarí sólina í janúar á frábæru verði. sumarferdir.is LÖGREGLUMÁL „Þetta er alvarleg birtingarmynd ofbeldis og fólk er berskjaldað fyrir þessu. Ef eitthvað er komið á netið þá er það orðið eilíft og þú verður að gjöra svo vel að lifa með því,“ segir Guðrún Jónsdóttir, tals- kona Stígamóta, um svokallað hefndarklám. Í hefndarklám er dreifing á kynferðislegum myndum gegn vilja þess sem er á myndunum. Þingflokkur Bjartrar fram- tíðar hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér að hefndarklám verði bannað og gert refsivert. Guðrún segist fagna frumvarp- inu. Til Stígamóta hafi fórnar- lömb hefndar kláms leitað og býst Guðrún við að það aukist með meiri umræðu og vitundar- vakningu. „Þetta er ofbeldisform sem við höfum lengi verið að vinna með. Ráðin eru tekin af fólki og ákaflega persónulegu mynd- efni dreift gegn vilja þess. Um leið og búið er að setja mynd- efnið inn á netið þá er það orðið óskilan legt,“ segir Guðrún. Að sögn Guðrúnar hefur ekki verið tekinn saman aldur þeirra sem leita til Stígamóta vegna þessara mála en yfirleitt séu það ungar konur. „Það er mjög þarft að taka á þessum málum. Á næsta ári verða Stígamót 25 ára. Þá ætlum við að leggja áherslu á kyn- ferðislega áreitni og ofsóknir og þetta er ein birtingarmynd þess.“ - vh Mörg fórnarlömb hefndarkláms leita til Stígamóta. Talskona Stígamóta segir að um ofbeldi sé að ræða: Hefndarklám er grafalvarlegt ofbeldi GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR Fórnarlömb hefndarkláms hafa leitað til Stígamóta. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 34,2 ár var meðalaldur karla við sambúðar- slit á árunum 2006-2010. Meðalaldur kvenna við sambúðar- slit á sama tíma var örlítið lægri eða 31,5 ár. Heimild: Hagstofa Íslands STJÓRNSÝSLA Lögregluembættið á Hornafirði verður til bráðabirgða undir lögreglustjóranum á Austur- landi. Þetta kemur fram í frétta- tilkynningu frá innanríkisráðuneyt- inu. Nýr innanríkisráðherra, Ólöf Nordal, ætlar að fara yfir skipan lögregluumdæma landsins og mun fara yfir þessa reglugerð frá 4. des- ember. Ákvörðun Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar um að sveitar- félagið Hornafjörður teljist til umdæmis lögreglustjórans á Austur landi hefur vakið hörð við- brögð. Reglugerðin var undirrituð af Sigmundi þann fjórða desember síðastliðinn, sama dag og tilkynnt var að Ólöf Nordal yrði næsti innan- ríkisráðherra. Í fréttatilkynningu frá innan- ríkis ráðuneytinu um reglugerð ráðherra er greint frá því að sveitar félagið Hornafjörður telj- ist til umdæmis lögreglustjór- ans á Austur landi þar til úttekt á rekstrar forsendum lögreglunnar á Austurlandi hefur farið fram. Samkvæmt Jóhannesi Þór Skúla- syni, aðstoðarmanni Sigmundar, var ástæða þess sú að áhyggju- raddir höfðu heyrst frá lögreglunni á Austur landi og sveitarstjórnar- mönnum á svæðinu. „Rekstrargrundvöllur lögregl- unnar á Austurlandi hefur ekki verið nógu sterkur. Að mati heima- manna skipti það miklu máli að það samstarf sem hefur verið milli lög- regluembætta á Höfn og á Austur- landi sé skoðað nánar og rekstrar- forsendurnar endurmetnar,“ segir Jóhannes Þór. Því verður nú ráðist í það að skoða rekstur lögreglunnar á Austur landi. Þegar því endurmati verður lokið mun ákvörðun verða tekin hvort lög- reglan á Höfn muni tilheyra Suður- landi eða Austurlandi. Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, segir ákvörðun Sigmundar hafa komið á óvart. Unnur Brá Konráðs- dóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis, telur að það eigi að draga reglugerð Sigmundar til baka. Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, hefur sent þingmönn- um kjördæmisins bréf þar sem hann undrast þessa skipan. Bæjarstjóri hafi fengið fundarboð hjá lögreglu- stjóranum á Suðurlandi því hann hafi viljað hitta alla framkvæmda- stjóra sveitarfélaga í sínu umdæmi. Vonast Björn Ingi eftir að þessi ákvörðun verði endurskoðuð. „Nýr lögreglustjóri Suðurlands hefur komið hingað og hitt starfs- menn lögregluumdæmisins á Höfn og í gangi er skipulagsvinna þessu tengd,“ segir Björn Ingi. „Í síðustu viku fékk ég fundarboð frá lögreglustjóra Suðurlands um að koma til fundar við hann í næstu viku þar sem hann ætlaði að hitta alla framkvæmdarstjóra sveitarfé- laga í sínu umdæmi.“ Ný lög um skipan lögregluum- dæma lögreglustjóra voru sam- þykkt þann 14. maí síðastliðinn. Þar er lögregluumdæmum fækk- að úr 24 í níu og lögreglustjórum fækkað úr fimmtán í níu. Lögreglu- umdæmin eru Höfuðborgarsvæðið, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austur- land, Suður land, Vestmannaeyjar og Suðurnes. Lögregluembættið á Höfn hefur frá árinu 2007 verið í samstarfi við lögregluna á Austfjörðum. Sú ákvörðun Sigmundar felur því ekki í sér neinar breytingar frá fyrri högum lögreglunnar í sveitarfé- laginu Hornafirði. Ekki náðist í Sigmund sem var erlendis í gær. sveinn@frettabladid.is Lögreglan á Höfn tilheyrir Austurlandi til bráðabirgða Ákvörðun forsætisráðherra að láta lögregluembættið á Höfn tilheyra Austurlandi hefur vakið hörð viðbrögð. Ástæðan er rekstrargrundvöllur lögreglunnar á Austurlandi sem ekki er talinn góður. Endurmeta á reksturinn. UMDEILD ÁKVÖRÐUN Síðasta verk Sigmundar Davíðs sem dómsmálaráðherra vekur hörð viðbrögð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL Landsframleiðsl- an á fyrstu níu mánuðum árs- ins 2014 jókst um 0,5 prósent að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins í fyrra, sam- kvæmt Hagstofu Íslands. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 3 prósent. Einkaneysla jókst um 2,8 pró- sent, samneysla um 1,1 prósent og fjárfesting um 12 prósent. Útflutningur jókst um 5,1 prósent og innflutningur nokkru meira, eða um 10,8 prósent. -þij Nýjar tölur Hagstofunnar: Ekki framleitt fyrir útgjöldum ÞÝSKALAND Lagt er til að innflytj- endum í Þýskalandi verði gert skylt að tala þýsku við aðra fjöl- skyldumeðlimi samkvæmt tillögu á komandi flokksþingi CSU í Bæj- aralandi. Flokkurinn er systur- flokkur Kristilegra demókrata. Tillagan er ætlað að koma í veg fyrir að innflytjendur geti talað móðurmál sitt á eigin heimili. CSU er með hreinan meirihluta á landsþinginu í Bæjaralandi. Stuðningsmenn tillögunnar segja hana hjálpa innflytjendum að aðlagast þýsku samfélagi. Margir gagnrýna tillöguna, þar á meðal Peter Tauber, aðalritari Kristi- lega demókrataflokksins. -sks Umdeild tillaga sett fram: Innflytjendur tali þýsku PETER TAUBER Aðalritari Kristilegra demókrata. NORDICPHOTOS/AP Að mati heima- manna skipti það miklu máli að það samstarf sem hefur verið milli lögreglu- embætta á Höfn og á Austurlandi sé skoðað nánar. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá SA-STORMUR gengur yfir landið í nótt en í fyrramálið má búast við hvassri NA-átt NA-til en snýst svo í SV-átt þegar líður á morguninn. Snjókoma um allt land en úrkomulítið N- og A-til síðdegis. N-hvassviðri eða stormur NV-til á miðvikudag. -2° 7 m/s 0° 6 m/s -1° 6 m/s 4° 7 m/s 5-13 m/s 10-20 m/s NV- og V- til, annars hægari Gildistími korta er um hádegi 3° 21° 0° 6° 17° 3° 4° 6° 6° 22° 6° 15° 16° 14° 9° 3° 6° 4° -3° 2 m/s -2° 4 m/s -7° 4 m/s 4° 4 m/s -6° 5 m/s -4° 8 m/s 11° 6 m/s 0° -2° -1° -6° -3° -5° -1° -4° -3° -5° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur MIÐVIKUDAGUR Á MORGUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.