Fréttablaðið - 08.12.2014, Síða 15

Fréttablaðið - 08.12.2014, Síða 15
MÁNUDAGUR 8. desember 2014 | SKOÐUN | 15 LEIGUÍBÚÐIR FYRIR 60+ REYKJAVÍK | HAFNARFIRÐI | KÓPAVOGI Sérhannaðar íbúðir með góðu aðgengi Aðeins örfáar íbúðir eru lausar í Boðaþingi, Kópavogi. Frekari upplýsingar: Sími 585-9300 | aldis@naustavor.is www.naustavor.is Kostir við að búa í íbúðum Naustavarar: Íbúðir öryggi | afþreying | þjónusta Njótum lífsins á efri árum Fólk er ýmislegt og alls konar; það hefur ólíkar raddir. Það afgreiðir í búð og það klippir hár eða gerir út á dragnót; það skrifar bækur, spilar á trompet eða keppir í skíðagöngu; það heldur með Leeds í enska bolt- anum, hlustar á Rihönnu eða Arvo Pärt, leikur við hvern sinn fingur eða sér ekki út úr augun- um fyrir tárum; það stundar sjó- inn, hannar nýja línu af lunda- styttum, málar báta, býr til hatta, syngur í kór. Við skiptumst ekki í tvær fylk- ingar, vinstri og hægri, með og á móti, heldur liggja leiðir okkar saman og sundur eftir ótal flókn- um leiðum því að fólk er ýmis- legt og alls konar og hefur ólíkar raddir inni í sér og kringum sig. Samfélag og tvístringur En við eigum samfélag þó að við séum svona ólík. Samfélags- aðildinni fylgja margvíslegar sameiginlegar skyldur og rétt- indi – og einhvers konar sam- kennd: við eigum sögu; ljóta, fagra, fyndna, hræðilega, glæsta, auma. Við eigum sam- eiginlegar sögur og sagnir og alls konar tilvísanir hingað og þangað; við tölum flest þessa tungu, sem er svo sannarlega ein sérviskan í heiminum. Við eigum saman menningarverðmæti. Sem sé: Við höfum komið okkur saman um ýmsa tilhögun við það að tala saman og leitast við að heyra hvert í öðru. Gefin eru út blöð og reknar útvarpsstöðvar og sjónvarpsstöðvar; við hittumst á Kjaftaklöppinni Facebook og til eru þau sem blogga eins og þau eigi lífið að leysa. Tæknin hefur tilhneigingu til að beina okkur í tilteknar menningarkvíar. Við sækjumst, eðli málsins sam- kvæmt, fremur eftir því að tengj- ast þeim sem við teljum okkur eiga samleið með, pólitískt og menningarlega, svo að við getum rætt hugðarefni okkar við skyld- ar sálir. Það er þægilegt. En varasamt. Meðal þess sem ógnar samfélaginu nú á dögum, samfélagslegri vitund og hæfi- leikanum til að setja sig í spor annarra – samlíðaninni sem er forsenda svo margs í siðuðu sam- félagi – er tvístringurinn sem netlífinu fylgir. Hólfmennskan. Við sjáum þetta til dæmis þegar fólk sem telur sig í menningar- legri miðju landsins, í miðbæ Reykjavíkur og svo fólk sem telur hjarta landsins slá í brjósti sér og býr utan Reykjavíkur, er að skiptast á skætingi með gagn- kvæmu áhugaleysi um að setja sig í spor viðhrópandans. Á netinu fer maður smám saman bara að heyra þær frétt- ir sem manni líkar vel að heyra og staðfesta þá hugmyndafræði og sýn sem maður hefur ræktað með sér í sínu hólfi. Maður les bara pistla þess fólks sem orðar af listfengi það sem maður sjálf- ur vildi sagt hafa. Maður leitar staðfestu og staðfestingar. Þetta er hættulegt. Við þurfum að eiga sameiginlegan vettvang þar sem sagðar eru fréttir, miðlað sögu og menningu, skipst á skoðunum og álitamál brotin til mergjar án fyrirframgefinnar niðurstöðu. Sá vettvangur er til: Ríkisút- varpið. Sundrungartákn íslensku þjóðarinnar Ríkisútvarpið býr við linnu lausar og samfelldar árásir frá óbil- gjörnum öfgasinnum sem kepp- ast við að verða sundrungartákn íslensku þjóðarinnar; ala sífellt á úlfúð og hatri. Þetta eru menn sem eru á launum við að ganga erinda tiltekinna hagsmunaafla í samfélaginu, ýmist á þingi eða á tilteknum fjölmiðlum. Fremst- ur þar í flokki er Davíð Oddsson sem nú er orðinn hjú hjá LÍÚ. Engu er líkara en að hann telji sig orðinn sérstakan saksókn- ara í ímynduðu sakamáli gegn þessari stofnun. Það er honum og áhangendum hans kappsmál að grafa undan því mikla trausti sem Ríkisútvarpið nýtur meðal landsmanna eins og skoðana- kannanir hafa þráfaldlega leitt í ljós. Þrátt fyrir átta hundruð Reykjavíkurbréf í Morgun- blaðinu, sem verða æ frekjulegri – og skringilegri – þá hafa þau skrif greinilega ekki orðið til annars en að auka traust og tiltrú almennings á Ríkisútvarpinu. Flestir Sjálfstæðismenn átta sig á því að þjóðin vill hafa þessa stofnun, hvort sem við erum vinstri sinnuð eða hægri sinn- uð. Hvar sem við stöndum. Því að þetta er okkar stofnun, sem þjónar almenningi en ekki sér- hagsmunum, sinnir þjóðmenn- ingu í víðasta skilningi en ekki stundarmarkaðsvörum, leit- ar sannleikans en gengur ekki erinda. Ríkisútvarpið er mikils- verður hluti af þeim innviðum íslensks samfélags sem viss öfl vilja veikja. Það ræktar sam- kennd okkar. Þar kliða raddir sem við myndum jafnvel ekki heyra í annars. Þar heyrum við músík sem enginn sérstakur er að reyna að selja okkur en ástæða er til að halda á lofti. Þar býr þjóðarminnið og bætist við jafnt og þétt; það sem framleitt er núna í Ríkisútvarpinu verður einn góðan veðurdag að ómetan- legum menningarverðmætum. Í útvarpinu kliða raddir tím- ans. Verðmæti stofnunarinnar er ekki bara í ómetanlegu segul- banda og myndasafni stofn- unarinnar; það er líka í því óáþreifan lega, sögunni, hefð- inni, þekkingunni – samfell- unni. Ríkis útvarpið er sameign íslensku þjóðarinnar sem vill hafa öflugt almannaútvarp hér á landi þar sem fólk fær að starfa af fagmennsku og heilindum en þarf ekki að búa við stöðugar árásir frá frekjuhundum. Árásirnar á Ríkisútvarpið jafngilda árásum á Árnastofnun eða Veðurstofuna. Þetta er eins og að vera andvígur Þjóðminja- safninu. Þetta er eins og að berj- ast fyrir því að Esjan verði lögð niður. Þar kliða raddir tímans Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Ríkisútvarpið býr við linnulausar og samfelldar árásir frá óbil- gjörnum öfgasinnum sem keppast við að verða sundr- ungartákn íslensku þjóðar- innar; ala sífellt á úlfúð og hatri. Þetta eru menn sem eru á launum við að ganga erinda tiltekinna hagsmuna- afla í samfélaginu, ýmist á þingi eða á tilteknum fjölmiðlum. Fremstur þar í flokki er Davíð Oddsson sem nú er orðinn hjú hjá LÍÚ. Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.