Fréttablaðið - 08.12.2014, Page 18
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
SVERRIR ÚLFSSON
fyrrverandi bifreiðastjóri, Sóleyjarima 1,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 3. des-
ember. Útförin fer fram frá Grafar vogs kirkju
fimmtu daginn 11. desember kl. 13.00.
Svandís Hallsdóttir
Hrafnhildur Sverrisdóttir Francisco Da Silva Chipa
Ragnar Sverrisson Elsa Petra Björnsdóttir
Ragna Sverrisdóttir Guðmundur Árnason
Kolbeinn Sverrisson Þóranna Halldórsdóttir
Sigrún Ólafsdóttir Skúli Lárus Skúlason
og barnabörn.
Útför elskulegrar eiginkonu minnar,
SÓLVEIGAR ÁRNADÓTTUR
Gullsmára 9, Kópavogi,
fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi,
þriðjudaginn 9. desember kl. 11.00.
Stefán Þórhallsson og fjölskylda
„Ég hræðist ekki aldurinn og tek
honum fagnandi. Er ekkert farinn
að örvænta enn þá,“ segir leikarinn
góðkunni Björn Hlynur Haraldsson
spurður hvernig hækkandi aldur fari
í hann. Kappinn er fertugur í dag,
skyldi hann ætla að halda upp á það?
„Ekki núna. Ég ætla að leyfa jól-
unum að líða. Þannig hefur það nú
oft verið með þennan dag. Þegar ég
var yngri þá voru alltaf allir í próf-
um á þessum tíma og ekkert hægt
að aðhafast. Ég hef verið að spá í
hvernig ég ætti að halda upp á þetta
afmæli. Ein hugmyndin gekk út á
að taka fjölskylduna mína með til
útlanda um jólin en ekki var tekið
vel í það að fara af landi brott.
Það verður kannski um fimmtugs-
afmælið. En ég hef dottið niður á
hugmynd sem ég verð nú líklega að
standa við ef ég nefni hana í blaðinu
hjá þér. Ég er að hugsa um að halda
tónleika, setja saman hljómsveit og
taka nokkur lög fyrir vini og ætt-
ingja en ég ætla að leyfa jólastress-
inu að ganga yfir áður. Ég mun ekki
kalla það afmæli, bara kalla á fólk og
spila nokkur lög.“
Ertu liðtækur hljóðfæraleikari?
„Ég er svona skítsæmilegur á nokk-
ur hljóðfæri en er ekki framúrskar-
andi á neitt. Ætla bara að syngja og
kannski grípa í gítar og fá einhverja
vini mína með mér.“
Þegar Björn Hlynur varð þrítugur
kveðst hann hafa haldið upp á afmæl-
ið í London. „Það var þegar við vorum
að sýna Rómeó og Júlíu á West End,“
rifjar hann upp. „Mér finnst ótrúlega
stutt síðan.“
Hann situr ekki aðgerðarlaus leik-
arinn heldur er með mörg og krefj-
andi verkefni í gangi eins og hann
lýsir. „Ég er að leika í Karitas í Þjóð-
leikhúsinu og svo erum við að fara í
áframhaldandi tökur á kvikmyndinni
minni Blóðbergi sem ég byrjaði að
taka í ágúst. Við tökum nokkra daga
í byrjun janúar bara um allar triss-
ur hér í Reykjavík og ég er líka að
klippa efnið sem komið er í myndina.
Einnig er ég að undirbúa leikrit sem
ég ætla að sýna með vorinu sem ég
kalla Móðurharðindin. Ég er höfund-
ur þess. Það er byggt á aðalleikurun-
um Árna Pétri og Kjartani Guðjóns-
sonum og við í Vesturporti gerum í
samstarfi við Þjóðleikhúsið. Þetta
fjallar um þá og fleiri í fjölskyld-
unni, meðal annars mömmu þeirra
sem er mjög skemmtilegur karakter.
Við ætlum að fara með Móðurharð-
indin í alla landshluta, jafnvel frum-
sýna úti á landi.“
Ekki nóg með það. Björn Hlynur
er líka að leika í sjónvarpsseríunni
Ófærð og á að vera mættur þar
klukkan sex í fyrramálið, sunnu-
dag. „Það verður byrjað í Reykja-
vík og svo verður farið á Siglufjörð
og Seyðisfjörð, held ég, og treyst á
að það verði ófærð. Ég var reyndar
í annarri seríu í ár, hún er bresk en
var tekin á Reyðarfirði sem átti að
vera í hlutverki Svalbarða en þar var
aldrei neinn snjór. Það þurfti að búa
til hvert snjókorn í vél, sem sýnir að
það er ekki hægt að stóla á neitt á
þessu landi, ekki einu sinni snjó – þó
heitir þetta Ísland.“ gun@frettabladid.is
Ekkert farinn að örvænta
Þótt Björn Hlynur Haraldsson leikari fagni því í hjarta sínu að verða fertugur má hann ekki
vera að því að halda upp á það í dag. Hann treystir á að tími gefi st til smá giggs eft ir jól.
„Þetta eru árlegir tónleikar í litlu
kirkjunni okkar hér í Mosfellsdal,
þar ætla ég að syngja með blásara-
sextett. Við erum þar nú átjándu
aðventuna í röð,“ Þetta segir söng-
konan Sigrún Hjálmtýsdóttir, jafn-
vel betur þekkt sem Diddú, um tón-
leika í Mosfellskirkju á morgun, 9.
des ember klukkan 20.
Hópurinn samanstendur af tveim-
ur klarínettleikurum, tveimur
fagottleikurum, tveimur hornleik-
urum og að sjálfsögðu Diddú. „Dag-
skráin er fjölbreytileg og hátíðleg,“
lofar hún. „Þar verða meðal annars
norræn jólalög, ítalskar barokkaríur,
gamall íslenskur sálmur, verk eftir
Mozart og fleiri lög sem fólk vill
heyra á aðventunni!“
Diddú segir tvo úr hópnum útsetja
öll lögin og gæti þar ýmissa aðgengi-
legra söngva sem alla jafna heyrist
ekki. „Annar útsetjaranna dvaldi í
Vínarborg síðastliðið ár við grúsk á
söfnum borgarinnar og nærliggjandi
landa og fann ýmislegt sem verð-
ur flutt á tónleikunum,“ segir hún
og getur þess að miðar séu seldir á
skrifstofu Mosfellsbæjar og við inn-
ganginn. -gun
Lög sem fólk vill heyra á aðventunni
Hátíðlegir aðventutónleikar verða haldnir í kirkjunni á Mosfelli í Mosfellsdal annað kvöld.
MERKISATBURÐIR
1953 Dwight D. Eisenhower, forseti Bandaríkjanna, heldur
annálaða ræðu um ágæti kjarnorkunnar.
1966 Gríska ferjan Heraklion sekkur í Eyjahaf. Um 200 manns
láta lífið.
1971 Undirritað er samkomulag um stjórnmálasamband á milli
Íslands og Kína. Ári síðar opna Kínverjar sendiráð í Reykjavík.
1974 Grískir kjósendur hafna því að taka aftur upp konungs-
veldi.
1987 Stofnuð eru samtökin Ný dögun um sorg og sorgarvið-
brögð.
1991 Leiðtogar Rússlands, Hvíta-Rússlands og Úkraínu stofna
Samveldi sjálfstæðra ríkja.
1991 Rúmenar samþykkja nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
2006 Leikjatölvan Wii kemur út í Evrópu.
DWIGHT D. EISENHOWER
Hinn vinsæli tónlistarmaður og
friðarsinni John Lennon féll í val-
inn þennan dag árið 1980. Það var
geðsjúkur aðdáandi, Mark David
Chapman að nafni, sem skaut
hann fjórum skotum í bakið fyrir
utan Dakota-bygginguna í New
York, þar sem Lennon og Yoko
Ono kona hans bjuggu. Þau voru
að koma úr hljóðveri þar sem þau
höfðu varið nokkrum klukku-
tímum í upptökur á nýju lagi Ono.
Lennon hafði gefið Chapman
eiginhandaráritun sama dag.
Eftir árásina lagði Chapman frá
sér byssuna og settist á gang-
stéttina þar sem lögregla handtók hann. Lennon var fluttur á
Roosevelt-sjúkrahúsið, en sökum mikils blóðmissis lést hann
á leiðinni þangað. Strax og fréttinni af láti hans var útvarpað
safnaðist fólk saman fyrir utan heimili hans, baðst fyrir, söng lög
hans og kveikti á kertum.
ÞETTA GERÐIST 8. DESEMBER 1980
John Lennon var
skotinn til bana
LEIKARINN „Ég er að hugsa um að halda tónleika, setja saman hljómsveit og taka nokkur lög fyrir vini og ættingja en ég ætla að leyfa jóla-
stressinu að ganga yfir áður.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JOHN LENNON
Ég er svona
skítsæmilegur á
nokkur hljóðfæri
en er ekki fram-
úrskarandi á
neitt. Ætla bara
að syngja og
kannski grípa í
gítar og fá ein-
hverja vini mína
með mér.
Í MOSFELLSKIRKJU Hópurinn ætlar meðal
annars að flytja norræn jólalög, ítalskar
barokkaríur og verk eftir Mozart.