Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2014, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 08.12.2014, Qupperneq 36
FÓLK|HEIMILI Hver jól hanna ég eitthvað nýtt, svo sem jólakort eða merkimiða. Í ár lang- aði mig að gera eitthvað annað og hannaði og myndskreytti dagatal fyrir árið 2015,“ segir Linda Ólafsdóttir, myndskreytir og myndlistarmaður, um nýtt dagatal sem hún sendi frá sér nú fyrir jólin. Linda starfar sem mynd- skreytir og hefur myndskreytt bæði barnabækur og námsbæk- ur auk þess að hanna mynstur en hennar helstu verkfæri eru blýantur og pensill. Dagatalið prýða skemmtileg- ar fuglamyndir. Hver mánuður er myndskreyttur með fugli og einhverju sem tengist árstíð- inni eða mánuðinum. Dagatalið kemur með silfraðri klemmu sem hægt er að hengja það upp á. Það er prentað á pappír sem er nógu þykkur til að síðurnar geti staðið í hillu eða á borði einar og sér. „Til þess að auka notagildi dagatalsins, er hægt að klippa myndirnar burt frá dögunum þegar mánuðirnir eru búnir og nota þær fyrir kort eða setja í ramma,“ segir Linda. Nánar má forvitnast um verk Lindu á www.lindaillustration. blogspot.com. FUGLAR FYRIR HVERN MÁNUÐ HEIMILI Linda Ólafsdóttir hefur sent frá sér dagatal. Fuglar prýða hvern mánuð en Linda notast við blýant og pensil við vinnu sína. ÁRIÐ ER 2015 Dagatalinu fylgir klemma til að hengja það upp. Einnig getur hver mánuður staðið á hillu. SKEMMTILEGT Blýantur og pensill eru helstu verkfæri Lindu en hún hefur myndskreytt bæði barnabækur og námsbækur. ÁRSTÍÐIR Fuglarnir og umhverfið tengjast þeim mánuði eða árstíð sem um ræðir. FJÖLBREYTT VERKEFNI „Í ár langaði mig að gera eitthvað annað og hannaði og myndskreytti dagatal fyrir árið 2015.“ MYNDIR/LINDA ÓLAFSDÓTTIR ht.is Engin venjuleg upplifun Við kynnum Philips Ambilight 9000 sjónvörpin

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.