Fréttablaðið - 08.12.2014, Page 48
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 28
SUND Jacky Pellerin, landsliðsþjálfari
Íslands í sundi, var ánægður með árang-
ur íslenska sundfólksins á HM í sundi í
25 metra laug sem lauk í Doha, höfuð-
borg Katar, um helgina.
„Ég er mjög sáttur með árangur hóps-
ins. Við fengum fimm Íslandsmet og
þrjú landssveitarmet svo að það er ekki
hægt annað en að vera ánægður með
það,“ sagði Jacky Pellerin.
Eygló Ósk Gústafsdóttir náði bestum
árangri þegar hún náði tíunda sæti í 200
metra baksundi en hún var mjög nálægt
því að komast í úrslitin. „Þetta munaði
litlu hjá henni. Hún var alveg við sinn
besta tíma en auðvitað vorum við pínu-
lítið vonsvikinn þar sem það munaði
svona litlu. Þetta var samt hröð grein
með heimsmeti og hún var sátt enda
skilaði hún sínu,“ sagði Pellerin.
Stelpurnar áttu öll fimm Íslandsmetin
í einstaklingsgreinum á mótinu. Hrafn-
hildur Lúthersdóttir (100 og 200 metra
bringusund) og Inga Elín Cryer (400 og
800 metra skriðsund) settu báðar tvö
Íslandsmet og Eygló Ósk Gústafsdóttir
bætti metið í 100 metra fjórsundi. En
eru stelpurnar betri en strákarnir?
„Það er í rauninni ekki hægt að
bera þetta saman en það er samt ekki
hægt að neita því að stelpurnar eru
örlítið betri en strákarnir. Stelp urnar
eru hins vegar miklu reyndari og
hafa synt áður á svona stóru móti
en strákarnir eru yngri og mun
reynsluminni,“ sagði Pellerin.
„Það er mjög jákvætt að fara
út með svona marga keppend-
ur og þetta var frábær reynsla
fyrir sundfólkið og okkur þjálf-
arana líka. Þetta er vonandi
bara fyrsta mótið af mörgum
hjá fullt af þessum krökkum,“
sagði Pellerin.
Hér til hliðar má síðan sjá
topp tíu listann yfir besta árang-
ur íslenska sundfólksins í Katar
en stelpurnar áttu níu bestu
sæti Íslendinga á HM í 25
metra laug í ár. -óój
Sundstelpurnar skrefum á undan strákunum
Fimm Íslandsmet og þrjú landssveitarmet voru sett á HM í sundi í Katar og landsliðsþjálfarinn er sáttur.
ÖFLUG
Hrafn-
hildur Lúthers-
dóttir komst
inn á topp
22 í þremur
sundum.
BESTI ÁRANGUR HJÁ
ÍSLENDINGUM Á HM 2014:
10. SÆTI
Eygló Ósk Gústafsdóttir 200 metra baksund
17. SÆTI
Hrafnhildur Lúthersdóttir 200 m bringusund*
19. SÆTI
Hrafnhildur Lúthersdóttir 50 metra bringusund
22. SÆTI
Hrafnhildur Lúthersdóttir 100 m bringusund*
23. SÆTI
Eygló Ósk Gústafsdóttir 100 metra fjórsund*
Eygló Ósk Gústafsdóttir 100 metra baksund
25. SÆTI
Inga Elín Cryer 800 metra skriðsund*
27. SÆTI
Eygló Ósk Gústafsdóttir 50 metra baksund
Inga Elín Cryer 400 metra skriðsund *
30. SÆTI
Kristinn Þórarinsson 200 metra fjórsund
* SETTI ÍSLANDSMET Í GREININNI
KÖRFUBOLTI „Það er ekki mikið
hægt að kvarta yfir því,“ segir
Finnur Freyr Stefánsson, þjálf-
ari Íslandsmeistaraliðs KR sem
er á toppnum með fullt hús og
hefur unnið 96,8 prósent deildar-
leikjanna undir hans stjórn.
KR hefur unnið alla níu deildar-
leikina í vetur og vann 21 af 22
deildarleikjum sínum á síðustu
leiktíð auk þess að fara alla leið og
tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn
í úrslitakeppninni.
Öll verkfærin í kringum hann
Hvernig hefur Finnur farið að því
að endurskrifa þjálfarasögu deild-
arinnar? „Ég var heppinn að fá
gríðarlega sterkan hóp upp í hend-
urnar, umgjörðin er góð og það er
vel haldið utan um hlutina Í KR.
Öll verkfærin í kringum mig hafa
verið til fyrirmyndar og sem betur
fer hafa úrslitin verið eftir því,“
segir Finnur. Honum sem bæði
ungum og reynslulitlum þjálfara
gekk vel með að ráða við stjörnum
prýtt lið KR frá fyrsta leik.
„Þetta eru svo heilsteyptir menn
sem maður er að þjálfa og þeir
tóku mér opnum örmum. Þetta eru
allt strákar sem eiga sterkar rætur
í klúbbnum, hafa spilað þarna
lengi eða eru uppaldir. Markmið
allra eru sameiginleg og þegar
allir eru tilbúnir að róa í rétta átt
þá gerir það verkefnið miklu auð-
veldara,“ segir Finnur.
Bætt met Vals Ingimundarsonar
Finnur bætti met Vals Ingimundar-
sonar um fjóra leiki í sigrinum á
Stjörnunni á fimmtudagskvöldið
en Valur vann sinn 30. þjálfara-
sigur í úrvalsdeild karla í sínum
35. leik í mars 1988. Valur bætti þá
met Gunnars Þorvarðarsonar frá
1985 um einn leik en þeir Friðrik
Ingi Rúnarsson, sem vann 30. sig-
urinn í sínum 36. leik í desember
1991, og Helgi Jónas Guðfinnsson,
sem gerði hið sama í sínum 38. leik
í febrúar 2012, eru hinir menn-
irnir á topp fimm listanum. Finnur
gat ekki frekar en aðrir séð fyrir
sér svona marga sigurleiki og svo
fá töp þegar hann tók við KR-liðinu
í maímánuði 2013.
„Síðan ég var lítill strákur og
svo þegar ég hætti að spila sjálfur
og ákvað að gerast þjálfari fyrir
fimmtán árum, þá hefur það alltaf
verið stærsti draumurinn að taka
við KR. Þegar tækifærið kom þá
óraði mann ekki fyrir þessari
byrjun. Ég er gríðarlega þakk-
látur fyrir tækifærið og þessi tími
er búinn að vera ótrúlegur. Von-
andi erum við samt rétt að byrja
og þetta aðeins upphafið að ein-
hverju meira svona,“ segir Finnur
sem fær góðan vinnufrið í Frosta-
skjólinu.
Eigin frami og frægð í öðru sæti
„Þegar vel gengur þá er erfitt að
kvarta eða setja út á hlutina. Í
svona liði verða allir að vera til-
búnir að gefa eitthvað frá sér.
Strákar sem gætu verið í stærri
hlutverkum annars staðar eru að
sætta sig við minni hlutverk hjá
okkur. Við erum allir í þessu til að
vinna og setjum allir liðið í fyrsta
sætið. Okkar eigin frami og frægð
eru í öðru sæti og það á jafnvel við
mig og alla strákana í liðinu. Liðið
kemur númer eitt og allt annað er í
sætinu fyrir neðan,“ segir Finnur.
30 sigrar í 31 leik á rúmum
fjórtán mánuðum. En hvað með
þennan eina tapleik? „Ég man
vel eftir honum, hann var á
móti Grindavík í fyrsta leiknum
á árinu. Við komum flatir inn
eftir jólin, vorum ekki klárir og
töpuðum fyrir góðu Grindavíkur-
liði. Við höfum alltaf sagt það að
við erum ekki hræddir við það
að tapa. Það kemur að því að við
töpum og maður lærir helling af
töpunum,“ segir Finnur. KR- ingar
láta heldur ekki umræðuna um
yfirburðarlið og að mótið sé búið
trufla einbeitingu sína.
„Við erum ekki að stressa okkur
of mikið yfir því sem öðrum
finnst. Við vitum hvað við ætlum
að gera og teljum okkur vita hvað
við þurfum að gera til að láta það
gerast. Við erum með báða fætur
á jörðinni og það skiptir ekki öllu
hvort það verði enginn tapleikur
eða þrír tapleikir. Við stefnum á
stóru titlana og erum tilbúnir að
gera það sem þarf til að ná þeim,“
sagði Finnur.
ooj@frettabladid.is
Draumabyrjun í draumastarfi
Finnur Freyr Stefánsson vann á fi mmtudagskvöldið sinn þrítugasta sigur sem þjálfari í úrvalsdeild karla en
því náði hann í aðeins 31 leik eða á undan öllum öðrum þjálfurum í sögu deildarinnar.
FYRSTIR Í 30 SIGRA Í
ÚRVALSDEILD KARLA:
31 LEIKUR (30 SIGRAR OG 1 TAP)
Finnur Freyr Stefánsson Desember 2014
35 LEIKIR (30 SIGRAR OG 5 TÖP)
Valur Ingimundarson Mars 1988
36 LEIKIR (30 SIGRAR OG 6 TÖP)
Gunnar Þorvarðarson Janúar 1985
Friðrik Ingi Rúnarsson Desember 1991
38 LEIKIR (30 SIGRAR OG 8 TÖP)
Helgi Jónas Guðfinnsson Febrúar 2012
39 LEIKIR (30 SIGRAR OG 9 TÖP)
Einar Árni Jóhannsson Febrúar 2006
40 LEIKIR (30 SIGRAR OG 10 TÖP)
Sigurður Ingimundarson, Tim Dwyer, Friðrik
Ragnarsson og Laszlo Nemeth.
KÖRFUBOLTI Þetta er stór dagur fyrir íslenskan körfubolta því í dag kemur í ljós í Disneyland
í París hvar og með hverjum íslenska körfuboltalandsliðið mun spila á sínu fyrsta stórmóti.
Finnur Freyr Stefánsson, aðstoðarþjálfari íslenska liðsins, verður einn af þeim sem fylgist
spenntur með klukkan 16.00 í dag þegar dregið verður í riðla á Evrópumótinu.
„Ég held ég hafi náð að teikna upp riðil þar sem við lendum í riðli með Þýskalandi, Serbíu,
Grikklandi, Spáni og einhverju einu öðru. Við getum lent í svakalegum riðli en þetta er eitthvað
sem við stýrum ekki og við tökum bara því sem kemur upp úr pottunum,“ segir Finnur. Keppnin
fer fram dagana 5.-20. september á næsta ári í fjórum löndum; Frakklandi, Króatíu, Lettlandi og
Þýskalandi. Ísland er í sjötta styrkleikaflokki og getur því ekki lent í riðli með Hollandi, Rúss-
landi eða Eistlandi sem eru í sama styrkleikaflokki þar sem aðeins eitt lið úr hverjum flokki fer í
hvern riðil. Það eina sem er því ljóst fyrir fram, fyrir utan að leika ekki gegn þessum liðum, er að
Ísland mun ekki leika í Lettlandi. „Við vitum bara að við förum þangað til að berjast til síðasta
blóðdropa og gera okkar besta,“ segir Finnur. Hann fylgist með drættinum ásamt landsmönnun-
um Loga Gunnarssyni, Helga Magnússyni og Pavel Ermolinskji. „Spánn er liðið sem mig langar
að mæta,“ segir Finnur léttur en bætir svo við: „Það verður gaman að koma á EM. Við ætlum að
láta til okkar taka og vera öskubuskuævintýrið á EM á næsta ári,“ segir Finnur. - óój
Í hvaða ævintýri lendir íslenska körfuboltalandsliðið í dag?
FYRIRLIÐINN Hlynur Bærings-
son fylgist örugglega vel með
frá Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson
fékk á laugardaginn sitt fyrsta
tækifæri í byrjunarliði Ajax í
einn mánuð en þetta var stutt
gaman hjá framherjanum.
Kolbeinn leikur ekki meira á
árinu eftir að hafa meiðst illa á
ökkla þegar hann varð fyrir ljótri
tæklingu aðeins fjórum mínút-
um eftir að hann kom Ajax í 1-0.
Kolbeinn endaði einnig síðasta ár
(2013) á slæmum ökklameiðslum
sem hann varð fyrir í umspils-
leiknum við Króata.
„Þetta var mikil synd því hann
var nýbúinn að skora flott mark
og var búinn að leggja mikið
á sig,“ sagði þjálfarinn Frank
De Boer. „Ég varð fyrir svona
meiðslum í síðasta landsleiknum
mínum. Þetta eru ekki verstu
meiðsli sem þú verður fyrir en
ættu að halda honum frá í tvær
til þrjár vikur,“ sagði De Boer.
De Boer sagist þó ekki vera
búinn að velja á milli Kolbeins og
Arkadiusz Milik. „Þeir eru báðir
í góðum gír en þessi meiðsli eru
óheppileg fyrir Kolbein. Sem sem
betur fer höfum við Milik,“ sagði
De Boer. Milik kom inn á fyrir
Kolbein, skoraði tvö mörk og
lagði upp eitt í 5-0 sigri. - óój
Sami leiðinlegi
endirinn og í fyrra
VONT Kolbeinn Sigþórsson sést hér
borinn af velli. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Sextán liða úrslit Powerade-bikars karla og kvenna í körfubolta fóru
nær öll fram um helgina en þrettán lið hafa nú tryggt sér sæti í átta
liða úrslitunum. Síðustu þrjú liðin bætast í hópinn í kvöld (Valur-
Snæfell og Stjarnan-ÍR í karlaflokki) og á föstudaginn (Valur-FSU/
Hrunamenn í kvennaflokki).
Karlalið Fjölnis var á föstudaginn fyrsta liðið til að
komast í átta liða úrslit, Keflavík bættist í hópinn
með sigri á Þór Þorlákshöfn í Dominos-deildarslag
á laugardagskvöldið og í gær tryggðu Tindastóll,
Skallagrímur, Hamar og KR sér sæti í átta liða
úrslitum. Skallagrímur sló Njarðvík óvænt út
í Borgarnesi og Tindastóll vann Grindavík á
Króknum. Keflavík og Njarðvík sátu hjá hjá
konunum en Grindavík, Breiðablik, KR og
Haukar komust öll áfram á laugardaginn og
Snæfell tryggði sér sitt sæti í gær.
Skallagrímur sló út Njarðvík
30-1
2013-14
21 SIGURLEIKIR - 1 TAP
2014-15
9 SIGURLEIKIR - O TÖP
96,8 PRÓSENTA
SIGUR HLUTFALL
Finnur Freyr hefur
náð einstökum árangri
með KR-liðið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið náði fullu húsi í sínum riðli
í forkeppni HM 2015 en það var
ljóst eftir sex marka sigur út í
Makedóníu um helgina, 28-22.
Íslensku stelpurnar unnu
bæði Ítalíu og Makedóníu í tví-
gang (með samtals 31 mörkum)
og tryggðu sér með því sæti í
umspili um sæti á HM í Dan-
mörku 2015 en það kemur í ljós
eftir EM hverjir mótherjarnir
verða. EM í Króatíu og Ungverja-
landi hófst í gær.
Íslenska liðið lék án Karenar
Knútsdóttur (34 mörk í fyrstu
þremur leikjunum) en lentu samt
ekki í miklum vandræðum í
Skopje. Arna Sif Pálsdóttir var
besti leikmaður liðsins, marka-
hæst með sex mörk og mjög öflug
í vörninni. Nýliðinn Hrafnhildur
Hanna Þrastardóttir skoraði eitt
mark í sínum fyrsta landsleik. - óój
Fullt hús hjá
stelpunum
BEST Arna Sif Pálsdóttir lék vel í
sigr inum í Makedóníu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SPORT