Fréttablaðið - 08.12.2014, Blaðsíða 50
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 30
25%
AFSLÁTTUR AF
SKÍÐA- OG BRETTA-
PÖKKUM*
MIKIÐ ÚRVAL
AF GLERAUGUM
OG HJÁLMUM
CÉBÉ HURRICANE
Skíðagleraugu. Herra- og dömustærðir.
10.990
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
14.990
CÉBÉ DUSK
Skíðahjálmur. Litir: Svartur, hvítur.
Fullorðinsstærðir.
BARNA-SKÍÐAPAKKI
TECNO PRO barnaskíði 14.990.
TEC T 40 bindingar 11.990
TECNO T 40 skíðaskór 11.990.
HERRA-SKÍÐAPAKKI
TECNO PRO skíði og bindingar 84.990.
SALOMON skíðaskór 32.990.
DÖMU-SKÍÐAPAKKI
TECNO PRO skíði og bindingar 54.990.
SALOMON skíðaskór 32.990.
88.485
Fullt verð: 117.980
HERRA-
SKÍÐAPAKKI
65.985
Fullt verð: 87.980
DÖMU-
SKÍÐAPAKKI
29.228
Fullt verð: 38.970
BARNA-
SKÍÐAPAKKI
TILVALIN JÓLAGJÖF
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
llu
r
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
. *
25
%
a
fs
lá
tt
ur
gi
ld
ir
e
f k
ey
pt
e
ru
s
kí
ði
/b
re
tt
i,
bi
nd
in
ga
r
og
s
kó
r.
Ti
lb
oð
in
g
ild
a
til
2
4.
d
es
. 2
01
4.
ÍÞRÓTTIR Smáþjóðaleikarnir verða
haldnir í Reykjavík fyrstu sex
daga júnímánaðar á næsta ári.
Lukkutröll leikanna var afhjúpað
í vikunni en Fréttablaðið ræddi við
Lárus Blöndal, forseta ÍSÍ, af því
tilefni. Hann segir að þetta sé einn
stærsti íþróttaviðburður í sögu
íslensku þjóðarinnar, sérstaklega
hvað fjölda þeirra sem koma beint
eða óbeint að leikunum varðar.
„Við gerum ráð fyrir að fá alls
30 þúsund áhorfendur á viðburðina
þessa sex daga sem mótið stend-
ur yfir,“ segir Lárus en von er á
800 keppendum hingað til lands og
400 manna fylgdarliði þar að auki.
Gert er ráð fyrir að íslenskir kepp-
endur verði um 180 talsins.
„Það er auðvitað gríðarlega
mikill fjöldi fyrir ekki stærri þjóð
enda teljum við að Smáþjóðaleik-
arnir séu gríðarlega mikilvægur
viðburður fyrir íslenskt íþrótta-
líf,“ segir Lárus sem bar sérstakt
lof á Reykjavíkurborg fyrir þær
endurbætur á bæði húsnæði og
tækjakosti sem gerðar hafa verið
vegna leikanna.
„Leikarnir leiða til þess að
mannvirki verða lagfærð og tækja-
búnaður endurnýjaður svo allt
saman standist alþjóðlegar kröfur.
Það eitt og sér skiptir miklu máli
fyrir íþróttafólkið okkar.“
Meira mál fyrir okkur en Breta
Þetta er í annað sinn sem Smá-
þjóðaleikar eru haldnir hér á
landi en það var árið 1997 í fyrra
skiptið. Leikarnir hafa verið
haldnir annað hvert ár síðan 1985
og þátttökuþjóðir voru þá átta –
allt Evrópuþjóðir sem eiga sjálf-
stæða Ólympíu nefnd og íbúafjölda
undir einni milljón. Svartfjalla-
land bættist svo í þennan hóp árið
2009 og Kýpverjar hafa haldið
aðild sinni þó svo að íbúafjöldinn í
landinu sé nú kominn yfir milljón.
„Það má segja að þetta séu
okkar Ólympíuleikar. Ef við lítum
á þá út frá stærðargráðunni þá
er það meira mál fyrir okkur að
halda Smáþjóðaleika en Breta að
halda Ólympíuleika,“ bendir Lárus
á. „Við eigum von á að það verði
mikið um að vera en við stefnum
að því að virkja skóla landsins og
jafnvel félagasamtök til að tryggja
að stemningin verði góð, svo þetta
verði leikar allrar þjóðarinnar.“
Góður stuðningur ríkisins
Lárus segir að kostnaður við að
halda mótið sé 5-600 milljónir
króna, fyrir utan þær endur bætur
sem hafa verið gerðar á húsnæði
og tækjabúnaði. Hann segist
ánægður með framlag ríkisstjórn-
arinnar í fjármögnun mótsins.
„Við fengum 25 milljónir á fjár-
lögum fyrir árið 2015 og fáum 75
milljónir á næsta ári. Vonandi 25
milljónir á árinu þar á eftir. Það er
ágætur stuðningur sem við erum
ánægð með. Að mínu mati hefur
ríkisstjórnin verið jákvæð gagn-
vart íþróttahreyfingunni þó svo
að það sé auðvitað hart í ári eins
og menn þekkja. En menn hafa
sýnt töluverðan vilja til að koma
til móts við okkur.“
Þurfa 1.200 sjálfboðaliða
Þess má geta að ÍSÍ hefur óskað
eftir því að þeir sem hafa áhuga á
að gerast sjálfboðaliðar geri það á
heimasíðu leikanna, iceland2015.
is. Nú þegar hafa 400 manns skráð
sig til þátttöku en Lárus segir að
alls sé þörf fyrir 1.200 sjálfboða-
liða.
Alls eiga tíu sérsambönd ÍSÍ
keppendur á leikunum en gert er
ráð fyrir því að tíu þúsund gisti-
nætur verði keyptar í Reykjavík
vegna leikanna, 28 þúsund máltíðir
framreiddar og alls 700 verðlauna-
peningum útdeilt.
eirikur@frettabladid.is
Verða leikar þjóðarinnar
Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, reiknar með því að Smáþjóðaleikarnir sem fara fram í Reykjavík í vor verði meðal
stærstu íþróttaviðburða í sögu þjóðarinnar. „Smáþjóðaleikarnir eru okkar Ólympíuleikar,“ segir hann.
RISASTÓRT VERKEFNI Lárus Blöndal
er forseti ÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
ÓNEFNT
LUKKUTRÖLL
LEIKANNA
Grunnskólabörn
landsins taka
þátt í nafna-
samkeppni fyrir
lukkutröllið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Man. City minnkaði for-
skot Chelsea á toppi ensku deild-
arinnar í þrjú stig um helgina.
Yaya Touré tryggði Englands-
meisturum City 1-0 sigur á Ever-
ton og Newcastle varð fyrsta liðið
til að vinna Chelsea á leiktíðinni.
Chelsea var taplaust í 14 deildar-
leikjum þegar kom að heimsókn-
inni á St. James ś Park.
West Ham komst upp í þriðja
sætið með 3-1 sigri á Gylfa Þór
Sigurðssyni og félögum í Swansea.
Gylfi átti stóran þátt í marki velska
liðsins sem komst í 1-0.
Man, United tekur á móti South-
ampton í kvöld en bæði lið geta
komist upp í þriðja sætið með sigri.
Þar mætast hollensku stjórarnir
Louis van Gaal og Ronald Koeman
sem er ekki vel til vina. - óój
Fyrsta tapið
SÚRT Chelsea-menn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ÚRSLITIN Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI:
NEWCASTLE - CHELSEA 2-1
1-0 Papiss Cissé (57.), 2-0 Papiss Cissé (78.), 2-1
Didier Drogba (83.).
HULL - WEST BROM 0-0
LIVERPOOL - SUNDERLAND 0-0
QPR - BURNLEY 2-0
STOKE - ARSENAL 3-2
1-0 Crouch (1.), 2-0 Bojan (35.), 3-0 Walters (45.),
3-1 Cazorla, víti (68.), 3-2 Aaron Ramsey (70.)
TOTTENHAM - CRYSTAL PALACE 0-0
MANCHESTER CITY - EVERTON 1-0
1-0 Yaya Touré, víti (24.)
WEST HAM - SWANSEA 3-1
0-1 Wilfried Bony (19.), 1-1 Andy Carroll (41.),
2-1 Andy Carroll (66.), 3-1 Diafra Sakho (87.).
ASTON VILLA - LEICESTER 2-1