Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Síða 8
hefur flutt hundruð
milljóna úr landi
8 Fréttir 12. nóvember 2012 Mánudagur
n Lánaviðskipti upp á fleiri hundruð þúsund evrur n Jón Þorsteinn kominn á Kvíabryggju
J
ón Þorsteinn Jónsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Byrs
og einn af erfingjum verslana-
keðjunnar Nóatúns á sínum
tíma, hefur flutt mörg hundruð
milljónir króna í erlendum gjaldeyri
frá Íslandi á þessu ári og því síðasta.
Þetta herma heimildir DV. Í tilfelli
Jóns Þorsteins hafa fjármagnsflutn-
ingarnir yfirleitt farið fram í evrum.
Flutningurinn á fjármagninu fer
gegn gjaldeyrishöftunum sem sett
voru hér á landi í kjölfar íslenska
efnahagshrunsins.
Fjármagnsflutningarnir eiga
sér stað með lánveitingum frá
Jóni Þorsteini sjálfum til erlendra
eignarhaldsfélaga sem eru í eigu ís-
lenskra aðila. Eitt þessara félaga
heitir CCP Systems Ltd. og er breskt
eignarhaldsfélag skráð í Lundúnum
á Englandi. Einn af þeim sem tengist
CCP Systems er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, Guð-
mundur Örn Jóhannsson, sem hætti
skyndilega hjá félaginu fyrir skömmu
út af frétt um aðkomu hans að gjald-
eyrisviðskiptum. Guðmundur Örn
Jóhannsson var í sjálfsskuldaraá-
byrgð fyrir einhverjum af þeim lán-
veitingum sem Jón Þorsteinn veitti
CCP Systems.
Hver lánveiting nemur tugþús-
undum evra, á bilinu 50 upp í 100
þúsund. Lánveitingarnar eru til
skamms tíma, nokkurra mánaða, og
skuldbindur lántakandinn sig til að
greiða lánveitandanum, í þessu til-
felli Jóni Þorsteini, aftur með vöxt-
um. Þegar fjármunirnir eru komn-
ir frá Íslandi og inn á erlenda
bankareikninga greiðir lántakandinn
peningana aftur til lánveitandans.
Lántakandinn fær svo prósentur af
þeirri upphæð sem flutt er út. Eini til-
gangurinn með viðskiptunum er að
koma gjaldeyri út úr landinu í trássi
við höftin þó svo að viðskiptin sé skil-
greind sem lán.
Miklir fjármagnsflutningar
Hugsanlegt er að fleiri milljarðar
króna, jafnvel tugir eða hundruð
milljarða, hafi verið fluttir frá Íslandi
í bága við gjaldeyrishöftin með sams
konar aðferðum á síðastliðnum fjór-
um árum. Líkt og komið hefur fram
í fjölmiðlum er eitt af stærstu við-
fangsefnum Seðlabanka Íslands um
þessar mundir að reyna að finna
leiðir til að koma í veg fyrir stórkost-
legt útstreymi fjármagns frá Íslandi
þegar gjaldeyrishöftunum verður
létt. Sérstakur hópur starfsmanna
Seðlabanka Íslands vinnur nú í því
að reyna að finna leiðir til þessa.
Ýmsir sérfræðingar á fjármálamark-
aði hafa bent á það að aflétting gjald-
eyrishaftanna gæti leitt til annars
hruns ef ekki verður nægilega vel
staðið að henni.
Hefur hafið afplánun
Jón Þorsteinn hóf nýverið afplánun
fjögurra ára fangelsisdóms á Kvía-
bryggju á Snæfellsnesi. Fangelsis-
dómurinn er vegna Exeter Holdings-
málsins svokallaða sem snýst um
lánveitingu út úr Byr upp á ríflega
milljarð króna. Hæstiréttur dæmdi
þá Jón Þorstein og Ragnar Z. Guð-
jónsson, sparisjóðsstjóra Byrs, í
fjögurra ára fangelsi í sumar. Dómur-
inn var vegna umboðssvika og er sá
þyngsti sinnar tegundar hér á landi.
Jón Þorsteinn og Ragnar Z. komu
lánveitingunni í kring svo hægt yrði
að gera upp lán sem meðal annars
þeir sjálfir áttu útistandandi við MP
Banka í kjölfar efnahagshrunsins árið
2008. Stofnfjárbréfin í Byr sem þeir
Jón Þorsteinn og Ragnar áttu höfðu
þá fallið í verði og voru nánast verð-
laus. MP Banki kallaði eftir auknum
tryggingum fyrir lánunum fyrir bréf-
unum vegna þessa og knúði síðar
á um uppgreiðslu á lánunum. Þeir
Jón Þorsteinn og Ragnar Z. brugðu
þá á það ráð að láta Byr lána lepp-
félaginu Exeter Holdings, sem búið
var sérstaklega til í kringum viðskipt-
in, fjármuni til að kaupa hin verð-
lausu stofnfjárbréf í af þeim sjálfum
og nokkrum öðrum starfsmönnum
Byrs.
DV hringdi á Kvíabryggju og bað
um viðtal við Jón Þorstein út af mál-
inu. Skilin voru eftir skilaboð til hans
og hann beðin um að hringja í blaða-
mann til að svara spurningum um
lánaviðskipti við CCP Systems Ltd.
Jón Þorsteinn hringdi ekki til baka.
Fjármunirnir sem Jón Þorsteinn lán-
aði munu á endanum meðal annars
hafa runnið inn á bankareikning sem
hann á í Þýskalandi.
Íslandsbanki íhugar
skaðabótamál
Þegar Byr sparsjóður var yfirtekinn
af Íslandsbanka fylgdi möguleg
skaðabótakrafa á hendur sakborn-
ingunum í Exeter Holdings-mál-
inu eignasafni bankans. Skaðabóta-
kröfu Byrs á hendur þeim var vísað
frá í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar
þeir voru sýknaðir í undirrétti. Mál-
inu var áfrýjað til Hæstaréttar Íslands
þar sem þeir Jón Þorsteinn og Ragn-
ar Z. Voru dæmdir til fangelsisvistar.
Máli Styrmis Bragasonar, forstjóra
MP Banka, var vísað aftur í héraðs-
dóm til efnismeðferðar og á hún eft-
ir að fara fram. Í ljósi þess að þeir Jón
Þorsteinn og Ragnar Z. voru dæmdir
í Hæstarétti Íslands er kominn traust-
ur grundvöllur fyrir Byr, nú Íslands-
banka, til að sækja skaðabætur til
hinna dæmdu í málinu.
Tómas Sigurðsson, yfirlögfræðing-
ur Íslandsbanka, segir að bankinn sé
ekki búinn að útiloka að fara í skaða-
bótamál við þá Jón Þorstein og Ragn-
ar Z. Raunar segir hann frekar lík-
legra en ekki að bankinn reyni að
sækja skaðabætur til þeirra. Þá seg-
ir hann að nú þegar sé farið af stað
skaðabótamál gegn Styrmi Braga-
syni sem er hluti af refsimálinu gegn
honum fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur. „Við erum bara að skoða það. Al-
mennt séð finnst mér nú líklegra í
slíkum málum, nema það liggi fyrir
að eignastaða þeirra einstaklinga sem
um ræðir hverju sinni sé orðin þannig
að kröfurnar séu ekki innheimtan-
legar, að kröfunum verði haldið uppi.
Mér sýnist dómur Hæstaréttar í þessu
tiltekna máli hafa leitt í ljós að það er
bótakrafa fyrir hendi,“ segir Tómas.
Ætla má að erfiðara sé fyrir ís-
lenska aðila að átta sig á fjárhags-
stöðu Jóns Þorsteins, meðal annars
með tilliti til mögulegra skaðabóta-
mála gegn honum, ef fjármunir
hans liggja að mestu á erlendum
bankareikningum en ekki innlend-
um. Einnig vekur athygli að fjár-
magnsflutningar Jóns Þorsteins frá
landinu fóru að mestu fram á seinni
hluta síðasta árs og á fyrri hluta
þessa árs, það er að segja áður en
Hæstiréttur Íslands dæmdi hann til
fjögurra ára fangelsisvistar. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Íslandsbanki íhugar skaðabótamál
Tómas Sigurðsson, yfirlögfræðingur Íslands-
banka, segir bankann íhuga skaðabótamál
gegn Jóni Þorsteini og Ragnari Z. Guðjónssyni
út af Exeter Holdings-málinu. Birna Einars-
dóttir er bankastjóri Íslandsbanka.
„Mér sýnist
dómur
Hæstaréttar í
þessu tiltekna
máli hafa leitt
í ljós að það
er bótakrafa
fyrir hendi
Milljóna fjármagnsflutningar
Jón Þorsteinn Jónsson hefur staðið í
hundruð milljóna fjármagnsflutning-
um frá Íslandi á síðastliðnum árum í
trássi við gjaldeyrishaftalögin.
Hóf afplánun á Kvíabryggju Jón Þorsteinn hóf afplánun á Kvíabryggju fyrir skömmu út
af Exeter Holdings-málinu.