Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Blaðsíða 15
 Þetta er svívirðilegt Bara alls ekki neitt Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona spáir ekkert í frægðina. – DV Spurningin „Sönn íslensk sakamál, gömlu þættirnir.“ Kolbeinn Hamíðsson 18 ára nemi „Ég get eiginlega ekki gert upp á milli hvort það sé Pressa eða Sönn íslensk sakamál, nýju þættirnir.“ Addi Introbeats 30 ára tónlistarmaður „Með afa.“ Agla Egils 23 ára starfsmaður á Prikinu „Andri á flandri.“ Hlíf Ásgrímsdóttir 56 ára myndlistarkona „Kiljan.“ Brynja Steinþórsdóttir 16 ára nemi Hverjir eru þínir uppáhalds íslensku sjón- varpsþættir? 1 Samband þeirra sagt „fá-ránlegt“ Efasemdir um samband leikkonunnar Mary Kate Olsen og Olivier Sarkozy. 2 Sjómannskona komin með nóg af kröfum LÍÚ Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir er ekki sátt við að laun eiginmanns síns verði lækkuð. 3 „Öllu fé sem hún hélt hún ætti er haldið föstu af karlinum“ Pálmi Haraldsson neitar að láta Höllu Halldórsdóttur fá jólagjafirnar. 4 Vildi deyja í fangelsinu Ármann Reynisson upplifði mikla vanlíðan í fangelsinu á Kvíabryggju. 5 Árni Páll hafði betur gegn Katrínu Prófkjörsslagur Samfylk- ingar í Suðvesturkjördæmi. 6 „Hatar Facebook konur eða bara femínista?“ Trista Hendren fjallar um mál Hildar Lilliendahl sem var bönnuð á Facebook á dögunum. 7 Þakka Reese fyrir friðinn Megan Fox og Reese Witherspoon fæddu sama dag. Mest lesið á DV.is Fagur er Engihjallinn S varthöfði gladdist mjög í vik- unni þegar hann sá að Iceland Foods- keðjan ætlar sér að kaupa tæplega 40 prósenta hlut í Iceland-verslun Jóhannesar Jónssonar á Íslandi. Þetta er auð- vitað frábær fjárfesting hjá Malcolm Walker, forstjóra Iceland í Bretlandi, og skiljanleg út frá viðskiptalegum forsendum. Tengsl Jóhannesar í Iceland og sonar hans, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, skipta auðvitað engu þar um. Iceland stefnir á heimsyfirráð á Íslandi í sölu á inn- fluttum frosnum matvælum af bestu gerð. Hvaða breska matvælakeðja vill ekki eiga nærri 40 prósenta hlut í hverfisverslun í Engihjalla í Reykja- vík á Íslandi, á jaðri iðnaðarhverf- isins í þessu mannmarga sveitarfé- lagi sem Kópavogurinn er? Ef út í það er farið er gervöll Reykjavík og allt Ísland raunar líka auðvitað ekki eins og hundskyns útnári í augum alheimsins. Hingað ættu allar stór- ar verslanakeðjur að vilja koma og selja frosinn og forsoðinn mat ofan í þessar þrjú hundruð þúsund hræð- ur sem hér norpa í fásinninu. Í því felast tækifæri; við erum jafn mörg og allir íbúar Edinborgar í Skotlandi. Auðvitað er þetta fjárfesting sem fleiri stórar breskar matvælakeðjur hefðu átt að bera víurnar í. Tesco, Sainsbury’s, Marks og Spencer, Morrisons, Lidl og Aldi misstu þarna af stórkostlegu viðskiptatæki- færi. Þær eru óheppnar en Iceland Foods er heppið. Hver vill svo ekki vinna með þeim Iceland-feðgum eftir velgengni liðinna ára. Glitnir, FL Group, Hamleys, Baugur, Landic Property eru allt dæmi um fyrir- tæki sem sá yngri hefur stýrt á liðn- um árum. Sagan af velgengni þeirra hefur flogið víða. Engu máli skiptir auðvitað að Malcolm Walker sagði í viðtali við Stöð 2 fyrr á árinu að opnun Iceland á Íslandi væri „greiði“ við fjölskyldu Baugsfeðga, nú Iceland-feðga. „Við flytjum út vörur til ýmissa landa, til dæmis Spánar. Hann bað um að fá nafnið lánað og flytja vörur okk- ar hingað og við samþykktum það. Við gerum allt sem við getum til að styðja fjölskylduna.“ Malcolm Walker sagðist í ágúst ekki ætla að verða hluthafi í Iceland á Íslandi en ótrúleg velgengni kjörbúðarinnar í Kópavoginum hefur breytt þessari skoðun hans þar sem ótvírætt við- skiptatækifæri er að finna í búðinni. Þess vegna kaupir Iceland í Bret- landi nú hlut. Viðskiptin hafa örugglega ekkert með það að gera að Iceland- feðgarnir þurfa á aðstoð Walkers og Iceland í Bretlandi að halda. Þau byggja örugglega bara á því að Walker ætlar sér að græða vel í fá- menninu og að hann hafi trú á búð- inni á Íslandi – landinu sem er eins fjölmennt og bresk smáborg. Walker á Jóni Ásgeiri í Iceland allt að þakka eftir að hann leyfði honum að koma aftur til starfa hjá versluninni í skjóli Baugs árið 2005. Síðan þá hefur Walker stýrt Iceland. „Við gerum allt sem við getum til að styðja fjöl- skylduna.“ Engihjallinn er svo sannarlega fagur. Á æfingu Það viðraði ágætlega á föstudag þegar Landhelgisgæslan var við æfingar úti fyrir Miðbakka í Reykjavík. Í bakgrunni sést snjóhvít Esjan skarta sínu fegursta. Mynd Sigtryggur ariMyndin Svarthöfði Umræða 15Mánudagur 12. nóvember 2012 Ég ætlaði að drekkja mér Viðskiptajöfurinn Ármann Reynisson fékk nóg. – DVNanna Bryndís Hilmarsdóttir gat ekki mætt í útgáfuhóf Kristínar Tómasdóttur. – DV Ágúst Kristmannsson segir mennta- og menningarmálaráðuneytið segja son hans ófatlaðan. – DV „Hvaða breska matvæla- keðja vill ekki eiga nærri 40 prósenta hlut í hverfisverslun í Engihjalla …?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.