Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Blaðsíða 20
14 ára strákur mun keppa við þá bestu 20 Sport 12. nóvember 2012 Mánudagur Brown rekinn eftir slaka byrjun n Vilja fá Phil Jackson aftur til starfa hjá LA Lakers P hil Jackson er talinn allra manna líklegastur til að taka við stjórn LA Lakers í bandarísku NBA- deildinni eftir að Mike Brown var látinn taka pokann sinn eftir að- eins fimm leiki á núverandi leiktíð. Brown hefur verið við stjórnvölinn hjá liðinu síðan Jackson lét af störfum 2011 en ekki þótt ná árangri sem þyk- ir viðunandi. Krafa eiganda liðsins er að liðið keppi ár eftir ár um titilinn og fjórir tapleikir í fyrstu fimm leikj- um liðsins nú þóttu ekki uppörvandi byrjun til að ná því markmiði. Byrj- unin er líka sú versta hjá liði í Vestur- deildinni þetta árið og það þrátt fyr- ir að Lakers sé óumdeilanlega með eitt sterkasta liðið hvað sem þessari byrjun líður og óumdeilanlega langstærsta launareikninginn. Jackson er flestum kunnugur sem með NBA-deildinni fylgjast enda einn allra sigursælasti þjálfari þeirrar deildar. Hann gerði Chicago Bulls að meisturum alls sex sinnum áður en hann tók við stjórntaumum hjá Lakers þar sem liðið krækti sér í fimm titla undir hans stjórn. Sjálfur Kobe Bryant, ein helsta stjarna Lakers, vill mjög gjarnan fá Jackson aftur um borð og það sem fyrst, og í sama streng hafa nokkrir aðrir leikmenn liðsins tekið. Talið er líklegt að Jackson hafi áhuga en hann hætti þjálfun á sín- um tíma bæði vegna aðgerðar á hné en ekki síður vegna óánægju með eiganda Lakers að því er sagt var á þeim tíma. Heimildarmenn vefmið- ilsins ESPN telja ekki að það komi í veg fyrir að Jackson hafi áhuga á nýj- an leik. Kóngurinn Phil Jackson er sagður líklegur til að taka við Lakers. Hann er feikivinsæll hjá stuðningsmönnum liðsins. Mynd ReuteRs n Hver er Guan Tianlang og hvað vill hann upp á dekk? n Mætir til leiks á Masters H vað í ósköpunum er þessi fjórtán ára unglingur að gera á vellinum í holli með Phil Mickelson og Adam Scott? Svo gæti einhver áhugamaður hugsað sem fylgist með Masters-mótinu í golfi á næsta ári en þar mætir til leiks ásamt öll- um risastjörnunum í golfinu fjórtán ára kínverskur strákur sem er smátt og smátt að leggja golfheiminn að fótum sér og hefur þegar fengið viðurnefnið næsti Tiger Woods. Það er líka vel við hæfi enda er Woods helsta átrúnaðargoð hins unga Kín- verja. Hann heitir Guan Tianlang og verður langyngsti keppandi sem nokkru sinni hefur hafið leik á þessu fornfræga golfmóti sem flestir telja hið stærsta í heimi ásamt Opna breska meistaramótinu. Unglingur- inn fær líka keppnisrétt á Opna breska en þarf reyndar að komast í gegnum eitt inntökumót til þess. Hver er maðurinn? Mönnum fyrirgefst að vita engin deili á drengnum en austur í Asíu er hann orðinn æði frægur og ekki að ástæðulausu. Guan Tianlang hefur nefnilega náð ótrúlegum ár- angri þrátt fyrir ungan aldur og það er engin tilviljun að hann er borinn saman við Tiger Woods sem enn- þá er af flestum, þrátt fyrir sókn hins írska Rory McIlroy, talinn besti kylfingur heims. Tianlang vann sér inn keppnis- rétt á Masters-mótinu á næsta ári með sigri á einu allra stærsta og sterkasta áhugamannamóti heims; Asia-Pacific Amateur-mótinu. Það út af fyrir sig er æði merkilegt að fjórtán ára unglingur sigri á því móti því golfíþróttin er geysivinsæl orðin á þeim slóðunum og fjöl- margir fyrsta flokks keppendur sem þátt tóku. En því fer fjarri að það sé eina afrek hins unga Guan. Hann varð fyrr á þessu ári yngsti þátttakandi á Evrópumótaröðinni þar sem hann vann sér inn þátttökurétt á Volvo Open sem fram fór í Kína. Hann hefur líka sigrað á fjölda móta í heimalandinu og er því alls enginn nýgræðingur. Guan hefur líka sjálfs- traustið í lagi því fyrsta skeytið sem hann sendi þegar ljóst varð að hann yrði með í Augusta í apríl var þess efnis að hann ætlaði sér að sigra á Masters. Kínversk íþróttasprenging Undrist einhver uppgang þessa fjórtán ára unglings er best að hætta því nú þegar. Kínverjar eru, eins og reyndar í velflestum öðrum íþrótt- um, að ná ótrúlegum árangri í golf- inu enda er það opinber stefna stjórnvalda að koma íþróttafólki sínu í fremstu röð alls staðar. Þess vegna ætti ekki að koma á óvart að Guan Tianlang er ekki eini fjórtán ára kínverski peyinn sem er að brjóta blað í golfinu. Annar sem talin er líklegur til mikilla afreka í framtíðinni er Andy Zhang sem varð í sumar sem leið yngsti kepp- andinn nokkru sinni á Opna banda- ríska meistaramótinu í golfi. Báðir þessir drengir eru að vekja athygli mun yngri en Tiger Woods á sínum tíma sem öðlaðist heims- frægð fyrst í kringum tvítugsaldur- inn eins og reyndar Rory McIlroy. Hvort eftirleikurinn verður á sömu nótunum skal ósagt látið en vissu- lega verður golfheimurinn örlítið öðruvísi en hingað til ef Kínverjar halda áfram að ná viðlíka árangri. n Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar albert@dv.is efnilegur Tianlang þykir með þeim efnileg- ustu í golfheiminum. Mynd ReuteRs Wenger vill fá Cavani Arsene Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, er sagður vera reiðubúinn til að greiða 30 millj- ónir punda, eða sex milljarða króna, fyrir Úrúgvæann Edin- son Cavani hjá Napoli. Wen- ger hefur verið undir talsverðri pressu upp á síðkastið og vilja stuðningsmennirnir fá sterka leikmenn til að fylla skörð þeirra sem horfið hafa á braut að undanförnu. Cavani er, að öðrum ólöstuðum, einn allra besti framherji heims um þessar mundir og hann hefur raðað inn mörkum fyrir Napoli að undan- förnu og skorað 79 mörk í 108 leikjum. Fleiri ensk lið eru sögð hafa áhuga á leikmanninum og meðal þeirra eru Chelsea og Manchester City. Úrslit Enski boltinn Reading - Norwich 0–0 Stoke City - QPR 1–0 1-0 Charlie Adam (‚52 ) Everton - Sunderland 2–1 0-1 Adam Johnson (‚45 ), 1-1 Marouane Fellaini (‚76 ), 2-1 Nikica Jelavic (‚79 ) Wigan - West Brom 1–2 0-1 James Morrison (‚31 ), 0-2 Gary Caldwell (‚43 , sjálfsmark), 1-2 Arouna Kone (‚44 ) Southampton - Swansea 1–1 1-0 Morgan Schneiderlin (‚64 ), 1-1 Nathan Dyer (‚73 ) Arsenal - Fulham 3–3 1-0 Olivier Giroud (‚11 ), 2-0 Lukas Podolski (‚23 ), 2-1 Dimitar Berbatov (‚29 ), 2-2 Alex Kacaniklic (‚40 ), 2-3 Dimitar Berbatov (‚67 , víti), 3-3 Olivier Giroud (‚69 ) Aston Villa - Manchester United 2–3 1-0 Andreas Weimann (‚45 , 2-0 Andreas Weimann (‚50 ), 2-1 Javier Hernandez (‚58 ), 2-2 Ron Vlaar (sjálfsmark) (‚63 ), 2-3 Javier Hernandez (‚87) Newcastle- West Ham 0–1 0-1 Kevin Nolan (‚38 ) Manchester City - Tottenham 2–1 0-1 Steven Caulker (‚21 ), 1-1 Sergio Aguero (‚65 ), 2-1 Edin Dzeko (‚88 ) Chelsea - Liverpool 1–1 1-0 John Terry (‚20 ), 1-1 Luis Suarez (‚73 ) Staðan 1 Man.Utd. 11 9 0 2 29:16 27 2 Man.City 11 7 4 0 20:10 25 3 Chelsea 11 7 3 1 23:11 24 4 Everton 11 5 5 1 21:14 20 5 WBA 11 6 2 3 17:12 20 6 West Ham 11 5 3 3 14:11 18 7 Tottenham 11 5 2 4 18:16 17 8 Arsenal 11 4 4 3 18:11 16 9 Fulham 11 4 4 3 24:19 16 10 Newcastle 11 3 5 3 12:15 14 11 Swansea 11 3 4 4 16:15 13 12 Stoke 11 2 6 3 9:10 12 13 Liverpool 11 2 6 3 14:16 12 14 Wigan 11 3 2 6 12:18 11 15 Norwich 11 2 5 4 8:18 11 16 Sunderland 10 1 6 3 7:11 9 17 Aston Villa 11 2 3 6 10:17 9 18 Reading 10 0 6 4 12:18 6 19 Southampton 11 1 2 8 15:29 5 20 QPR 11 0 4 7 8:20 4 20 Southampton 9 1 1 7 14:26 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.