Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Page 2
2 Fréttir 21.–27. desember 2012 Jólablað n Kallað eftir brotthvarfi Steingríms J. Sigfússonar með fána F áni þar sem krafist er brott- hvarfs Steingríms J. Sigfús- sonar atvinnuvegaráðherra blaktir nú á Siglufirði. Á fánanum er mynd af Stein- grími þar sem búið er að strika yfir andlit hans og undir myndinni segir: „BURT MEÐ Steingrím J“. Valgeir T. Sigurðsson stendur á bak við uppátækið en hann segist ekki hafa orðið var við annað en ánægju með fánann á meðal Sigl- firðinga. Þetta kemur fram í bréfi sem hann hefur sent DV vegna málsins. Bæjarstjórnin ályktaði Fáninn hefur vakið athygli og hef- ur meira að segja orðið til þess að bæjarstjórn Fjallabyggðar ákvað að álykta um hann. „Bæjarstjórn Fjallabyggðar lýsir vanþóknun sinni á ósmekklegri notkun Val- geirs T. Sigurðssonar, á mynd af ráðherra í ríkisstjórn Íslands á fána sem hann hefur dregið að húni við Aðalgötuna á Siglufirði,“ segir í fundargerð bæjarstjórnarinnar. Þorbjörn Sigurðsson, varafor- seti bæjarstjórnarinnar, segir að þrátt fyrir að hann sé ekki endilega samþykkur skoðunum Steingríms „þá þykir okkur ekki sæmandi að taka einn mann fyrir og níða hann niður … Við eigum rétt á því að berjast gegn skoðunum hans en við eigum ekki rétt á að berj- ast gegn honum sem einstaklingi.“ Þorbjörn, sem stjórnaði bæjar- stjórnarfundinum þegar bókunin var samþykkt, segir að breið sátt hafi verið um hana og að hún hafi verið samþykkt samhljóða. Segir bæjarstjórnina á vafasamri braut Valgeir telur að tjáningarfrelsið tryggi honum rétt til að flagga fán- anum og segir það áhyggjuefni að bæjarstjórnin hafi ákveðið að lýsa vanþóknun á uppátækinu. „Það, að bæjarstjórn Fjallabyggðar lýsi einróma yfir vanþóknun á því að bæjarbúi nýti lögmætan rétt sinn til þess að tjá skoðun sína á ein- um umdeildasta stjórnmálamanni landsins, hlýtur að vera mik- ið áhyggjuefni fyrir almenning í Ólafsfirði og Siglufirði,“ segir hann. Þá segist hann ekki hafa fengið athugasemdir frá bæjarfulltrúun- um fyrr en ályktunin var samþykkt í bæjarstjórninni og að enginn hafi beðið hann að taka fánann niður. Valgeir segir að í aðdraganda kosninga eins og nú sé venjan að áróður sé rekinn fyrir sjónar- miðum og jafnvel gegn öðrum. „Ef bæjarstjórnin ætlar að halda áfram á vafasamri braut, má ætla að næsta verk verði að merkja aug- lýsingar og skoðanir sem eru bæj- arstjórninni þóknanlegar,“ segir hann. Í manninn en ekki boltann Þorbjörn bendir á að bæjarstjórn- in njóti líka tjáningarfrelsisins og segir að sú framkoma Valgeirs „… að fara í manninn en ekki boltann“, sé ekki framkoma sem sér hugnist, „… við höfum alveg sama rétt til að tjá okkur.“ Þorbjörn bætir við: „Við erum bara að túlka okkar skoð- anir þarna.“ Hann ítrekar að hann sé ekki að lýsa yfir samþykki hvað skoðanir Steingríms varðar þó að hann sé mótfallin því að fánanum sé flaggað. Þorbjörn var kjörinn í bæjarstjórnina fyrir hönd Sjálf- stæðisflokksins. n Bæjarstjórnin fordæmir fána Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is „Við eigum ekki rétt á að berjast gegn honum sem einstaklingi Hefur vakið athygli Fáninn hefur vakið athygli víða og sá bæj- arstjórnin sér ekki fært annað en að álykta um málið. Mynd Siglo.iS Ósmekklegt Þorbjörn segir að sér og öðr- um í bæjarstjórn finnist fáninn ósmekklegur. Mynd SJálfStæðiSflokkurinn Jón Margeir með forystu Gullverðlaunahafi, sjómaður sem lifði einn af skipskaða, einstæð móðir í forræðisdeilu, ungir piltar sem bjarga barni, femínisti, lög- fræðingur sem bjargar samstarfs- félaga frá hnífamanni og fjöldi annarra eru tilnefndir sem hetjur ársins 2012. Sem stendur eru það þeir Jón Margeir Sverrisson og Ei- ríkur Ingi Jóhannsson sem leiða í kosningunni, en enn er hægt er að kjósa og kosningunni lýkur ekki fyrr en 26. desember. Lesendur geta kosið eins marga og þeir vilja, en hvern og einn er aðeins hægt að kjósa einu sinni. Úr vöndu er að ráða þetta árið en kosið er á milli þeirra 17 sem flestar tilnefningar fengu þegar DV óskaði eftir þeim. Alls bárust um 200 ábendingar. Tek- ið var mið af þeim en þar að auki komu tilnefningar frá dómnefnd DV. Hana skipuðu Kristjana Guð- brandsdóttir, Viktoría Hermanns- dóttir, Birgir Olgeirsson og Aðal- steinn Kjartansson, blaðamenn. Sló tvo með flösku Tæplega þrítugur karlmaður var handtekinn í Lækjargötu aðfara- nótt fimmtudags. Hafði hann slegið tvo menn í höfuð með flösku. Þetta kemur fram í dag- bók lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Mennirnir sem fyrir árásinni urðu voru báðir fluttir á slysadeild með sjúkrabifreið. Þeir voru báðir með áverka á höfði og blæddi úr þeim báðum. Atburða- rás liggur ekki fyrir en árásamað- urinn gisti fangageymslu. Sveiflaði hnífnum 3 „Þetta var ansi óhugn- anlegt, hann náði að skera í gegn- um bolinn hjá mér. Hann hefði kviðrist mig hefði hann farið sentí- metra lengra,“ sagði Leó Kristberg Einarsson, yfir- dyravörður á Hressingarskálanum, í DV á miðvikudag um atvik sem átti sér stað aðfaranótt sunnudags, þegar maður vopnaður hníf gerði atlögu að honum og fleiri dyravörð- um staðarins. Dyraverðirnir náðu að afvopna manninn, sem var vopnaður tveimur hnífum, og koma honum í hendur lögreglu en einn dyravarðanna hlaut djúpan skurð á hendi við átökin og þurfti að sauma sjö spor. Stjórnin leyndi svartri skýrslu 2 100 milljóna króna lán Sam- einaða lífeyrissjóðs- ins til hjónanna Sævars Jónssonar og Helgu Daníels- dóttur í Leonard var gagnrýnt harðlega af innri endurskoð- anda sjóðsins í skýrslu í nóvember 2009. Þetta kemur fram í skýrslu sem DV hefur undir höndum en blaðið greindi frá efni hennar á mánudag. Líkt og DV greindi frá í nóvember lán- aði Sameinaði lífeyrissjóðurinn Sævari og Helgu rúmlega 100 milljónir króna út á 500 fermetra óbyggt hús við Mos- prýði í Garðabæ eftir íslenska banka- hrunið 2008. Á þessum tíma voru hjónin í miklum fjárhagsvandræðum. Leitin að Matthíasi 1 Matthíasi Mána Erlingssyni, 24 ára karlmanni sem strauk af Litla- Hrauni á mánudag, er af ættingja lýst sem indælum og ró- legum dreng sem hafi sturlast eftir að hafa átt í ástarsambandi við fyrr- verandi stjúpmóður sína. DV fjall- aði ítarlega um Matthías á miðviku- dag. Í umfjöllun blaðsins var vitnað í aðila sem tengist fjölskyldunni og sagði hann að Matthías hafi orðið ástfanginn af konunni, sem er 31 árs. Hún hafi þó ekki litið samband þeirra alvarlegum augum og hafi Matthías reiðst gífurlega og fundist hún hafa spilað með tilfinningar hans. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.