Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 21.–27. desember 2012 Jólablað Jón samþykkti ekki fjárlögin n Ósáttur við framlög til ESB-umsóknarinnar M eirihluti þingmanna á Al- þingi samþykkti fjárlög næsta árs á fimmtudag. Jón Bjarnason, þingmaður VG og fyrrverandi ráðherra í ríkis- stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, sat hjá við atkvæðagreiðsluna, eins og Atli Gíslason, Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason en þau þrjú hafa öll sagt sig úr VG. Aðrir þingmenn stjórnarflokka greiddu frumvarpinu atkvæði sitt og þing- menn Bjartrar framtíðar að auki. Alls greiddu því 28 þingmenn at- kvæði með frumvarpinu. Þingmenn Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins, Hreyfingarinn- ar og annarra stjórnarandstæðinga sátu hjá. Jón sagðist við atkvæðagreiðsl- una ekki geta stutt frumvarpið á þeim forsendum að þar væri áfram gert ráð fyrir fjárveitingum til um- sóknar að Evrópusambandinu en andstaða hans við sambandið varð í vikunni til þess að nýr meirihluti myndaðist í utanríkismálanefnd þegar Jón myndaði meirihluta með fulltrúum stjórnarandstöð- unnar. Í nefndinni myndaðist meirihluti fyrir því að hlé yrði gert á viðræðum Íslands við Evrópu- sambandið. Jón sagði við atkvæðagreiðsl- una að margt væri gott í frum- varpinu og að mikill árangur hefði náðst. baldur@dv.is i-Helicopter Stjórnað með iPhone, iPad, iPod touch      Lántakandi sjóðsins vann við hús Kristjáns n Verktakafyrirtæki sem fékk 630 milljóna lán frá Sameinaða V erktakafyrirtækið Skugga- byggð sá um framkvæmd- ir við einbýlishús fram- kvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins, Kristjáns Arnar Sigurðssonar, á síðasta ári. Þetta segir verktaki sem vann að framkvæmdum við húsið sem stað- sett er á Sunnuflöt í Garðabæ. „Við vorum að vinna heima hjá honum og reikningarnir fóru á hinn stað- inn (til Skuggabyggðar, innsk. blm.).“ Verktakinn vill ekki koma fram und- ir nafni. Framkvæmdirnar sem um ræðir áttu sér stað fyrir um ári. Vinna Skuggabyggðar við hús framkvæmdastjórans er áhugaverð fyrir þær sakir að Sameinaði lífeyris- sjóðurinn veitti verktakafyrirtækinu 630 milljóna króna lán í mars í fyrra til að kaupa hálfklárað fjölbýlishús í Mánatúni 3–5. Verktakinn segir að Skuggabyggð hafi svo greitt reikningana til verk- takafyrirtækisins eftir að þeir höfðu verið sendir þangað. „Þetta var greitt,“ segir verktakinn. Reikn- ingarnir hlupu á mörg hundruð þús- und krónum. Segir Skuggabyggð hafa ráðið undirverktaka Kristján Örn segir að Skuggabyggð hafi séð um síðasta hlut fram- kvæmda við hús hans og að líklegt sé að fyrirtækið hafi ráðið undir- verktaka til að sjá um einstök verk sem skýri af hverju reikningar tiltek- inna verktaka hafi verið sendir þang- að. „Skuggabyggð gerði á síðasta ári tilboð í lokaáfanga breytinganna og hefur fyrirtækið annast umsjón með framkvæmdunum sem við- semjandi okkar og verksali. Við höf- um því staðið skil á öllum reikning- um gagnvart Skuggabyggð. Varðandi nánari útfærslu á því fyrirkomulagi sem Skuggabyggð hafði á því hverj- ir framkvæmdu einstök verk fyrir Skuggabyggð í samræmi við einstaka verkþætti tilboðsins, þá bendi ég þér á að hafa samband við forsvarsmenn fyrirtækisins. Ég geri þó fastlega ráð fyrir að Skuggabyggð hafi samið við undirverktaka um vinnu við eins- taka verkhluta, sem síðan hafi sent Skuggabyggð reikning vegna vinnu sinnar. Það er enda alþekkt fyrir- komulag í framkvæmdum sem þess- um.“ Fékk lán frá Sameinaða Eigandi Skuggabyggðar heitir Krist- ján G. Ríkharðsson. 630 milljóna lánið var vegna fyrstu útborgun- ar á 965 milljóna króna kaupverði hússins sem verktakinn keypti af Arion banka. Arion banki veitti Skuggabyggð svo lán fyrir eftirstöðv- um kaupverðsins. Arion banki hafði leyst fjölbýlishúsið til sín eftir efna- hagshrunið árið 2008 þegar bank- inn eignaðist verktakafyrirtækið Ár- mannsfell, sem unnið hafði að því að byggja fjölbýlishúsið. Samkvæmt kaupsamningnum að Mánatúni 3–5, sem dagsettur er 2. desember 2010, kemur fram að 1. september og 1. október 2011 hafi Skuggabyggð átt að greiða samtals 250 milljónir króna til Arion banka út af kaupunum á húsinu. Athygli vekur að Skuggabyggð átti að greiða þessa upphæð níu og tíu mánuðum eftir undirritun kaupsamningsins. Seldi flestar íbúðirnar Það sem gerðist frá því Skuggabyggð keypti eignirnar af Arion banka í lok desember 2010 og þar til félagið átti að standa skil á fyrstu greiðslunni til bankans sem ekki var tilkomin frá Sameinaða lífeyrissjóðnum, var að verktakinn seldi nær allar íbúðirn- ar í húsinu. Í frétt í Morgunblaðinu í september í fyrra var greint frá því að 50 af 55 íbúðum í húsinu hefðu selst á síðustu fjórum mánuðum þar á undan, frá maí og fram í september. Skuggabyggð seldi því bróður- hluta íbúðanna í húsinu áður en og um það leyti sem félagið átti að hefja afborganir af þeim hluta kaup- verðsins til Arion banka sem ekki var fjármagnaður af Sameinaða lífeyr- issjóðnum. Í ársreikningi Skugga- byggðar fyrir árið 2011 kemur fram að félagið hafi hagnast um 189 milljónir króna í fyrra og að eignir félagsins séu metnar á nærri 1.500 milljónir króna. Skuggabyggð er því stöndugt félag í dag, meðal annars út af viðskiptunum með húsið í Mánatúni. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Skuggabyggð gerði á síðasta ári tilboð í lokaáfanga breytinganna Fékk lán og sá um framkvæmdir Verktakafyrirtækið Skuggabyggð fékk lán upp á 630 milljónir króna frá Sameinaða lífeyrissjóðn- um og sá um framkvæmdir við hús fram- kvæmdastjórans, Kristjáns Arnar Sigurðssonar. Höfðu afskipti af spilaklúbbi Á miðvikudagskvöld hafði lög- regla afskipti af spilaklúbbi í Engi- hjalla, en þar sátu um tíu manns og spiluðu póker upp á peninga. Lögreglumenn skráðu upplýs- ingar inni á staðnum, skýrsla verður rituð um það sem þeir urðu áskynja, að því er kemur fram í skýrslu lögreglunnar. Fær nafn- laus bréf „Afhverju reynir þú ekki bara að vera fyrirmynd fyrir því góða? Afhverju alltaf þetta endalausa væl. Þú ert bara feministatussa sem hefur kvenhyggjuna fyr- ir brjósti,“ segir í nafnlausu bréfi sem Hildi Lilliendahl barst aðfara- nótt fimmtudags. Bréfið er ekki það fyrsta og eflaust ekki það síð- asta sem hún fær þar sem henni er hótað, ýmist undir rós eða bara beint út. Oft snúast hótanirnar um líkamsmeiðingar eða kynferð- isofbeldi. Á bloggsíðu sinni segir Hildur frá póstinum. „Ég hugsaði um foreldra hans. Það eru margir strákar á Íslandi sem dunda sér við að áreita mig á netinu eða í gegnum tölvupóst þegar þeim leiðist. Vita foreldrar þeirra af þessu?“ skrifar hún. Útgáfa DV um hátíðar Þar sem jólablað DV kom út 21. desember kemur ekki út blað á mánudag, aðfangadag, né miðvikudag, annan í jól- um. Næsta tölublað kemur út föstudaginn 28. desember. Þá kemur út veglegt áramótablað en þar upplýsir völva DV um það sem mun gerast á næsta ári og árið sem er að líða verð- ur gert upp. Þar á eftir kemur DV út föstudaginn 4. janúar en upp frá því kemur blaðið út þrjá daga vikunnar eins og venja er. DV óskar lesendum sínum gleðilegra jóla. Óþægur Jón Bjarnason er eitilharður andstæðingur Evrópusambandsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.