Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Page 14
E kki stendur annað til en að bíða eftir því að eigend­ ur sumarhúsa sem standa við Elliðavatn stefni Orku­ veitunni vegna uppsagnar á lóðaleigu samningi. Orkuveitan hefur tilkynnt eigendunum að þeir þurfi að fjarlægja sumarhús sín fyrir árslok. Mörg húsanna voru endurnýjuð fyrir átta árum til að þau uppfylltu kröfur Orkuveitunn­ ar um frágang á rotþróm þegar síðasti samningur var gerður við eigendurna. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orku veitunnar, segir að ekki sé á dagskránni að grípa til einhverra aðgerða gagn­ vart eigendunum, ekki á með­ an eigendurnir séu enn að íhuga dómsmál. Hafa talað við heilbrigðiseftirlitið „Það er enginn ofstopi í okkur í þessu máli. Við höfum upplýst Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um stöðuna og það hefur ákveðið lög­ formlegt hlutverk varðandi vatns­ verndina,“ segir Eiríkur. „Við höf­ um heyrt í fjölmiðlum að það sé von á því að þetta sé á leið fyrir dómstóla og kannski er það næsta skref, ef leigjendurnir kjósa að fara þá leið.“ Eigendum sumarhúsanna var tilkynnt um fyrirhugaða uppsögn á lóðaleigusamningunum í nóvem­ ber í fyrra og hafa eigendurnir því haft nógan tíma til að undirbúa flutning húsanna, hefðu þeir vilj­ að. Morgunblaðið hefur greint frá því að sumarhúsaeigendur íhugi málsókn gegn Orkuveitunni og að enginn eigendanna sé farinn að huga að flutningum. „Ef leigjend­ urnir ætla með málið fyrir dóm þá er eðlilegt að bíða þeirrar niður­ stöðu, það er alveg ljóst. Þannig að réttarstaðan verður þá klár­ ari í allra huga. Við álítum að hún sé nokkuð skýr en það eru aðrar meiningar uppi um það hjá leigj­ endunum, eða hluta þeirra,“ segir Eiríkur. Standa nærri vatnsverndarsvæði Ástæðan fyrir því að Orkuveitan vill að húsin verði fjarlægð er ná­ lægð þeirra við vatnsverndarsvæði borgarinnar. Húsin eru þó ekki á brunnsvæðinu sjálfu heldur á grannsvæði. Ekki er gert ráð fyrir að frístundabyggð sé á svæðinu samkvæmt aðalskipulagi Reykja­ víkurborgar. Eiríkur segir að öll byggð á svæðinu geti haft áhrif á vatnsverndarsvæðið. „Við erum að horfa til langs tíma þegar við horf­ um á vatnsverndina og að þessi byggð hljóti að vera víkjandi með tilliti til hennar,“ segir hann. „Það fylgir þessari búsetu ákveðin hætta fyrir vatnsbólin.“ Sumarhúsin eru þó ekki eina byggðin í grennd við vatns­ verndarsvæðið. Mikil og hröð upp­ bygging verið Kópavogsmegin við Elliðavatn á undanförnum árum. Aðspurður hvort sú uppbygging sé ekki jafn mikið áhyggjuefni segir hann svo vera. „Við höfum áhyggjur af því hvað byggðin í heildina hefur færst nær svæðun­ um og umferð hefur aukist og þar frameftir götum. Það eru allskon­ ar ytri álagsþættir sem eru vaxandi sem við höfum áhyggjur af,“ seg­ ir Eiríkur. Hann segir það þó ekki bara vera spurning um hversu ná­ lægt byggð er vatnsverndarsvæð­ inu heldur í hvaða átt byggðin er með tilliti til grunnvatnsstrauma. „Það er að segja hvort þetta sé und­ an straumi eða ofan hans. Grunn­ vatnsstraumarnir eru í meginat­ riðum frá austri til vesturs, en það eru þó lykkjur á leiðinni.“n 14 Fréttir 21.–27. desember 2012 Jólablað Bíða eftir að fá á sig málsókn n Orkuveitan ætlar ekki að grípa strax til aðgerða gagnvart sumarhúsaeigendum Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Landað framhjá n Þurfa að greiða 600.000 krónur í sekt H éraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karlmenn til greiðslu sex hundruð þúsunda króna hvor fyrir að landa framhjá vigt. Annar mannanna var ákærður fyrir að hafa þann 26. nóvember 2010 ekið burt frá Ólafsvíkurhöfn með tvö fiskikör sem innihéldu samtals 857 kíló af óslægðum þorski án við­ komu á hafnarvog. Þannig bárust vigtarmanni ekki fullnægjandi upplýsingar um aflann en í ákæru kemur fram að verðmæti aflans hafi numið tæpum þrjú hundruð þúsund krónum. Hinn maðurinn, skipstjóri Ástu GK­262, var ákærður fyrir að hafa ekki tryggt að aflinn færi á hafnar­ vogina í Ólafsvíkurhöfn. Upphaf málsins bar að með þeim hætti að eftirlitsmaður Fiskistofu óskaði eftir aðstoð lögreglu við að stöðva flutningabifreið á Garðskagavegi. Grunaði hann að framhjálöndun hefði átt sér stað í bátnum. Báðir mennirnir neituðu sök þegar málið var tekið fyrir hjá Hér­ aðsdómi Reykjaness. Dómari í málinu taldi hins vegar óyggjandi sannanir fyrir því að mennirnir hefðu gerst sekir um þá hátt­ semi sem lýst var í ákæru. Þurfa mennirnir að greiða hvor um sig sex hundruð þúsund krónur í sekt innan fjögurra vikna, ella sæta fangelsi í 32 daga. Þá voru mennirnir dæmdir til að greiða málsvarnarlausn verjenda sinna, samtals rúmar þrjú hundruð þús­ und krónur. einar@dv.is „Við höfum heyrt í fjölmiðlum að það sé von á því að þetta sé á leið fyrir dómstóla og kannski er það næsta skref. Allt á að fara Sumarhúsin við Elliðavatn eiga að fara af landi Orkuveitunnar fyrir áramót. Eigendunum var tilkynnt það fyrir um ári. Enginn virðist þó ætla að fylgja því eftir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.